Fréttablaðið - 28.09.2019, Qupperneq 30
Eftir að medalíumálið kom upp fékk Sigfús fá tækifæri á atvinnumarkaði. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Mikael og Boris Akachev í nokkur
ár og spiluðum svolítinn Rússa-
bolta. Fá leikkerfi en allt niður-
njörvað.“
Eftir stutt stopp hjá Selfossi hélt
Sigfús út í atvinnumennskuna til
Caja Santander haustið 1998. Utan
vallar var lífið hins vegar að fara af
hjörunum.
„Á Spáni var ég með mikið milli
handanna en áfengi og allt annað
var mjög ódýrt,“ segir Sigfús. Hann
glímdi þá við mikla áfengis- og
fíkniefnaneyslu. „Samningnum
mínum var rift í lok desember og
ég sendur heim. 11. janúar var ég
kominn í meðferð. Eftir meðferðina
spilaði ég tvo eða þrjá leiki en svo
ekkert í tvö ár. Ég var brotinn líkam-
lega og andlega og þurfti tíma til að
vinna í að halda mér edrú. Það var
ekki fyrr en ég fór í prógrammið,
kom hausnum á mér í lag og fór að
geta hjálpað öðrum að ég gat farið
að æfa aftur.“
Sigfús fagnar nú 20 allsgáðum
árum en hann segir það fyrsta hafa
verið erfiðast. Aðallega af því að
hann streittist við að fylgja „pró-
gramminu“. „Á þrjóskunni hætti
ég að að drekka og nota fíkniefni
en ég vildi ekki vinna prógrammið
þó að ég mætti á fundina. Ég var
eins og hungraður maður sem kom
með steik úr búðinni en gerði ekkert
nema stara á hana. En á endanum
beit ég, fór að gera upp fortíðina og
hreinsa til í lífinu. Loksins fór ég að
skilja að heimurinn skuldaði mér
ekkert en ég skuldaði heiminum.“
Aðspurður um hvernig hann
fór að því að vera meðal fremstu
íþróttamanna þjóðarinnar samfara
því að vera í óreglu segir hann stífar
æfingar hafa skipt þar mestu. „Við
æfðum 10 til 12 æfingar á viku og
spiluðum leiki, bæði með meistara-
flokki og yngri f lokki. Við æfðum
líka mikið aukalega. Ég þekkti ekk-
ert annað,“ segir hann.
Fær enn skilaboð
Í nóvember árið 2000 byrjaði
Sigfús að æfa aftur eins og skepna.
Hann var kominn aftur í Valsliðið
í febrúar og í landsliðið um vorið.
Haustið 2001 voru atvinnumanna-
lið í Þýskalandi farin að bera
víurnar í hann. Ákvað hann þá að
fara til Magdeburg sumarið 2002
og var þar í fjögur ár undir hand-
leiðslu þjálfarans Alfreðs Gísla-
sonar. Sigfús hugsar til þessara ára
með miklum hlýhug.
„Íslendingar átta sig ekki á því
hvað handboltinn er stór úti í
heimi,“ segir Sigfús. „Ég er enn að fá
15 eða 20 skilaboð á viku frá aðdá-
endum í Þýskalandi.“
Sigfús segir að klúbbarnir erlend-
is haldi einstaklega vel utan um
leikmenn og verji þá fyrir áreiti. En
starfið felist ekki aðeins í leikjum
og æfingum, heldur einnig heim-
sóknum til stuðningsmannaklúbba
og styrktaraðila og f leira. Pressan
var mikil en það hjálpaði Sigfúsi að
hafa íslenskan kjarna í Magdeburg.
Auk Alfreðs spiluðu bæði Ólafur
Stefánsson og Arnór Atlason með
liðinu.
Eftir dvölina í Þýskalandi spilaði
Sigfús með Ademar Leon á Spáni og
eftir Ólympíuleikana í Peking árið
2008 spilaði hann tvö tímabil með
Val.
„Vorið 2010 var mér tilkynnt
að minna krafta væri ekki óskað
lengur hjá Val, það kom flatt upp á
mig. Ég var 35 ára og fannst ég eiga
nóg inni,“ segir Sigfús. „Eftir hálft
ár af hreyfingarleysi hafði Patrekur
Jóhannesson samband og fékk
mig út til Emstetten í Þýskalandi.“
Álagið á líkamann var þó farið að
segja til sín. „Skrokkurinn á mér var
orðinn hálfskemmdur. Fyrir stóran
mann eins og mig verður þetta erfitt
þegar hnén eru farin að gefa sig og
bakið orðið stíft.“ Sigfús gaf þó ekk-
ert eftir í æfingum og Emstetten var
nálægt því að komast upp í þýsku
úrvalsdeildina. „Ég sýndi að ég átti
nóg inni, og sá sem tilkynnti mér hjá
Val að minna krafta væri ekki óskað
lengur var látinn fara á miðju tíma-
bili,“ segir Sigfús og glottir við tönn.
Sigfús lagði ekki skóna á hilluna fyrr
en árið 2013.
Silfurverðlaunin í Peking eru
óumdeilanlega ein stærsta stund
íslenskrar íþróttasögu. Þegar Sig-
fús lítur til baka er Peking bæði
stærsti sigurinn og mestu von-
brigðin. „Gleðin var mest þegar við
sigruðum Spánverjana og komumst
í úrslitaleikinn. Við áttum mögu-
leika allt fram í seinni hálfleik gegn
Frökkum í úrslitunum.“
Eftir Peking hefur leiðin legið
niður á við í handboltanum. Árang-
ur fótbolta- og körfuboltalandslið-
anna hefur gert það að verkum að
viðurnefnið „strákarnir okkar“ um
handboltalandsliðið hefur týnst.
„Þegar ég var að stíga mín fyrstu
skref voru alvöru karakterar til
staðar, Alfreð Gísla, Kristján Ara,
Geiri Sveins og f leiri. Stórir og
miklir persónuleikar sem fólk
tók eftir og laðaði unga stráka að
íþróttinni,“ segir Sigfús. „Okkur
vantar þetta í handboltann í dag.
Við eigum ennþá Guðjón Val, sem
fólk tekur eftir. En þessir strákar
sem eru kannski 25 til 30 ára mættu
vera meiri naglar.“
Fékk tækifæri
Árið 2013 komst Sigfús í fréttirnar
vegna þess að hann seldi silfur-
medalíuna frá Peking. Í ítarlegu
viðtali hjá DV það ár opnaði hann
sig um langvinn fjárhagsvandræði.
Eftir þetta kom hann að fiskeldi í
Grafarholtinu en það fór á hliðina
skömmu síðar.
„Þegar maður kemur sér í svona
hluti sjálfur þýðir ekki að vera
grenja neitt,“ segir Sigfús um fjár-
hagsvandræðin. „Lífið leggur ekki
meira á mig en ég þoli.“ Í dag er Sig-
fús á betri stað og hefur fundið sína
fjöl í fisksölu.
„Vegna medalíumálsins voru fáir
sem vildu ráða mig og ég fann fyrir
miklum fordómum. En þá kynntist
ég Fiskikónginum, Kristjáni Berg.
Hann bauð mér í atvinnuviðtal og
við ræddum saman í næstum þrjá
klukkutíma. Ég lagði spilin á borð-
ið og daginn eftir hóf ég störf hjá
honum,“ segir Sigfús. „Við græddum
báðir á þessu því ég fékk vinnu og
hann auglýsingu út á mig. Hann
aðstoðaði mig mikið og ég er afar
þakklátur fyrir það.“
Sigfús starfaði hjá Fiskikónginum
í fjögur ár uns hann ákvað að hefja
eigin rekstur. Í fyrra bauðst honum
að kaupa fiskbúðina í Skipholtinu,
þar sem hin sögufræga Hafrún stóð
frá árinu 1965 og f leiri fiskbúðir
síðar. Sigfús opnaði Fiskbúð Fúsa í
nóvember á síðasta ári.
„Ég mæti snemma og er flottur og
hreinn á morgnana. Um hádegið er
ég farinn að lykta eins og gamall
sokkur,“ segir Sigfús og skellir upp
úr. „Þetta hefur gengið ágætlega hjá
okkur. Við látum enda ná saman
sem skiptir öllu máli þegar fyrir-
tæki er að hefja rekstur.“
Sem barn var Sigfús í meðallagi
hrifinn af fiski. En þegar hann flutti
til Magdeburg, sem er inni í miðju
landi, saknaði hann þess virkilega
að fá ferskan fisk. „Mér finnst fiskur
æði,“ segir hann munúðarfullt.
Fiskmeti hefur á undanförnum
áratugum verið fæða sem eldra
fólkið er hrifnari af en hið yngra og
á undanförnum árum hefur vegan-
fólki fjölgað mikið, sérstaklega hjá
yngri kynslóðum. Sigfús hefur ekki
áhyggjur af þessu. „Á þessu ári sem
búðin hefur verið opin hef ég tekið
eftir hægri en stöðugri aukningu
hjá ungu fólki. Inn í þetta spilar
umræðan um hversu hollur fiskur-
inn er og hversu betur hann fer í
maga en kjöt.“
Þýðir ekki að leggjast í kör
Sigfús fylgist enn með, ekki aðeins
handboltanum heldur flestum
íþróttum. En hann er hættur að
fara á völlinn. „Þegar ég hætti árið
2013 var ég að eignast dóttur mína
og ég áttaði mig sífellt betur á því
hversu miklum tíma ég var að
eyða í þetta. Það var kominn tími
til að ýta á stopptakkann.“ Hann
bregður sér hins vegar reglulega í
golf og stangveiði og les mikið af
bókum.
„Hvað er það?“ segir Sigfús þegar
hann er spurður út í ástarmálin og
augljóst að enginn tími vinnst fyrir
slíkt. Sigfús er einstæður tveggja
barna faðir. Dóttir hans, sem á bras-
ilíska móður, er sex ára og dvelur
reglulega hjá honum. Sigfús segir
að hún hafi erft íþróttaáhugann
og vilji byrja að æfa fótbolta. Sonur
hans, Alexander, er 24 ára og förð-
unarfræðingur hjá Madison Ilm-
húsi. Alexander hefur náð langt og
meðal annars keppt í alþjóðlegum
keppnum í faginu.
Það er létt yfirbragð yfir Sigfúsi og
hann er hamingjusamur. Mun ham-
ingjusamari en í viðtalinu árið 2013.
„Lífið hefur sett fyrir mig mörg verk-
efni, sum æðisleg og skemmtileg
en önnur mjög erfið. Það er aðeins
spurning um hvernig maður tekst
á við þau. Hvað á maður að gera ef
eitthvað erfitt kemur upp? Leggjast
í kör og fara að grenja? Gefast upp?“
segir Sigfús. „Ég kann það ekki og
nenni því ekki. Ef ég fæ erfitt verk-
efni upp í hendurnar tekst ég á við
það og ef ég ræð ekki við það leita
ég eftir aðstoð. Blessunarlega á ég
stóra og samheldna fjölskyldu og
góða vini sem ég get reitt mig á og
hef gert. Ég er ákaf lega þakklátur
fyrir þetta fólk, því án þess væri ég
kominn undir græna torfu.“
VEGNA MEDALÍUMÁLSINS
VORU FÁIR SEM VILDU
RÁÐA MIG OG ÉG FANN
FYRIR MIKLUM FOR-
DÓMUM. EN ÞÁ KYNNTIST
ÉG FISKIKÓNGINUM
2 8 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
8
-0
9
-2
0
1
9
0
4
:5
2
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
E
6
-C
0
5
0
2
3
E
6
-B
F
1
4
2
3
E
6
-B
D
D
8
2
3
E
6
-B
C
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
0
4
s
_
2
7
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K