Morgunblaðið - 20.08.2019, Síða 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 2019
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Fyrir líkama og sál
Laugarnar í Reykjavík
Frá
morgnifyrir alla
fjölskylduna
í þínu
hverfi t i l kvölds
Ég hef ávallt verið mjög mik-
ið borgarbarn. Ég hef alla tíð bú-
ið í Reykjavík og ég get talið á
fingrum annarrar handar hversu
oft ég fór út úr bænum á fyrstu
20 árum lífs míns.
Þegar ég var táningur fannst
mér „sveitin“ kjánaleg. Með ár-
unum hef ég komist að því að
það var ég sem var kjánalegur.
Ég dáist m.a. að íþróttafélögum
frá litlum bæjarfélögum sem eru
að gera vel.
Að sjá Selfoss verða Ís-
landsmeistara í handbolta í
karlaflokki og svo bikarmeistara
í fótbolta í kvennaflokki nokkrum
mánuðum síðar þykir mér
magnað.
Talandi um magnað. Magn-
aðir Magnamenn frá Grenivík eru
komnir úr fallsæti í Inkasso-
deildinni í fótbolta. Það búa rétt
rúmlega 300 manns á Grenivík,
eða svipað margir og í blokkinni
minni í Breiðholti. Það yrði ótrú-
legt afrek ef liðið næði að halda
sér uppi annað árið í röð.
Það yrði enn ótrúlegra ef
Leiknir frá Fáskrúðsfirði færi upp
úr 2. deild og upp í Inkasso-
deildina. Á meðan hin félögin á
Austurlandi hafa sameinast á
síðustu árum, hefur Leiknir hald-
ið sínu striki, þrátt fyrir aðeins
um 700 íbúa í bænum.
Ekki má gleyma Ólafsvík,
sem hefur átt félag í efstu deild
karla í fótbolta á síðustu árum,
þrátt fyrir aðeins rúmlega 1.000
íbúa.
Á Grenivík og Fáskrúðsfirði
búa samanlagt rétt rúmlega
1000 manns. Til að setja þetta í
samhengi þá búa tæplega 7.500
manns á Akranesi og um 16.000
manns í Reykjanesbæ. Vonandi
heldur þessi skemmtilega þróun
áfram. Áfram landsbyggðin.
BAKVÖRÐUR
Jóhann Ingi
Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Í SMÁRANUM
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Ekki vantaði fjörið og mörkin á Kópa-
vogsvelli í gær þegar Breiðablik og
Valur mættust. Eftir sex skoruð mörk
og 3:3 jafntefli fengu liðin sitt hvort
stigið.
Á þessum síðum hefurðu örugglega
lesið í gegnum tíðina að leikir hafi ver-
ið kaflaskiptir og slík lýsing á vel við í
þetta skiptið. Valsmenn voru virkilega
góðir fyrstu tuttugu og fimm mínútur
leiksins eða svo. Eftir að hafa komist í
2:0 á fyrstu nítján mínútunum virtust
þeir líklegir til að vinna leikinn örugg-
lega. En eftir að Blikar komust inn í
leikinn slökknaði nánast á Valsliðinu.
Þeir áttu eina marktilraun á þeim
tíma sem eftir lifði leiksins og hún
skilaði marki. Var það skalli fyrirlið-
ans Hauks Páls Sigurðssonar á 69.
mínútu en í millitíðinni hafði Breiða-
blik skorað þrívegis.
Seigla eftir bikartap
Blikum hefur eflaust fundist þeir
hafa tapað tveimur stigum í gær fyrst
liðið var komið yfir 3:2 og þeir voru
beittari en Valsmenn í síðari hálfleik.
En í herbúðum Breiðabliks geta menn
þó verið ánægðir með hvernig leik-
menn liðsins brugðust við slæmri
byrjun í gær og sneru leiknum sér í
hag gegn Íslandsmeisturum. Sér-
staklega í ljósi þess að Breiðablik féll
úr keppni í undanúrslitum bikar-
keppninnar fyrir nokkrum dögum,
þar sem leikmenn liðsins höfðu flest á
hornum sér þegar á leið. Móralslega
ætti Valsleikurinn því að hafa nokkuð
góð áhrif á Blikana og voru þeir auk
þess án þeirra Thomasar Mikkelsen
og Elfars Freys Helgasonar, sem
voru í leikbanni vegna fjölda gulra
spjalda.
Fengu á sig ódýr mörk
Erfitt er að ímynda sér hvað fer í
gegnum hugann hjá Valsmönnum eft-
ir svo skrautlegan leik. Frá þeirra
sjónarhóli eru mörk Breiðabliks ódýr.
Tvö þeirra koma eftir fast leikatriði og
það fyrsta eftir frákast. Undarlegt var
að sjá liðið missa sjálfstraustið eftir
jafn góða byrjun og raun bar vitni.
Fyrsta markið í leiknum kom til dæm-
is eftir virkilega huggulega sókn Vals.
Valsmenn gætu verið án Sigurðar
Egils Lárussonar á næstunni en hann
fór af leikvelli á 19. mínútu meiddur í
læri að manni sýndist. Hafði þá þegar
lagt upp mark fyrir Birki Má Sævars-
son.
Stórskemmtilegt í Smáranum
Sex marka jafntefli Breiðabliks
og Vals í kaflaskiptum leik
Morgunblaðið/Árni Sæberg
3:3 Alfons Sampsted og Bjarni Ólafur Eiríksson í baráttunni í gær.
Markvörðurinn Frederik Schram
er genginn til liðs við danska knatt-
spyrnufélagið Lyngby en þetta
kemur fram á heimasíðu félagsins.
Frederik kemur til Lyngby frá Søn-
derjyskE en hann skrifar undir
lánssamning sem gildir út tímabilið
við danska úrvalsdeildarfélagið.
Frederik er 24 ára og gekk til
liðs við SønderjyskE um miðjan júlí
en hann hefur fengið fá tækifæri
með liðinu í upphafi leiktíðar.
Lyngby er í 10. sæti deildarinnar
með 6 stig eftir fimm leiki en Søn-
derjyskE er í 5. sæti með 9 stig.
Frederik færir sig
til Lyngby
Morgunblaðið/Hari
Lánaður Frederik Schram er búinn
að færa sig um set í Danmörku.
Philippe Coutinho er genginn til
liðs við þýska knattspyrnufélagið
Bayern München en þetta staðfesti
félagið á heimasíðu sinni í gær.
Coutinho skrifar undir lánssamn-
ing við þýsku meistarana sem gildir
út tímabilið en hann kemur til fé-
lagsins frá Barcelona.
Bayern þarf að borga Barcelona
8,5 milljónir evra fyrir að fá leik-
manninn ásamt því að þurfa að
greiða laun Coutinho sem eru í
kringum 350.000 pund á viku. Þá
hefur þýska félagið forskaupsrétt
að leikmanninum næsta sumar.
Með forkaupsrétt
á Coutinho
AFP
Bayern Philippe Coutinho er nú
kominn til Þýskalands frá Spáni.
0:1 Birkir Már Sævarsson 14.
0:2 Patrick Pedersen 19.
1:2 Brynjólfur D. Willumsson 37.
2:2 Andri Rafn Yeoman 40.
3:2 Brynjólfur D. Willumsson 61.
3:3 Haukur Páll Sigurðsson 69.
I Gul spjöldViktor Karl Einarsson, Gísli
Eyjólfsson (Breiðabliki), Patrick
Pedersen (Val).
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson, 6.
Áhorfendur: 1.310.
BREIÐABLIK – VALUR 3:3
MM
Brynjólfur Darri Willumsson
(Breiðabliki)
M
Alfons Sampsted (Breiðabliki)
Andri Rafn Yeoman (Breiðabliki)
Höskuldur Gunnlaugsson (Breið.)
Birkir Már Sævarsson (Val)
Haukur Páll Sigurðsson (Val)
Sebastian Hedlund (Val)
Fátt getur komið í veg fyrir að FH
og Þróttur komist upp úr 1. deild
kvenna í knattspyrnu, Inkasso-
deildinni, en liðin hafa verið í sér-
flokki í sumar. Helsta spurninga-
merkið er hvenær óhætt er að fagna
sætinu í efstu deild, en bæði geta
gert það í næstu leikjum sínum á
föstudagskvöld þrátt fyrir að enn
verði þrjár umferðir eftir að þeim
loknum.
Liðin unnu bæði leiki sína í 14.
umferðinni í gær. Þróttur vann Aft-
ureldingu 2:0 með mörkum Lindu
Lífar Boama og Álfhildar Rósu
Kjartansdóttur, en Birta Stefáns-
dóttir tryggði FH 1:0 sigur á ÍR.
FH fær
Hauka í heim-
sókn á föstudag
og Þróttur
heimsækir ÍA,
en mótherjar
toppliðanna
mættust einmitt
í gærkvöld þar
sem Haukar
unnu 4:1 sigur,
sem var þriðji
sigur liðsins í röð.
Þá gerðu Grindavík og Fjölnir 1:1
jafntefli, en liðin eru í baráttu ásamt
Augnabliki og ÍA um að forðast það
að falla niður í 2. deild með ÍR.
FH og Þróttur geta fagnað
sæti í efstu deild í vikulok
Linda Líf
Boama