Fréttablaðið - 28.09.2019, Page 4
Kristín Eysteinsdóttir
leikhússtjóri í Borgarleikhúsinu
var í Héraðsdómi
Reykjavíkur í
vikunni þar
sem hún verst
málsókn
leikarans
Atla Rafns
Sigurðssonar
á hendur henni
og Leikfélagi Reykja-
víkur. Atli krefst 13 milljóna króna í
bætur í kjölfar þess að Kristín sagði
honum upp störfum eftir að henni
bárust kvartanir um meinta kyn-
ferðislega áreitni og ofbeldi Atla
gagnvart samstarfsfólki.
Haraldur Johannessen
ríkislögreglustjóri
var í eldlínunni í
vikunni þegar
átta af níu lög-
reglustjórum
landsins
sögðust
ekki lengur
bera traust til
hans og formað- ur
Lögreglustjórafélags Íslands sagðist
líta svo á að ríkislögreglustjóri
væri óstarfhæfur. Landssamband
lögreglumanna samþykkti einnig
vantraust á Harald.
Magnúsi Ólafi Garðarssyni
stofnanda United Silicon
er stefnt vegna
meintra fjár-
svika upp á
samtals 1,8
milljarða
króna sam-
kvæmt þrem-
ur stefnum
sem lagðar hafa
verið fram. Hin meintu fjársvik
Magnúsar eru á sama tíma enn í
rannsókn hjá héraðssaksóknara.
Lögmaður þrotabús Sameinaðs silí-
kons hf. segir ekki liggja fyrir hvort
þrotabúið höfði fleiri dómsmál á
hendur Magnúsi.
®
37” BREYTTUR
NÝR RAM 3500
NÝTT GLÆSILEGT ÚTLIT. NÝJAR ÚTFÆRSLUR
OG FJÖLMARGAR TÆKNINÝJUNGAR Í BOÐI.
EIGUM TIL CREW CAB BIG HORN, LARAMIE, SPORT OG
LIMITED ÚTFÆRSLUR TIL AFGREIÐSLU STRAX.
EINNIG MEGA CAB Í LARAMIE OG LIMITED ÚTFÆRSLUM .
RAM 3500 VERÐ FRÁ: 6.987.745 KR. ÁN VSK.
RAM 3500 VERÐ FRÁ: 8.640.000 KR. M/VSK.
ramisland.is
CREW CAB
UMBOÐSAÐILI RAM TRUCKS Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 534 4433 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
Þrjú í fréttum
Leikhúsdeila,
lögregluerjur og
milljarðakrafa
87
flugmönnum
hefur verið
sagt upp hjá
Icelandair.
TÖLUR VIKUNNAR 22.09.2019 TIL 28.09.2019
27,8
prósent erlendra ferða-
manna á Íslandi í sumar
komu frá Bandaríkjunum.
100
starfsmönnum
Arion banka
var sagt upp á
fimmtudag. 8
sóttu um tvær stöður
hæstaréttardómara sem
losna á næstunni.
4
nýjar ríkisstofnanir verða
settar á laggirnar gangi
áform ríkisstjórnarinnar
eftir.
2
lögreglumenn hafa
kvartað undan einelti
af hálfu Haraldar Jo-
hannessen ríkislög-
reglustjóra.
HEILBRIGÐISMÁL „Skipurit og skipu-
lag spítala þarf alltaf að endurspegla
þá þjónustu sem verið er að veita.
Þjónustan hefur breyst mikið á síð-
ustu fimm til tíu árum og það er því
eðlilegt að breyta skipuritinu,“ segir
Páll Matthíasson, forstjóri Land-
spítala, um nýtt skipurit spítalans
sem kynnt var í gær.
Skipulagsbreytingarnar munu
taka gildi 1. október næstkomandi
en þær voru staðfestar af heilbrigð-
isráðherra síðastliðinn mánudag.
Með breytingunum verður starf-
semi sjö klínískra sviða og rekstrar-
sviðs skipt milli þriggja sviða sem
eru meðferðarsvið, aðgerðasvið og
þjónustusvið. Þá verður fækkað í
framkvæmdastjórn spítalans.
Páll segir þessar breytingar vissu-
lega gerðar í skugga en alls ekki
vegna rekstrarvanda. Hagræðing-
araðgerðir séu á dagskrá og strax
muni til dæmis sjást áhrif með því
að dregið verði úr launakostnaði
yfirstjórnar.
„Aðalmálið er samt að með
því að endurskipuleggja og raða
saman einingum sem eiga að vinna
saman, þá náum við meira virði út
úr þjónustunni. Það mun til lengri
tíma skila rekstrarábata en auð-
vitað dugar þetta ekki eitt og sér.
Við erum líka að fara í umtalsverðar
hagræðingaraðgerðir af ýmsu tagi.“
Önnur ástæða breytinganna sé
sú staðreynd að eftir fimm ár verði
nýir meðferðar- og rannsóknar-
kjarnar teknir í notkun. „Húsnæði
nýja spítalans er hannað í kringum
besta mögulega verklag í klínískum
fræðum, sem er ekki endilega á
þann veg sem við vinnum núna.
Við þurfum að hugsa hvernig við
verðum í nýjum spítala og skipu-
leggja okkur í samræmi við það.“
Mikið álag á bráðamóttöku spít-
alans hefur verið til umfjöllunar
að undanförnu og starfsfólk lýst
áhyggjum sínum af ástandinu. Páll
segir að með þeim breytingum sem
verið sé að gera verði bráðaþjón-
usta sérkjarni undir sama sviði og
framkvæmdastjóra og þær deildir
sem taka við flestum sjúklingum af
bráðadeild.
Páll segir bráðamóttökuna frá-
bæra einingu til að sinna sínum
verkefnum. Vandinn sé sá að hún
þurfi að sinna öðrum verkefnum
sem sé að vera legudeild fyrir
sjúklinga sem komast ekki inn á
spítalann.
„Þannig að allar breytingar sem
bæta skilvirkni hjá okkur, hvar sem
vera kann á spítalanum, munu þar
með hafa áhrif á ástandið á bráða-
móttökunni. En það þarf f leira til
og raunar sértækar aðgerðir og við
erum að skoða hvað hægt sé að gera
í þeirri erfiðu stöðu sem uppi er á
bráðamóttökunni í Fossvogi.“
Kjarasamningar stærstu heil-
brigðisstéttanna eru lausir og miðar
viðræðum hægt. Páll segir þessa
biðstöðu áhyggjuefni. Tilrauna-
verkefni til að laða að hjúkrunar-
fræðinga sem fólst í bættum kjörum
og starfsaðstæðum hafi virkað en
því þurfi að hætta vegna þess að það
sé ófjármagnað. „Þetta er að okkar
mati mikilvægt innlegg í samninga-
viðræðurnar en er ekki eitthvað
sem við getum áfram borið ábyrgð
á. Við verðum að fá bætur fyrir þau
laun sem við greiðum.“
Tvennt hafi einkum verið að
sliga spítalann umfram annað,
erfiðleikar við mönnun í hjúkrun
og ónógar launabætur af hálfu rík-
isins. „Þetta eru hvort tveggja hlutir
sem eru utan okkar stjórnar en við
erum líka að taka til í okkar ranni
og reyna að hagræða og vera með
aðhald í öllu sem ekki lýtur beint
að þjónustu við sjúklinga.“
sighvatur@frettabladid.is
Breytingar í skugga en ekki
vegna rekstrarvanda spítalans
Rekstrarhalli spítalans nam um 2,4 milljörðum á fyrrihluta 2019 og 1,4 milljörðum í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Nýtt skipurit Land-
spítala var kynnt í gær.
Forstjórinn segir skipu-
lagið þurfa að endur-
spegla þjónustuna.
Áfram verði unnið að
ýmsum hagræðingarað-
gerðum.
Við erum að skoða
hvað hægt sé að
gera í þeirri erfiðu stöðu sem
uppi er á bráðamóttökunni í
Fossvoginum
Páll Matthíasson, forstjóri
Landspítalans
2 8 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
8
-0
9
-2
0
1
9
0
4
:5
2
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
E
6
-B
B
6
0
2
3
E
6
-B
A
2
4
2
3
E
6
-B
8
E
8
2
3
E
6
-B
7
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
0
4
s
_
2
7
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K