Morgunblaðið - 20.08.2019, Síða 32
Tríó skipað þeim Sigurði Flosasyni
á saxófón, danska hammondorgel-
leikaranum Kjeld Lauritsen og Ein-
ari Scheving á trommur kemur
fram á Kex hosteli í kvöld kl. 20.30.
Á efnisskránni eru djassstandardar
í bland við frumsamda tónlist. Þess
má geta að Sigurður og Lauritsen
hafa starfað saman um langt árabil
í Danmörku og gefið út tvo vinsæla
geisladiska hjá Storyville-
útgáfunni. Aðgangur ókeypis.
Flosason, Lauritsen og
Scheving á Kex í kvöld
ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 232. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Tveir leikmenn íslenska U-19 ára
landsliðs karla í handknattleik
fengu botnlangabólgu á meðan lið-
ið tók þátt á heimsmeistaramóti í
Norður-Makedóníu á dögunum.
Þjálfari liðsins segist ekki hafa lent
í öðru eins, en liðið hafnaði í átt-
unda sæti mótsins og hefur þessi
árgangur stimplað sig inn sem einn
sá besti í sínum aldursflokki. »25
Einn á móti milljónum
að þetta skuli gerast
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Kristófer Acox,
landsliðsmaður í
körfuknattleik,
ökklabrotnaði ár-
ið 2014 þegar
hann lék með Fur-
man-skólanum í
bandaríska há-
skólaboltanum og
voru settar tvær
skrúfur í beinið til
þess að hjálpa því að
gróa aftur. Skrúfurnar
eru ekki lengur í bein-
inu heldur fastar í lið í
ökklanum og þarf Krist-
ófer nú að gangast undir
aðgerð til þess að fjar-
lægja skrúfurnar en
rætt er við Kristófer í
blaðinu í dag. »24
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Bræðurnir Arngrímur og Sverrir
Benjamínssynir, kranastjórar hjá
Eimskip, svipta hulunni af nafni nýs
gámakrana fyrirtækisins í sérstakri
athöfn á athafnasvæðinu í Sundahöfn
í dag. Sverrir var fyrstur til þess að
hífa frá skipi með Jaka fyrir um 35
árum og hann endurtók leikinn með
nýja krananum í liðinni viku.
Eldri kraninn fékk nafnið Jaki í há-
tíðlegri athöfn 17. nóvember 1984 og
hefur alla tíð tengst nafni Guðmundar
Jóhanns Guðmundssonar, þáverandi
formanns Verkamannafélagsins
Dagsbrúnar, sem gjarnan var kall-
aður Guðmundur Jaki. Sverrir hefur
unnið á krananum frá byrjun og Arn-
grímur kom með honum á vaktina
skömmu eftir að kraninn var tekinn í
notkun, en þeir hafa starfað hjá Eim-
skip í nær hálfa öld, Arngrímur frá
1971 og Sverrir frá 1972.
Sverrir segir að Jakinn hafi verið
bylting og þessi nýi sé meiri og betri
á öllum sviðum. „Við sitjum í 40
metra hæð í stjórnhúsinu í þessum
nýja en í 24 metra hæð í Jakanum.
Þessi er mun hraðvirkari, en við þurf-
um að æfa okkur upp á nýtt, þó að
vinnubrögðin séu þau sömu í grunn-
inn.“ Arngrímur tekur í sama streng
og áréttar að þeir þurfi sérstaklega
að æfa fjarlægðarskynið, auk þess
sem handföngin séu öðruvísi.
„Þessi er miklu fullkomnari og öfl-
ugri og nú verður ekki aftur snúið.
Þetta er allt annað.“
Samrýndir bræður
Jakinn vegur um 450 tonn en hinn
um 800 tonn. Heildarhæðin er um 90
metrar samanborið við 70 metra á
eldri krananum. Nýi kraninn vinnur
út í 15. gámaröð, eða 45 metra, en sá
gamli út í 10. röð, eða 35 metra. Nýi
kraninn er rafvæddur og skilur ekki
eftir sig kolefnisspor í rekstri.
Sverrir segir að þeir bræður hafi
alla tíð verið samrýndir. „Addi bróðir
byrjaði að vinna hjá Eimskip ári á
undan mér og það varð til þess að ég
kom líka hingað,“ segir hann. Þeir
hafa ávallt verið saman á vakt. „Eini
ókosturinn við það er að við höfum
aldrei getað farið í sumarfrí saman
síðan við byrjuðum á Jaka.“ Addi
bendir á að það hafi legið fyrir frá
byrjun. „Það var skilyrði þegar ég
byrjaði á Jaka að það yrði alltaf að
vera einn vanur á hverri vakt.“
Fjórir kranastjórar vinna á Jaka
og færast nú yfir á nýja kranann, en
Þórður Gunnar Þórðarson og Snædís
Ylfa Ólafsdóttir eru á hinni vaktinni.
Stjórarnir þurfa að vera mjög vak-
andi, athugulir og einbeittir og fá
hvíld á eins og hálf tíma fresti. Þeir
sitja alltaf í keng og Sverrir segir að
vinnan sé frekar vöðvabólguhvetj-
andi. Þeir finni hins vegar ekki fyrir
lofthræðslu.
„Nýi kraninn er með lyftu, sem er
ekki í Jaka. Áður gátum við híft hvor
annan upp, sem ekki er hægt í þess-
um, eða gengið og ég ætla að reyna að
halda því áfram að hluta, nota ferðina
sem líkamsrækt,“ segir reynslu-
boltinn.
Morgunblaðið/RAX
Kranastjórarnir Bræðurnir Sverrir og Arngrímur Benjamínssynir kunna vel við sig uppi í nýja krananum.
Kranastjórar í háloftum
Bræðurnir Arngrímur og Sverrir Benjamínssynir svipta
hulunni af nafni nýs krana Eimskips í Sundahöfn í dag
Kristófer bíður eftir
símtali frá lækni