Fréttablaðið - 28.09.2019, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 28.09.2019, Blaðsíða 20
Tekjur frá styrktar­ aðilum og sjónvarpsútsend­ ingum hafa hækkað umtals­ vert en leikdagur hefur skilað svipuðum tekjum síðustu ár. 96 Tekjur Manchester United á árinu voru 96 milljarðar. 2 8 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R20 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT FÓTBOLTI Enska knattspyrnufélagið Manchester United birti í vikunni ársreikning sinn. Þrátt fyrir að all- f lestir stuðningsmenn keppist við að finna eigendum félagsins, Gla- zier-fjölskyldunni, allt til foráttu vegna slæms gengis karlaliðs félags- ins þá verður ekki af Ed Woodward, stjórnarformanni félagsins, tekið að hann er slyngur rekstrarmaður. Woodward sagði í samtali við fjölmiðla þegar hann kynnti árs- reikning félagsins að sú staðreynd að liðið leiki ekki í Meistaradeild Evrópu hafi vissulega slæm áhrif á fjárhagsstöðuna. Taka þurfi tillit til þess við gerð áætlunar um að koma liðinu aftur í fremstu röð. Mark- miðið sé hins vegar að vera farin að keppa um stóru titlana sem í boði eru eftir tvö til þrjú ár. Manchester United skilaði tekj- um upp á 627,1 millj ón punda sem samsvarar tæplega 96 millj- örðum  sem er met hjá fé lag inu. Hagnaður fjár hags árs ins var svo 7,7 milljarðar. Fram kemur í ársreikningum að samkvæmt könnun sem fram- kvæmd var fyrr á þessu ári eigi Manchester United 1,1 milljarða stuðningsmenn á heimsvísu, sam- anborið við tæplega 700.000 millj- ónir árið 2011. Þessi fjöldi stuðn- ingsmanna sem kemur hvaðanæva að úr heimskringlunni verður til þess að félagið hefur getað aukið auglýsingatekjur sínar úr rúmlega 30 milljörðum íslenskra króna í um það bil 42 milljarða. Þá hafa tekjur vegna sjónvarpsút- sendinga meira en tvöfaldast úr 16 milljörðum í 38 milljarða. Tekjur af leikdegi hafa hins vegar verið í kringum tæpa 17 milljarða síðustu fjögur tímabil. Margir öflugir styrktaraðilar treysta fjárhaginn Það er varla til sú vörutegund þar sem Manchester United er ekki með ákveðið vörumerki sem merki félagsins. Þá er mismunandi eftir löndum hvaða vörumerki eru opin- ber stuðningsaðili félagsins. Félagið er til dæmis með samning við gos- drykkjaframleiðanda í Nígeríu, kínveskan koddaframleiðanda og fjármálafyrirtæki í Ekvador. Vilji stuðningsmenn Manchester United gera sér glaðan dag er þeim uppá- lagt að drekka léttvín frá Casillero del Diablo og viskí frá Chivas. Styrktarsamningar félagsins eiga Ólíkt gengi innan vallar og utan hans Ekki er samhljómur á milli árangurs Manchester United innan vallar og utan. Á meðan lægð er yfir knattspyrnulegum árangri græðir félagið á tá og fingri. Þá hefur stuðningsmönnum félagsins fjölgað síðasta áratuginn og tekjur félagsins hækkað umtalsvert.   HANDBOLTI Íslenska kvennalands- liðið mætir Frakklandi í öðrum leik Íslands í undankeppni EM 2021 um helgina. Leikurinn fer fram í Laugar- dalshöll og verður því fyrsti heima- leikur liðsins undir stjórn Arnars Péturssonar, sem tók við liðinu í sumar.  Stelpurnar okkar fengu útreið í síðasta leik  þegar Króatía vann 29-8 sigur á Íslandi ytra og verður andstæðingurinn ekki auðveld- ari á sunnudaginn. Franska liðið er ríkjandi Heims- og Evrópumeistari ásamt því að vinna til silfurverð- launa á Ólympíuleikunum í Ríó árið 2016. Karen Knútsdóttir, leikmaður íslenska liðsins, viðurkenndi að leikmenn liðsins hefðu verið með óbragð í munninum eftir leikinn í Króatíu. „Við erum búin að fara vel yfir síðasta leik, maður lærir oftast mest af því þegar maður er alveg úti að aka. Ég hef tapað leikjum með stærri mun með landsliðinu en til- finningin eftir þennan leik var held ég sú versta á ferlinum. Þetta virtist hálf óraunverulegt.“ Karen kannast við nokkra leik- menn franska liðsins og þjálfarann. „Þar eru bæði fyrrum liðsfélagar og þjálfari minn frá því hjá Nice. Það verður áhugavert að sjá hvern- ig þær mæta inn í leikinn eftir að hafa séð úrslitin úr okkar leik gegn Króatíu. Ég skoðaði úrslitin úr öðrum leikjum og það virðist vera gríðarlega mikill munur á liðunum sem eru yfirleitt á EM og þeim sem eru að reyna að komast inn, bilið er svakalega breitt.“ K a ren verðu r u m helg ina Vorum með óbragð í munnium eftir leikinn gegn Króatíu Karen hefur stýrt sóknarleik Íslands undanfarin ár. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR sú níunda sem nær að leika hundrað leiki fyrir íslenska kvennalands- liðið á eftir  Önnu Úrsúlu Guð- mundsdóttur, Örnu Sif Pálsdóttur, Berglindi Írisi Hansdóttur, Dagnýju Skúladóttur, Hönnu Guðrúnu Stef- ánsdóttur, Hrafnhildi Ósk Skúla- dóttur, Rakel Dögg Bragadóttur og liðsfélaga Karenar hjá Fram og landsliðinu, Þórey Rósu Stefáns- dóttur, sem lék 100. landsleik sinn fyrr á árinu. „Þetta þýðir víst að maður er far- inn að eldast,“ sagði Karen hlæjandi og hélt áfram: „Auðvitað er ég stolt af því að ná þessum áfanga og þakk- lát fyrir tækifærin þótt að ég hafi ekkert verið að velta mér upp úr þessu. Ég mun ef til vill finna fyrir meira stolti yfir þessu seinna þegar ég lít til baka eftir ferilinn,“ sagði Karen. - kpt Ed Woodward hefur heillað hluthafa Manchester United en stuðningsmenn liðsins eru hins vegar fæstir ánægðir með störf hans. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY á bilinu tvö til fimm ár eftir af gild- istíma sínum og tæplega helmingur af tekjum félagsins koma úr þessum samningum. Því er fjárhagsstaða félagsins mjög trygg næstu árin óháð því hvort að liðið komist í Meistaradeild eður ei þrátt fyrir að tekjur félagsins aukist auðvitað umtalsvert takist því að tryggja sér sæti þar næsta vor. Til þess að mæta því tekjutapi sem verður vegna þess að liðið leikur í Evrópudeildinni í stað Meistaradeildar Evrópu á yfir- standandi leiktíð og minnka fjár- hagslegan skaða af því að spila mögulega ekki í Meistaradeildinni á næstu leiktíð, þá eru samningar leikmanna liðsins þannig upp settir að launaliðurinn er minnkaður en bónusar vegna þátttöku í riðla- keppni Meistaradeildarinnar og svo útsláttarkeppni þeirrar keppni hækkaðir. Tekjur af fjölmiðlaútsendingum gætu minnkað á næstu árum Hins vegar gætu tekjur félagsins vegna fjölmiðlaréttinda á evrópska efnahagssvæðinu (EES) minnkað í náinni framtíð vegna mögulegra takmarkana af hendi breskra yfir- va ld a ,   f r a m k væmd a st jór na r Evrópusambandsins eða Evr- ópudómstólsins. Framk væmd samkeppnislaga og breytingar á höfundaréttarreglum gætu krafist breytinga á sölulíkani félagsins. Þessar reglur  gætu einnig haft neikvæð áhrif á þá upphæð sem höfundaréttarhöfundar eins og enska úrvalsdeildin getur fengið fyrir  hagnýtingu réttinda innan ESB. Fyrir vikið gætu útsendingar- tekjur  félagsins af sölu þessara réttinda minnkað á næstu árum. Líklegt er svo að mati félagsins að í framtíðinni muni framkvæmda- stjórn Evrópusambandsins setja reglugerð varðandi veitingu einka- réttar á efni innan EES þar sem sala á efni með gervihnatta- eða net- sendingum  yfir landamæri verði annðhvort bönnuð eða takmörkuð. Nú hefur Woodward heillað þá aðila sem tengjast félaginu og hafa áhuga á fjármálum og rísandi tekju- myndun. Verkefni hans að búa til sigursælt lið hefur hins vegar ekki gengið nægjanlega vel og ólíklegt að þessi ársreikningur  rói stuðings- menn félagsins náist ekki hagstæð úrslit í leik liðsins gegn  Arsenal í stórleik  umferðarinnar í ensku úrvalsdeildinni á mánudaginn.  hjorvaro@frettabladid.is 2 8 -0 9 -2 0 1 9 0 4 :5 2 F B 1 0 4 s _ P 0 8 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 E 6 -C 5 4 0 2 3 E 6 -C 4 0 4 2 3 E 6 -C 2 C 8 2 3 E 6 -C 1 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 1 0 4 s _ 2 7 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.