Morgunblaðið - 20.08.2019, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 20.08.2019, Qupperneq 26
EM U 16 kvenna B-deild í Búlgaríu: A-riðill: Ísland – Svartfjallaland ....................... 59:63 Serbía – Rúmenía ................................. 62:37 Slóvenía – Bosnía.................................. 87:36 Staðan: Slóvenía 8, Serbía 8, Rúmenía 6, Svartfjalland 5, Bosnía 5, Ísland 4. KÖRFUBOLTI 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 2019 Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • tengi@tengi.is Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15 Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi ALLT Í BAÐHERBERGIÐ FRÁ A TIL IFÖ Tengi hefur mikla og góða reynslu af IFÖ baðinnréttingum. IFÖ eru sænskar hágæðavörur sem framleiddar hafa verið allt frá 1936. Í VESTURBÆ Björn Már Ólafsson bmo@mbl.is Leikur KR og Víkings R. í Pepsi Max-deild karla í knattspyrnu í gær- kvöldi fer ekki í sögubækurnar fyrir fegurðina eftir 1:0 sigur KR, svo mikið er víst. KR-ingar lögðu áherslu á að vera þéttir eftir tvo tap- leiki í röð í deild og bikar og Rúnar Kristinsson stillti upp tveimur djúp- um miðjumönnum fyrir framan varnarlínuna í fyrsta skiptið í sumar. Það virkaði vel fyrir KR-inga og þegar við bættist góð pressa fremstu leikmanna þeirra leiddi það til þess að Víkingar fengu nær engin færi í leiknum, aðeins hálffæri. Stór hluti leiksins einkenndist svo af stöðubaráttu og góðum og þéttum varnarleik beggja liða og það þrátt fyrir að bæði lið þurftu að gera hrók- eringar á varnarlínum sínum í leikn- um vegna meiðsla. Bann Sölva Geirs Ottesen ýtti Kára Árnasyni af miðj- unni aftur í miðvörðinn við hlið Hall- dórs Smára Sigurðssonar, sem fór síðan út af í hálfleik vegna meiðsla. Kennie Chopart meiddist í fyrri hálfleik og þurftu heimamenn því líka að gera breytingar. KR-ingar nýttu reynslu sína frá fyrstu mínútu og náðu snemma að knýja fram gul spjöld á reynslu- minni leikmenn Víkinga. Síðan eftir að Kristján Flóki Finnbogason gaf KR forystuna undir lok fyrri hálf- leiks nýttu þeir alla sína reynslu í að sigla sigrinum heim með öruggum hætti. Þetta hefur einkennt KR-liðið í allt sumar. Hægt og rólega tekst því að vinna jafna leiki með öguðum varnarleik og mjög samstilltri pressu. Þegar þeir pressa andstæð- inginn langt fram á völlinn fylgir allt liðið með, og þegar þeir falla djúpt aftur þekkja allir leikmenn sitt hlut- verk. Fallegt handbragð reynslu- mikils þjálfara. Víkingar geta verið svekktir eftir leikinn. Ekki vegna þess að þeir spiluðu sérstaklega illa. Né heldur er 1:0 tap gegn toppliði deildarinnar sérlega niðurlægjandi. Svekkelsið hlýtur frekar að vera fólgið í því að liðið þurfti aðeins að skora eitt mark til að fá stig út úr þessum leik, en þeim tókst bara ekki að skapa sér al- mennilegt færi í heilar 90 mínútur. Listin að vinna örugga 1:0 sigra  Agaður varnarleikur KR gegn Víkingi Morgunblaðið/Árni Sæberg Efstir KR-ingar fagna sigurmarkinu í afmælisbúningum sínum í gærkvöld. Paul Pogba brást bogalistin af víta- punktinum og náði ekki að tryggja Manchester United öll stigin í 1:1 jafntefli við Wolves í ensku úrvals- deildinni í knattspyrnu í gærkvöld. Anthony Martial hafði komið United yfir áður en Rúben Neves jafnaði fyrir Wolves. Pogba var svo felldur innan teigs þegar rúmar 20 mínútur voru eftir, en Rui Patrício í marki Wolves varði fasta víta- spyrnu hans og jafntefli staðreynd. United er með fjögur stig eftir fyrstu tvo leikina í deildinni en Wolves hefur gert tvö jafntefli. Pogba brást á vítapunktinum AFP Vítaspyrnan Paul Pogba heldur um höfuð sér en Rui Patrício er sáttur. Eftir að hafa verið ónotaður vara- maður hjá AZ Alkmaar í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu um helgina spilaði Albert Guðmunds- son allan leikinn með varaliði fé- lagsins í B-deildinni í gærkvöld. Hann skoraði þá mark liðsins úr vítaspyrnu í 2:1-tapi fyrir Elíasi Má Ómarssyni og liði Excelsior. Þetta var fyrsta mark Alberts á leiktíðinni, en hann hefur aðeins fengið að spila í samtals 12 mínútur með aðalliðinu í fyrstu þremur leikjunum í úrvalsdeildinni á leik- tíðinni þar sem liðið er taplaust. Fyrsta markið kom með B-liðinu Ljósmynd/www.az.nl Skoraði Albert Guðmundsson greip tækifærið með varaliði AZ í gær. 1:0 Kristján Flóki Finnbogason 42. I Gul spjöldKennie Chopart, Pálmi Rafn Pálmason (KR), Guðmundur Andri Tryggvason, Erlingur Agnarsson, Kári Árnason (Víkingi). Dómari: Einar Ingi Jóhannsson, 7. Áhorfendur: 1.521. KR – VÍKINGUR R. 1:0 M Finnur Tómas Pálmason (KR) Kristinn Jónsson (KR) Kristján Flóki Finnbogason (KR) Óskar Örn Hauksson (KR) Pálmi Rafn Pálmason (KR) Ágúst Eðvald Hlynsson (Víkingi) Kári Árnason (Víkingi) Þórður Ingason (Víkingi) KNATTSPYRNA Danmörk AGF – Horsens......................................... 2:0  Jón Dagur Þorsteinsson fór af velli á 80. mínútu hjá AGF. Staða efstu liða: København 6 6 0 0 12:4 18 Midtjylland 6 5 1 0 8:2 16 Brøndby 6 4 1 1 13:7 13 Nordsjælland 6 3 1 2 11:7 10 SønderjyskE 6 2 3 1 10:7 9 OB 6 3 0 3 10:9 9 AaB 6 2 1 3 9:7 7 Hobro 6 1 4 1 8:9 7 Horsens 6 2 0 4 5:10 6 Lyngby 6 2 0 4 5:11 6 Randers 6 1 2 3 8:9 5 Svíþjóð Helsingborg – Gautaborg....................... 1:2  Daníel Hafsteinsson var ekki í leik- mannahópi Helsingborg. Staða efstu liða: Djurgården 20 13 5 2 36:12 44 Malmö 20 11 8 1 35:13 41 AIK 20 12 4 4 29:15 40 Hammarby 20 11 5 4 47:28 38 Häcken 20 11 4 5 31:17 37 Gautaborg 20 9 8 3 29:18 35 Norrköping 20 9 7 4 30:19 34 Elfsborg 20 6 6 8 26:33 24 Örebro 20 6 4 10 28:32 22 Östersund 20 4 9 7 19:30 21 Kalmar 20 3 9 8 17:25 18 B-deild: Varberg – Brage...................................... 0:0  Bjarni Mark Antonsson spilaði allan leikinn með Brage. Noregur Sarpsborg – Bodö/Glimt ........................ 1:1  Oliver Sigurjónsson var ónotaður vara- maður hjá Bodö/Glimt. Staða efstu liða: Molde 18 12 3 3 42:18 39 Bodø/Glimt 18 12 3 3 41:27 39 Odd 18 10 4 4 26:20 34 Rosenborg 18 8 5 5 27:22 29 Brann 18 8 5 5 23:18 29 Vålerenga 18 7 5 6 33:25 26 Viking 18 7 4 7 27:28 25 Haugesund 18 6 6 6 27:21 24 Kristiansund 18 6 5 7 20:21 23 Lillestrøm 18 6 4 8 23:29 22 Mjøndalen 18 4 8 6 26:30 20 Rússland Spartak Moskva – CSKA Moskva.......... 2:1  Hörður Björgvin Magnússon lék allan leikinn með CSKA. Arnór Sigurðsson er frá vegna meiðsla. Völsungur frá Húsavík tryggði sér efsta sætið í 2. deild kvenna í knatt- spyrnu um helgina og leikur liðið í 1. deild á næsta tímabili. Harpa Ásgeirsdóttir skoraði eina markið þegar Völsungur vann 1:0- sigur gegn Gróttu á Húsavíkurvelli. Harpa skoraði sigurmark leiksins strax á 2. mínútu. Völsungur er með 25 stig í efsta sæti deildarinnar en liðið hefur leik- ið níu leiki í deildinni í sumar. Alls leika sjö lið í 2. deildinni en Sindri er í öðru sætinu með 18 stig eftir 10 leiki og Grótta er í þriðja sætinu með 17 stig eftir 10 leiki. Bæði Sindri og Grótta eiga eftir tvo leiki í deildinni og geta ekki náð Völsungi að stigum sem haft hefur nokkra yfirburði en liðið hefur unnið átta leiki í sumar, gert eitt jafntefli og er ósigrað. Taplausir Húsvíkingar leika í 1. deild kvenna næsta sumar Ósigraðar Völsungur hefur unnið átta leiki og gert eitt jafntefli.  Völsungur með yfirburði í sumar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.