Fréttablaðið - 28.09.2019, Qupperneq 10
SJÁVARÚTVEGSMÁL Atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytið hefur sent
Fiskistofu leiðbeiningar um túlkun
og framkvæmd laga um stjórnun
fiskveiða þar sem útgerðir höfðu
f lutt makrílkvóta á krókaaf la-
marksskip í jöfnum skiptum fyrir
þorsk yfir á aflamarksbáta. Í lögum
um stjórn fiskveiða er á hreinu að
flutningur veiðiheimilda frá króka-
aflamarki til aflamarksbáta er með
öllu óheimill.
Þegar lög voru sett um stjórn
veiða á makríl var úthlutað bæði til
aflamarksbáta og krókaaflamarks-
báta. Síðan gerist það að hægt var
að flytja aflamark í makríl frá afla-
marksskipum til krókaaflamarks-
skipa og jafna það út með veiði-
heimildum í öðrum tegundum.
Ráðuneytið hefur því ákveðið að
útskýra lög um stjórn fiskveiða fyrir
Fiskistofu.
Fréttablaðið sagði frá því í vik-
unni að Landssamband smábáta-
eigenda, LS, teldi krókaaflamarks-
kerfið hafa orðið fyrir skipulegri
árás þar sem útgerðarmenn hafi
nýtt sér gloppu í regluverkinu.
Telja þeir óskiljanlegt að leyft hafi
verið að f lytja aflamark úr króka-
aflamarkskerfinu yfir á skip í afla-
marki.
Í bréfi ráðuneytisins segir að
f lutningur krókaf lamarks í bol-
fisk úr krókaaf lamarkskerfinu sé
takmarkaður og ekki sé ætlunin að
opna fyrir f lutning bolfiskheimilda
úr krókaaf lamarkskerfinu yfir á
aflamarksbáta.
„Af framangreindu leiðir að þær
tilfærslur þar sem krókaf lamark
hefur verið látið til aflamarksskipa
í B f lokk í skiptum fyrir aflamark í
makríl eru í bága við ákvæði laga
um stjórn fiskveiða.
Ákvörðun um flutning aflamarks
á milli skipa er stjórnvaldsákvörð-
un,“ segir í bréfi ráðuneytisins til
Fiskistofu.
„Um afturköllun ólögmætra
ákvarðana er fjallað í 25. gr. stjórn-
sýslulaga og telur ráðuneytið til-
efni til að Fiskistofa skoði hvort
ástæða sé að beita þeim heimildum
varðandi f lutning á krókaflamarki
til aflamarksskipa fyrir aflamark í
makríl.“
Í lögum um stjórn fiskveiða segir
að útgerðaraðila fiskiskips er heim-
ilt að f lytja aflamarkið milli skipa
ef veiðiheimildir skipsins verði ekki
umfram getu skipsins til veiða.
Ráðuneytið bendir Fiskistofu á
að kerfisbundnar færslur sem hafI
þann tilgang að sniðganga ákvæði
laga um stjórn fiskveiða með eins-
konar „f lutnings-hringekju“ kalli
á alvarlega athugun Fiskistofu um
það hvort slíkir af lamarksf lut-
nignar rúmist innan heimildar
ákvæðisins.
sveinn@frettabladid.is
Flutningshringekja kallar á
alvarlega athugun Fiskistofu
Skýrt er í lögum að ekki má flytja veiðiheimildir frá krókaaflamarksbátum
yfir á aflamarksbáta. Það hefur hins vegar verið gert. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Í bréfi til Fiskistofu
leiðbeinir ráðuneyti
sjávarútvegsmála um
fyrirkomulag stjórn-
unar fiskveiða. Vill
ráðu neytið að Fiskistofa
kanni hvort afturkalla
eigi þær ólögmætu
ákvarðanir sem flutn-
ingur veiðiheimilda
frá krókaaflamarki til
aflamarks báta er.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
5
1
1
4
H
y
u
n
d
a
i
i2
0
a
lm
e
n
n
5
x
2
0
á
g
ú
s
t
Hyundai | Kauptúni 1 | Sími 575 1200 | www.hyundai.is
Nýr og spennandi
Hyundai i20.
Sýndu skynsemi. Veldu nýjan i20.
Nýr i20 er fáanlegur með sjálfvirkri neyðarhemlun, akreinavara og sjálfvirkri hækkun og lækkun
aðalljósa. Innréttingin hefur fengið nýtt og vandaðra yfirbragð, nýr 7" snertiskjár nýtir sér
fullkomnustu margmiðlunartækni á borð við Apple CarPlay™ og Android Auto™.
Verið velkomin að reynsluaka nýjum og glæsilegum Hyundai i20.
Verð frá:
2.390.000 kr.
Hyundai býður viðskiptavinum sínum upp á eina víðtækustu
ábyrgð sem völ er á. Öllum Hyundai bílum fylgir 5 ára
verksmiðjuábyrgð og ótakmarkaður akstur.
OPIÐ Í DAG FRÁ 12–16
STJÓRNSÝSLA Hreinn Loftsson og
Eydís Arna Líndal hafa verið ráðin
aðstoðarmenn Áslaugar Örnu Sig-
urbjörnsdóttur dómsmálaráðherra.
Hreinn Loftsson lauk laganámi
við Háskóla Íslands árið 1983 og
öðlaðist réttindi til málf lutnings
fyrir Hæstarétti árið 1993.
Hreinn á að baki fjölbreyttan
feril í lögmennsku, atvinnulífi,
stjórnsýslu og sem aðstoðarmaður
ráðherra í nokkrum ráðuneytum
frá árinu 1985 til 1992, þar á meðal
Davíðs Oddssonar í forsætisráðu-
neytinu.
Hreinn aðstoðar
nýjan ráðherra
Hreinn
Loftsson
lögmaður.
Hreinn starfaði sem lögmaður,
fyrst á eigin stofu og síðan sem
meðeigandi lögmannsstofunnar
að Höfðabakka.
Frá 2014 hefur Hreinn starfað
sjálfstætt. Hann hefur setið í
stjórnum fjölmargra fyrirtækja, til
að mynda í stjórn Baugs Group og í
fjölda nefnda og félaga, auk starfs á
vettvangi stjórnmála.
Eydís Arna lauk MA-prófi í lög-
fræði frá Háskóla Íslands 2016 en
starfaði á lögmannsstofunni Laga-
þingi frá árinu 2011, fyrst í hluta-
starfi með námi, en síðar sem lög-
fræðingur.
Eydís hefur að undanförnu verið
starfsmaður þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins. - la
Tilfærslur þar sem
krókaflamark hefur
verið látið til aflamarks-
skipa í B flokk í skiptum
fyrir aflamark í makríl eru í
bága við ákvæði laga.
Úr bréfi atvinnu- og nýsköpunar-
ráðuneytisins til Fiskistofu
2 8 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
8
-0
9
-2
0
1
9
0
4
:5
2
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
E
6
-D
D
F
0
2
3
E
6
-D
C
B
4
2
3
E
6
-D
B
7
8
2
3
E
6
-D
A
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
0
4
s
_
2
7
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K