Fréttablaðið - 28.09.2019, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 28.09.2019, Blaðsíða 16
Netógnir í nýjum heimi er viðfangsefni ráðstefnu sem samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið heldur um netöryggismál. Ráðstefnan verður haldin í Veröld – húsi Vigdísar fimmtudaginn 3. október í tilefni af evrópska netöryggismánuðinum í október. Allir eru velkomnir en skráning er á vef ráðuneytisins. Dagskrá: 09:00 — Ávarp Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra 09:10 — Nýir tímar – ný umgjörð Sigríður Rafnar Pétursdóttir, lögfræðingur hjá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu 09:30 — Netbrot, nálgun og sýn lögreglu Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu 09:50 — Samhæfing í netöryggismálum – hlutverk PFS Unnur Sveinbjarnardóttir, lögfræðingur hjá Póst- og fjarskiptastofnun 10:10 — Kaffi 10:25 — IPv6: Keyrum þetta af stað Tryggvi Farestveit, forstöðumaður hýsingarlausna hjá Opnum kerfum 10:45 — Tæknilegt líf ungra barna – byggjum traustan grunn Hildur Halldórsdóttir, verkefnastjóri hjá Heimili og skóla og SAFT 11:05 — Straumurinn og upplýsingaöryggi á Stafrænu Íslandi Vigfús Gíslason, tækniarkitekt og sérfræðingur hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu 11:25 — 4. iðnbyltingin: Öld tækifæra – ef öryggið er í öndvegi Sigurður Emil Pálsson, formaður Netöryggisráðs, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu Fundarstjóri er Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri. Netógnir í nýjum heimi ÚKRAÍNA Úkraínska stofnunin gegn spillingu rannsakar Burisma Group, gasfélagið sem Hunter Biden, sonur forsetaframbjóðandans og fyrrum varaforseta Bandaríkjanna, Joe Biden, vann hjá. NABU staðfesti þetta í gær. Í tilkynningu kemur fram að úkraínsk yfirvöld séu ekki að rann­ saka Hunter Biden sjálfan, heldur hafi þau hafið rannsóknina löngu áður en Hunter byrjaði að vinna hjá fyrirtækinu. Fjölmiðlar vestanhafs keppast við að fjalla ítarlega um nýjasta hneykslið og uppljóstrunarmálið er varðar símtal sem Donald Trump Bandaríkjaforseti átti við nýkjör­ inn forseta Úkraínu, Volódómír Zelenskíj. Hvíta húsið gaf út eftirrit af umræddu símtali þar sem fram kemur að Trump hafi beðið for­ seta Úkraínu um að rannsaka son Bidens og Biden. Í staðinn myndu Bandaríkin veita Úkraínu fjögur hundruð milljóna dala hernaðar­ að stoð, en Trump á að hafa skipað Mick Mulvaney, starfsmannastjóra Hvíta hússins, að halda eftir styrkn­ um viku áður en hann átti símtalið. Fulltrúadeild Bandaríkjaþings ákvað að hefja formlega rannsókn á embættisbrotum Trumps. Um 219 þingmenn Demókrataflokksins styðja ákæruferlið að því er fram kemur á vef CNN. Að sögn uppljóstrarans reyndi Hvíta húsið að hylma yfir símtalið með því að fela eftirritið í háleyni­ legu tölvukerfi sem er eingöngu ætlað gögnum er varða þjóðar­ öryggi. Hvíta húsið hefur staðfest að lögfræðingar öryggisráðs Banda­ ríkjanna hafi skipað starfsmanni í Hvíta húsinu að f lokka eftirritið sem háleynilegt trúnaðarmál. -ilk Úkraínsk yfirvöld segjast ekki rannsaka Biden Hart er sótt að Donald Trump vegna símtals til Úkraínu. NORDICPHOTOS/GETTY Hvíta húsið hefur staðfest að lögfræðingar öryggisráðs Bandaríkjanna hafi skipað starfsmanni í Hvíta húsinu að flokka eftirritið sem háleynilegt trúnaðarmál. NÍGERÍA Um þrjú hundruð drengj­ um var bjargað í gær í norðanverðri Nígeríu. Þeim var haldið föngum og máttu þola barsmíðar og kynferðis­ of beldi. Drengirnir voru auk þess sveltir í prísundinni. Yngstu drengirnir sem voru frelsaðir í aðgerðum lögreglu voru um fimm ára gamlir og þeir elstu rétt undir átján ára. Þeir voru bæði bundnir á höndum og fótum. Lögreglan í Kaduna segir að fjöldi barnanna hafi verið með sýnilega áverka eftir pyntingar. Þeim var haldið í húsi sem átti að vera grunn­ skóli. Einn drengurinn var til að mynda þakinn svipuförum á baki. Þau áttu erfitt með gang. Átta hafa verið handteknir í tengslum við rannsókn málsins og eru þau öll kennarar. Ekki er vitað hversu lengi börnin þurftu að þola þessar raunir en eitt barnanna sagði að hann hafi verið hlekkjaður í kjallara hússins í um þrjá mánuði. Sumir krakkanna hefðu ekki mátt fara úr skólanum í nokkur ár. Einn fanganna sagði um mús­ límskan skóla að ræða þar sem krakkarnir hefðu átt að læra Kóran­ inn. Hörð viðurlög voru hins vegar við því að reyna að flýja skólann og krakkar barðir og pyntaðir fyrir til­ raunir til að flýja. - sa Börn frelsuð úr prísund Átta hafa verið hand- teknir í tengslum við rann- sókn málsins og eru þau öll kennarar. Lokuðu Washington fyrir loftslagið Mótmælendur komu saman í Washington DC í gærmorgun, lokuðu fjölförnum umferðargötum á hánannatíma og kröfðust þess að notkun jarð- efnaeldsneytis yrði strax hætt og að skipt yrði yfir í endurnýjanlega orkugjafa hið fyrsta til að bjarga loftslagi jarðarinnar. NORDICPHOTOS/GETTY 2 8 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R16 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 8 -0 9 -2 0 1 9 0 4 :5 2 F B 1 0 4 s _ P 1 0 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 8 9 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 E 6 -A 2 B 0 2 3 E 6 -A 1 7 4 2 3 E 6 -A 0 3 8 2 3 E 6 -9 E F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 1 0 4 s _ 2 7 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.