Morgunblaðið - 24.08.2019, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2019
DIMMALIMM
Laugavegi 53 | Sími 552 3737 | Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17
Skoðið úrvalið á facebook
DimmalimmReykjavik
20% AFMÆLIS
AFSLÁTTUR
30ára
Skólaföt og Skór
Afmælisgjafir
Skírnagjafir
Sængurgjafir
Opið í dag til kl. 19
DIMMALIMM
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Guðni Einarsson
Höskuldur Daði Magnússon
Sveitarfélögum gengur misjafnlega
vel að manna stöður í skólum og frí-
stundaheimilum. Enn skortir á að all-
ar stöður hafi verið mannaðar í
Reykjavík, t.d. var búið að ráða í 78%
stöðugilda í frístundaheimilum og sér-
tækum félagsmiðstöðvum 16. ágúst.
Staðan er betri nú en undanfarin ár,
að sögn Skúla Helgasonar, formanns
skóla- og frístundaráðs.
„Þetta gerist hratt þegar háskóla-
fólkið fær sínar stundaskrár. Þá verð-
ur mjög mikil hreyfing,“ sagði Skúli.
Hann sagði marga námsmenn starfa
við frístundaheimilin og félagsmið-
stöðvarnar. Á sama tíma í fyrra var
búið að ráða í 71% stöðugilda í frí-
stundaheimilunum.
En hvers vegna virðist ganga betur
að manna stöður á þessu sviði t.d. á
Akureyri og í Hafnarfirði en í Reykja-
vík?
„Við erum með mun fleiri stofnanir
á þessu sviði en öll önnur sveitarfélög.
Við erum með 170 starfsstöðvar á
skóla- og frístundasviði, 63 leikskóla,
36 grunnskóla og gríðarlegan fjölda
frístundaheimila og félagsmiðstöðva.
Það eru svo miklu fleiri stöðugildi
sem við þurfum að fylla en aðrir,“
sagði Skúli. Hann taldi víst að starf-
semi frístundaheimila í Reykjavík
væri hlutfallslega umfangsmeiri og
þjónustustigið hærra en hjá öðrum
sveitarfélögum.
Skúli kvaðst gera sér góðar vonir
um að það næðist að manna þær stöð-
ur sem enn eru ómannaðar. „Við erum
komin lengra í ráðningum nú en á
sama tíma í fyrra. Staðan nú er mun
betri en hún var næstu tvö ár þar á
undan. Það gefur góðar vonir um að
þetta klárist fyrr. Færri stofnanir eiga
nú eftir að fylla mörg stöðugildi en oft
áður. Verkefnið er miklu viðráðan-
legra en verið hefur,“ sagði Skúli.
Reykjavíkurborg gaf út tilkynn-
ingu í fyrradag um að búið væri að
ráða í 98% stöðugilda í grunnskólum
og 96% í leikskólum. Hvernig er hlut-
fall réttindafólks? „Þær tölur fylgdu
ekki með í þessari samantekt. Við
munum fá þær þegar lengra líður á
haustið,“ sagði Skúli. Hann sagði að
teknar yrðu saman tölur um stöðuna
mánaðarlega til að fylgjast með þró-
uninni. Því má vænta nýrra talna um
miðjan september.
Fullmannað á Akureyri
„Það er búið að manna allar stöður
bæði í leik- og grunnskólum Akureyr-
ar. Það er ásókn í að starfa hjá Ak-
ureyrarbæ og við hefðum alveg getað
mannað sumar stöður oftar en einu
sinni,“ segir Ásthildur Sturludóttir,“
bæjarstjóri á Akureyri.
Hún segir að þótt vissulega séu ein-
hverjar sveiflur á milli ára hafi
ástandið jafnan verið gott. „Við erum
mjög heppin. Það er hæsta hlutfall
fagmenntaðra kennara á landinu í
bæði leik- og grunnskólum Akureyr-
ar og lítið um starfsmannaveltu.
Starfið og starfsumhverfið gerir það
að verkum að fólk vill vinna hjá þess-
um stofnunum. Ég bara vorkenni
Reykjavíkurborg að þurfa að standa í
þessu á hverju ári.“
Góður gangur í Hafnarfirði
Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri í
Hafnarfirði, sagði í samtali við Morg-
unblaðið að betur gengi að manna
stöður í skólum bæjarins nú en
nokkru sinni áður. „Þetta lítur mjög
vel út. Við erum með 515 stöðugildi í
18 leikskólum bæjarins og eins og
staðan er núna vantar 14 starfsmenn
til að fullmanna þá. Við erum bjartsýn
á að það takist á næstu dögum,“ segir
Rósa. Hún hafði ekki tölur á reiðum
höndum um grunnskóla bæjarins en
sagði ástandið mjög gott þar. „Hlut-
fall fagfólks í grunnskólum er mun
betra en það hefur verið í langan tíma
og við erum að sjá fólk koma aftur til
kennslu sem hafði farið til annarra
starfa. Það gengur líka betur að
manna frístundaheimilin en verið hef-
ur og það lítur út fyrir að ekki verði
biðlistar þar í ár.“
Betur gengur að manna skólana
Morgunblaðið/Ómar
Frístundaheimili Margt er gert til afþreyingar. Mynd úr safni.
Fullmannað í leik- og grunnskólum á Akureyri Betri staða í Hafnarfirði og í Reykjavík en und-
anfarin ár Námsmenn starfa margir á frístundaheimilum og staðan skýrist þegar þeir fá stundaskrár
Pósturinn hefur á undanförnum árum
boðið upp á SMS-frímerki þar sem
númer er skrifað á umslögin í stað
þess að líma á þau frímerki. Hægt er
að póstleggja bréfin þannig merkt. Þó
þessi þjónusta sé ekki mikið notuð
voru liðlega 13 þúsund burðargjöld
greidd með farsímum á síðasta ári.
Sendandi bréfs eða bréfa sendir
einfaldlega smáskilaboð í símann
1900 með upplýsingum í tilteknu
formi, meðal annars um fjölda SMS-
frímerkja sem ætlunin er að kaupa.
Kaupandinn fær til baka skilaboð um
fimm stafa númer sem hann skrifar í
frímerkjahorn umslagsins eða um-
slaganna og póstleggur svo. Gildir
þetta aðeins um venjuleg bréf, innan-
lands. Verðið er það sama og á hefð-
bundnum frímerkjum. Andvirðið
gjaldfærist á símreikninginn. Númer-
in eru sannreynd á póstmiðstöð og
gengið úr skugga um gildi þeirra.
Samkvæmt upplýsingum Íslands-
pósts var á síðasta ári selt 13.601
SMS-frímerki.
Til samanburðar má nefna að á
sama ári voru seldar 2,7 milljónir frí-
merkja og tæplega 6,6 milljónir bréfa
voru árituð með burðargjaldi. Áritunin
hefur því tekið öll völd en frímerkjasal-
an hefur minnkað hratt á undanförn-
um árum, bæði sem burðargjald og
sala til safnara. helgi@mbl.is
Burðargjald með SMS
Minnihluti bréfa greiddur með frímerkjum
Erna Finnsdóttir lést á
Hjúkrunarheimilinu
Sóltúni í gærmorgun,
95 ára að aldri.
Hún fæddist í
Reykjavík 20. mars
1924, dóttir Finns Sig-
mundssonar, lands-
bókavarðar í Reykja-
vík, og konu hans
Kristínar Aðalbjargar
Magnúsdóttur hús-
freyju. Bróðir Ernu
var Birgir Finnsson (f.
1927, d. 2003), for-
stöðumaður Tjaldanes-
heimilisins í Mosfells-
sveit.
Erna lauk stúdentsprófi frá mála-
deild Menntaskólans í Reykjavík
17. júní 1944 og var því 75 ára stúd-
ent á þessu ári. Hún stundaði jafn-
framt píanónám.
Erna giftist 6. júlí 1947 Geir Hall-
grímssyni, síðar borgarstjóra, ráð-
herra og seðlabankastjóra í Reykja-
vík, f. 16. desember 1925. Hann var
einnig í stjórn Árvakurs hf., útgef-
anda Morgunblaðsins og stjórn-
arformaður um skeið. Foreldrar
Geirs voru Hallgrímur Benedikts-
son, stórkaupmaður í Reykjavík, og
kona hans Áslaug
Geirsdóttir Zoëga,
húsfreyja. Erna og
Geir bjuggu alla tíð í
Reykjavík nema á ár-
unum 1947-1949 þegar
þau bjuggu í Boston
þar sem Geir stundaði
nám í hagfræði og
elsti sonurinn fæddist.
Börn Ernu og Geirs
eru:
1) Hallgrímur, f.
1949. Eiginkona hans
er Aðalbjörg Jak-
obsdóttir, f. 1949.
Dóttir þeirra er Erna
Sigríður, f. 1972. 2) Kristín, f. 1951,
eiginmaður hennar er Freyr Þór-
arinsson, f. 1950. Synir þeirra eru
Þórarinn, f. 1973, og Geir, f. 1978. 3)
Finnur, f. 1953, eiginkona hans er
Steinunn Kristín Þorvaldsdóttir, f.
1953. Börn þeirra eru Kári Finns-
son, f. 1987, Geir Finnsson, f. 1992,
og Elísabet Þórðardóttir, f. 1979. 4)
Áslaug, f. 7. október 1955. Sonur
hennar er Geir Áslaugarson, f.
1997.
Morgunblaðið sendir fjölskyldu
Ernu og öðrum aðstandendum inni-
legar samúðarkveðjur.
Andlát
Erna Finnsdóttir
Hann virtist skríða löturhægt
framhjá, risinn sem sást frá Grafar-
vogi nýverið, en skemmtiferðaskip
þetta var þá á leið til hafnar á
höfuðborgarsvæðinu. Landinn er
fyrir löngu orðinn vanur þessum
heimsóknum, en skipin eru sögð
mikil búbót fyrir bæði hafnir og
sveitarfélög landsins.
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Risar algeng sjón við strendur landsins
Katrín Jakobs-
dóttir, forsætis-
ráðherra, hefur
lýst sig reiðubúna
til að funda með
Mike Pence,
varaforseta
Bandaríkjanna,
að lokinni Sví-
þjóðarferð sinni,
geti varaforset-
inn framlengt Ís-
landsdvöl sína. Lára Björg Björns-
dóttir, upplýsingafulltrúi ríkis-
stjórnarinnar, staðfesti þetta í
samtali við mbl.is í gær.
Jeffrey Ross Gunther, nýskipaður
sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi,
kom til fundar við forsætisráðherra í
stjórnarráðinu í gær. Á fundinum
var meðal annars ræddur sá mögu-
leiki að Pence myndi framlengja Ís-
landsheimsókn sína þannig að for-
sætisráðherrann og varaforsetinn
ættu möguleika á að hittast. Lýsti
Katrín sig reiðubúna að funda með
Pence ef þetta gengi eftir.
annaei@mbl.is
Katrín vill
hitta Pence
Sendiherra á fundi
með forsætisráðherra
Katrín
Jakobsdóttir