Morgunblaðið - 20.08.2019, Qupperneq 25
ÍÞRÓTTIR 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 2019
FIBA gaf út á dögunum lista yfir al-
þjóðadómara og eftirlitsmenn fyrir
tímabilið 2019 til 2021 og eru tveir ný-
ir fulltrúar Íslanda á listanum, en það
eru þeir Ísak Ernir Kristinsson sem
dómari og Jón Bender sem eftirlits-
maður. Dómaranefndir körfuknatt-
leikssambanda innan FIBA tilnefna
dómara og eftirlitsmenn á listann sem
FIBA fer svo yfir og samþykkir eða
hafnar. Báðar tillögur KKÍ til FIBA voru
samþykktar. Á dómaralista KKÍ hjá
FIBA eru áfram þeir Aðalsteinn
Hjartarson, Davíð Tómas Tómasson
og Jóhannes Páll Friðriksson og Rún-
ar Birgir Gíslason er áfram eftirlits-
maður. Kristinn Óskarsson er áfram
alþjóðlegur dómaraleiðbeinandi.
Heimsmeistaramót fatlaðra í sundi
fer fram í London dagana 9.-15.
september næstkomandi. Sex íslensk-
ir fulltrúar munu keppa á mótinu frá
þremur félögum. Mótið fer fram í Ól-
ympíusundlauginni frá leikunum 2012
þar sem sundmaðurinn Jón Margeir
Sverrisson vann gullverðlaun í 200m
skriðsundi S14 á nýju heimsmeti.
Íslensku keppendurnir eru: Thelma
Björg Björnsdóttir, ÍFR - S6, Sonja
Sigurðardóttir, ÍFR -
S4, Róbert Ísak
Jónsson, Firði/
SH - S14, Guð-
finnur Karls-
son, Firði - S11,
Már Gunn-
arsson, ÍRB -
S11, og
Hjörtur
Már
Ingv-
arsson,
Firði -
S5.
Eitt
ogannað
Geir Sveinsson var í gær ráðinn
þjálfari þýska efstudeildarliðsins
Nordhorn-Lingen og skrifaði hann
undir tveggja ára samning við fé-
lagið. Geir snýr þar með aftur til
starfa í Þýskalandi eftir að hafa
þjálfað Magdeburg frá 2014-2015.
Nordhorn er nýliði í þýsku 1.
deildinni í ár eftir að hafa hafnað í
öðru sæti 2. deildarinnar í fyrra.
Tímabilið er þegar hafið hjá liðinu,
en það féll úr leik í bikarkeppninni
um helgina. Fyrsti leikur í deildinni
er svo gegn þeim Arnóri Þór Gunn-
arssyni og Ragnari Jóhannssyni hjá
Bergischer á fimmtudag. Geir fær
því ekki mikinn tíma til undirbún-
ings, en fyrrverandi þjálfari liðsins
þurfti að hætta af heilsufarsástæð-
um á dögunum.
„Ég hikaði ekki í eitt augnablik
þegar tilboðið kom að snúa aftur í
Bundesliguna, sérstaklega hjá
svona flottu félagi, og ég er mjög
spenntur að takast á við verkefnið,“
sagði Geir á heimasíðu félagsins.
Hann stýrði síðast Akureyri á síðari
hluta tímabilsins hér heima í vor og
var þar áður landsliðsþjálfari Ís-
lands 2016-2018.
„Geir hefur skilað frábæru verki
þar sem hann hefur verið síðustu
ár, er mjög fær í samskiptum og
hefur jákvæða persónutöfra. Hans
sýn á handbolta er einmitt svipuð
þeirri sem þetta lið hefur tileinkað
sér síðustu ár,“ sagði framkvæmda-
stjóri félagsins í gær.
Hjá Nordhorn hittir Geir meðal
annars gamlan lærisvein, en
austurríski landsliðsmaðurinn Ro-
bert Weber gekk í raðir félagsins í
sumar. Hann spilaði áður undir
stjórn Geirs hjá Magdeburg.
yrkill@mbl.is
Geir þurfti ekki að
hugsa sig tvisvar um
Ljósmynd/Nordhorn-Lingen
Þýskaland Geir Sveinsson kynntur
sem nýr þjálfari Nordhorn í gær.
HANDBOLTI
Andri Yrkill Valsson
yrkill@mbl.is
„Líkurnar eru einn á móti mörgum
milljónum að þetta skuli gerast í sex-
tán manna hópi,“ sagði Heimir Rík-
arðsson, þjálfari U19 ára landsliðs
karla í handknattleik, þegar Morgun-
blaðið ræddi við
hann í gær. Hann
var þá nýkominn
til landsins með
liðinu sem hafnaði
í áttunda sæti á
heimsmeistara-
mótinu sem hald-
ið var í Norður-
Makedóníu.
Í tveimur leikj-
um um 5.-8. sæti
mótsins um
helgina voru aðeins 13 leikmenn á
skýrslu hjá íslenska liðinu. Haukur
Þrastarson var að glíma við meiðsli í
öxl og ákveðið var að taka enga
áhættu með hann, en tveir leikmenn
fengu botnlangabólgu. Fyrst var það
Tumi Steinn Rúnarsson, eftir að hafa
farið á kostum gegn tilvonandi
heimsmeisturum Egyptalands í átta
liða úrslitunum. Hann var sendur
heim til Íslands að læknisráði, en þá
veiktist markvörðurinn Sigurður
Dan Óskarsson líka.
„Ég hef aldrei lent í öðru eins,“
sagði Heimir, en Sigurður þurfti að
vera á sjúkrahúsi í eina nótt og það
var jafnvel spurning hvort hann
þyrfti í aðgerð. Bólgan tók hins vegar
að minnka svo ákveðið var að hann
kæmi með liðinu heim. Svavar Ingi
Sigmundsson var því eini markvörð-
urinn í hópnum í síðustu tveimur
leikjunum gegn Frökkum og Spán-
verjum sem töpuðust báðir og átt-
unda sætið því niðurstaðan.
„Við vorum bara tilbúnir með
klippta markmannspeysu til að
henda einhverjum í rammann ef eitt-
hvað kæmi fyrir hann. Það var upp á
lítið að spila um 5.-8. sætið þar sem
það hafði ekkert að segja varðandi
þátttöku í öðrum mótum eða svoleið-
is. Við ætluðum bara að klára þá leiki
og mér fannst við gera það bara vel.
Leikmenn lögðu sig fram, en það er
erfitt að hafa bara einn markmann
auk þess sem það vantaði Tuma og
Hauk,“ sagði Heimir.
Trúði vart að væru jafnaldrar
Íslenska liðið hafnaði í þriðja sæti í
sínum riðli eftir að hafa unnið Túnis,
Brasilíu og Serbíu en tapað fyrir
Portúgal og Þýskalandi. Liðið vann
svo Japan í 16-liða úrslitunum, 39:34,
áður en það lenti í klóm Egypta í átta
liða úrslitunum. Egyptarnir áttu síð-
ar eftir að fagna heimsmeistaratitl-
inum; fyrsta þjóðin utan Evrópu sem
það gerir á HM í þessum aldurs-
flokki.
„Þar var við ramman reip að
draga. Þeir eru svakalega stórir og
sterkir og maður trúði því varla að
verið væri að spila við jafnaldra.
Þetta voru svakalegir lurkar, en við
náðum að gefa þeim leik og berjast
aðeins við þá. En það var erfitt,“
sagði Heimir, en sá leikur tapaðist
35:31.
Egyptar unnu svo Þjóðverja í úr-
slitaleiknum 32:28, sem Heimir sagði
að undirstrikaði nokkuð hvernig þró-
unin væri að verða í handbolta-
heiminum. Góðum þjóðum væri að
fjölga og breiddin klárlega að aukast.
Hafa varla misst af verðlaunum
Það að þetta íslenska lið hafni í átt-
unda sæti mótsins sætir nokkrum
tíðindum. Fyrir þetta mót hafði liðið
með þessa stráka tekið þátt í sjö mót-
um frá árinu 2017 og aðeins einu
sinni hafnað neðar en í þriðja sæti.
Hæst ber silfur á Evrópumótinu í
fyrra.
„Þetta er fín reynsla fyrir þessa
stráka. Þeir eru vanir að vera of-
arlega í þeim verkefnum sem þeir
hafa tekið þátt í. Þeir eru búnir að
standa sig rosalega vel og á þessum
tíma sem ég hef verið með þá hafa
milli 50 og 60 strákar spilað lands-
leiki. Við höfum reynt að auka
breiddina og leyft fleirum að taka
þátt í verkefnum,“ sagði Heimir.
Hann hefur fylgt þessum aldurs-
flokki upp frá 14 ára aldri ásamt
þeim Magnúsi Kára Jónssyni og
Andrési Kristjánssyni. Nú eru hins
vegar kaflaskil framundan hjá þeim
og strákunum.
„Nú eru þeir komnir upp í U21 árs
liðið og það er ekkert vitað hvað
verður með framhaldið, ekki svo ég
viti. Við ætluðum bara að bíða með
allar samræður þar til eftir þetta mót
og setjast svo niður,“ sagði Heimir
Ríkarðsson við Morgunblaðið.
„Ég hef
aldrei lent í
öðru eins“
Tveir fengu botnlangabólgu á HM
Mótið mikil reynsla fyrir strákana
Ljósmynd/IHF/Petar Stojanovski
HM Tumi Steinn Rúnarsson með boltann gegn tilvonandi meisturum Egypta
í átta liða úrslitum mótsins, áður en hann var sendur heim að læknisráði.
Heimir
Ríkarðsson