Morgunblaðið - 20.08.2019, Síða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 2019
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
„Ég var sælust allra í bænum“ er
yfirskrift síðustu sumartónleika árs-
ins í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar
sem hefjast í kvöld kl. 20.30. Á þeim
koma fram Sólveig Sigurðardóttir
sópransöngkona og Hrönn Þráins-
dóttir píanóleikari og flytja aríur og
sönglög, verk eftir Hugo Wolf, Rich-
ard Strauss, Paolo Tosti, Wolfgang
A. Mozart, Gioachino Rossini og
fleiri. Tónleikarnir áttu upphaflega
að fara fram 16. júlí en píanóleikar-
inn forfallaðist og nú er annar kom-
inn í hans stað. Efnisskráin er þó sú
sama.
Hamingja, sorg og söknuður
Sólveig segir titil tónleikanna
fenginn úr þekktu ljóði Tómasar
Guðmundssonar, „Þjóðvísu“, sem
hefst á orðunum „Ég hélt ég væri
smámey og hugðist vera til“. „Ég
syng ljóðið á tónleikunum við lag eft-
ir Gylfa Þ. Gíslason,“ segir Sólveig.
Um ástæðuna fyrir því að hún valdi
þessi orð sem yfirskrift tónleikanna
segir hún að þau hafi verið viðeig-
andi fyrir alla efnisskrána. „Hversu
ofboðslega hamingjusamur maður
getur verið þegar maður er ástfang-
inn,“ útskýrir hún. Lögin á tónleik-
unum fjalla þó ekki bara um ástar-
sælu heldur líka sorg og söknuð sem
fylgir því að missa ástina, að sögn
Sólveigar, sem segir ástina koma við
sögu í öllum lögunum.
Sólveig setti saman efnisskrána
og segist aðallega hafa haft í huga að
syngja lög sem hana langaði að
syngja fyrir fólk. „Ég lít svo á að ég
sé besti túlkandinn þegar ég flyt
eitthvað sem virkilega talar til mín,
það var það sem ég hafði aðallega í
huga. Þegar ég fór svo að raða þessu
saman kom eiginlega þetta þema í
ljós og svo fyllti ég aðeins upp í með
því,“ segir Sólveig.
Fjölbreytt og óvenjuleg
– Nú eru þetta ólík tónskáld og
lögin ólík fyrir þig að syngja.
Hverjum hefurðu mest gaman af og
hver reyna mest á þig?
„Þetta reynir á mismunandi hluti
og það er eiginlega það sem mér
finnst svo skemmtilegt. Efnisskráin
er rosalega fjölbreytt og svolítið
óvenjuleg. Ég held ég geti lofað því
að allir muni heyra eitthvað sem þeir
hafa ekki heyrt áður og mér finnst
það líka mikilvægt, að vera ekki að
gera það sama og allir aðrir,“ svarar
Sólveig sem segist ætla að syngja 14
eða 15 lög. Hún segist ekki geta
nefnt lög sem henni þyki vænst um
eða reyni mest á hana sem söngvara.
„Þau reyna á svo mismunandi hluti
að það er erfitt að bera þau saman.“
Hvað tónleikastaðinn varðar segir
Sólveig að sér þyki frábært að fá
tækifæri til að syngja í safninu. Þótt
salurinn rúmi hátt í hundrað manns
sé nándin mikil við gesti. Fjöldinn
skipti þó engu máli. „Þetta snýst um
hvernig maður nær til hvers og
eins,“ segir Sólveig að lokum.
Miðaverð á tónleikana er kr. 2.500
og fer miðasala fram við innganginn.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Dúett Sólveig Sigurðardóttir sópran og Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari á æfingu í safninu í gær.
Hamingja ástarinnar,
sorg og söknuður
Síðustu sumartónleikar Listasafns Sigurjóns Ólafssonar
Once Upon a Time in Hollywood Ný Ný
The Lion King 1 5
Héraðið Ný Ný
Angry Birds 2 bíómyndin 3 2
Fast & Furious: Hobbs & Shaw 2 3
Toy Story 4 5 9
Scary Stories to Tell in the Dark 4 2
Spider-man: Far From Home 6 7
The Kitchen 7 2
Anna 8 4
Bíólistinn 16.–18. ágúst 2019
Nr.
Var
síðast
Vikur
á listaKvikmynd
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Bíóaðsókn helgarinnar
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykja-
vík, RIFF, og Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands, SN, munu standa fyrir
kvikmyndatónleikum í Hörpu 29.
september á meðan á hátíðinni
stendur. Íslenska teiknimyndin Lói,
þú flýgur aldrei einn verður sýnd við
lifandi flutning SN en hljómsveitin
hljóðritaði kvikmyndatónlist Atla
Örvarssonar við hana á sínum tíma.
„Samstarf sem þetta skiptir miklu
máli og er hluti af því að efla það
starf sem RIFF og SinfoniaNord
standa fyrir. Með því er sýnt fram á
hvað hægt er að gera þegar tveir
menningaraðilar standa saman í
uppsetningu menningarviðburðar
sem þessa þar sem öllu er til tjaldað
og hæfustu listamenn þjóðarinnar
koma saman,“ segir í tilkynningu
frá RIFF og að samstarfið sé hugsað
sem framtíðarverkefni þar sem
RIFF muni koma að ýmsum við-
burðum í tengslum við kvikmynda-
verkefni SinfoniaNord allt árið um
kring, bæði í Reykjavík og höfuð-
stöðvum hljómsveitarinnar í Hofi á
Akureyri.
RIFF og SN halda kvikmyndatónleika
Lói Lóuunginn Lói úr teiknimyndinni.
Trommuleikarar létu ekki smávætu slá sig út af laginu
á trommuhátíðinni Orquestra de Baterias sem haldin
var í Florianopolis í Suður-Brasilíu um helgina í sjö-
unda sinn. Hundruð trommuleikara spiluðu þar tónlist
eftir Bítlana, Deep Purple og Kiss. Samkvæmt frétt
AFP stóð til að reyna að slá heimsmet sem sett var í
Englandi 2012 þegar 798 trommuleikarar léku saman.
Ekki fylgir sögunni hvort það tókst.
AFP
Létu vætu ekki slá sig út af laginu
Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is
Góð þjónusta
byrjar með
flottum fatnaði.
Fatnaður fyrir fagfólk