Fréttablaðið - 28.09.2019, Síða 80

Fréttablaðið - 28.09.2019, Síða 80
Jú, ég á svolítið afmæli en ætla ekki að halda mikið upp á það núna, segir Þórunn Sigurðar-dóttir, leikskáld með meiru, sem verður sjötíu og fimm ára á morgun en er að undirbúa full- trúaráðsfund Listahátíðar Reykjavíkur í Ráðherrabústaðnum þegar ég heyri í henni. „Ég er dálítið á haus þessa dagana og það er mikið að gera hjá öllum í fjöl- skyldunni svo veisluhald verður frekar pent. Við Stefán gerum bara eitthvað skemmtilegt, förum út að borða eða eitthvað,“ segir hún og á að sjálfsögðu við eiginmanninn, Stefán Baldursson, fyrrverandi þjóðleikhússtjóra. Ég byrja á að forvitnast um fjölda barna og ömmubarna og kemst að því að þau hjón eiga tvö börn og sjö barna- börn. „Við ætlum að reyna að ná þeim öllum saman aðeins seinna í haust. Við eigum son sem heitir Baldur og vinnur í Kviku banka og dóttur sem heitir Unnur Ösp og er leikkona. Það er brjálað að gera hjá þeim báðum núna svo við ætlum að hinkra aðeins með hátíðar- haldið. Hún segir þau Stefán vera á fullu líka. „Ég er mikið að kenna, er að byrja með stórt námskeið á Bifröst núna í október, það fellur inn í greinina menningar- stjórnun. Svo er ég í öllu mögulegu öðru, er fulltrúi mennta og menningarmála- ráðherra sem formaður stjórnar Lista- hátíðar í Reykjavík – en hátíðin verður 50 ára í vetur. Svo er ég líka í stjórn Nor- ræna menningarsjóðsins sem er stórt batterí á vegum norrænu ráðherra- nefndarinnar og undir honum eru ýmsir sjóðir. Við sem erum í stjórninni erum ekki í úthlutunarnefndum heldur í yfir- stjórn sjóðanna í heild og það er margt sem kemur inn á okkar borð. Ég er til- tölulega nýbyrjuð í þessu embætti. Fór á fyrsta fundinn í vor, hann var á Græn- landi, stór og mikill og langur fundur. Þar var verið að móta stefnuna til fram- tíðar og hvernig best er að haga sam- starfinu.“ Þegar litið er til æskuáranna minn- ist Þórunn ljúfra sumra á Kvískerjum í Öræfum. Hún kveðst muna náttúruna þar svo vel að hún gæti gengið blindandi um svæðið. „Eftir að ég var komin yfir tvítugt fór ég austur að smala. Bræðurnir sem bjuggu þar báðu mig að koma því ég var þekkt fyrir það á Kvískerjum hvað ég var fjárglögg. Ég var að koma frá útlöndum og fannst þetta að sjálfsögðu spennandi verkefni.“ Þegar Þórunn var sumardvalarbarn á Kvískerjum var sveitin einangruð vegna óbrúaðra jökulfljóta og fáir voru á ferli. Það hefur breyst. „Núna finnst mér stór- furðulegt að koma að Fjallsárlóni og Jökulsárlóni, ég bara veit ekki hvað allt þetta fólk er að gera þarna! Kvískerja- bræður höfðu áhyggjur af því að það kæmi styggð að fuglunum þegar vegur- inn opnaðist. Þeim þótti það ekki góð tilhugsun því fuglarnir voru svo spakir á Kvískerjum. Þeir höfðu meiri áhuga á fuglum en fólksfjölda.“ gun@frettabladid.is Þótti fjárglögg í æsku Þótt Þórunn Sigurðardóttir sé sjötíu og fimm ára er hún hvergi nærri hætt að vinna. Hún kennir á Bifröst og sinnir menningarmálum af krafti bæði á Íslandi og erlendis. Þórunn ætlar að geyma hátíðahald vegna stórafmælisins lengra fram á haustið. Veist þú hvert eignir þínar renna eftir þinn dag? Kynntu þér málið á heimasíðu okkar, www.útför.is. Þar getur þú m.a. sett inn þínar forsendur í reiknivél. Við aðstoðum þig við gerð erfðaskrár, kaupmála og við dánarbússkipti. Katla Þorsteinsdóttir, lögfræðingur Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Elskuleg fóstra mín, Sigurlaug Helga Pétursdóttir frá Hólkoti, Sandgerði, lést á Hrafnistu Hlévangi, föstudaginn 13. september. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Arna Magnea Danks og fjölskyldur. Þökkum innilega fyrir samúð og vináttu sem okkur var sýnd við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, Jónatans Ólafssonar Sigrún Halldórsdóttir Rögnvaldur Jónatansson Ásdís R. Jónsdóttir Ólafía Jónatansdóttir Haukur Konráðsson Sigurdríf Jónatansdóttir Björn J. Sighvatz Brynjar Bragason Anna Þ. Ingólfsdóttir Kristján Hálfdánarson Jóhanna S. Hansen Rúnar Hálfdánarson Inga Helga Björnsdóttir Daði Hálfdánsson Ráðhildur Stefánsdóttir afa- og langafabörn Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Sigrún Einarsdóttir Miðhúsum lést 25. september á hjúkrunarheimilinu Dyngju. Útförin fer fram frá Egilsstaðakirkju fimmtudaginn 3. október kl. 14. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn Merkisatburðir 1930 Elliheimilið Grund í Reykjavík er vígt. 1943 Haraldur Böðvarsson, útgerðarmaður á Akranesi, og kona hans, Ingunn Sveinsdóttir, gefa Akraneskaupstað Bíóhöllina, ásamt öllum búnaði og skal tekjum af bíó- rekstrinum varið til menningarmála. 1968 Við Menntaskólann við Hamrahlíð er sett upp höggmyndin Öldugjálfur eftir Ásmund Sveinsson sem Reykjavíkurborg gaf skólanum. 1969 Brot úr Murchison-loftsteininum falla til jarðar í Ástralíu. 1988 Önnur ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar tekur við völdum. 1988 Á Ísafirði er afhjúpaður minnisvarði um Ragnar H. Ragnar, tónskáld og skólastjóra Tónlistarskóla Ísafjarðar. Ragnar hefði orðið níræður þennan dag. 1991 Stofnað er landssamband björgunarsveita og hlýtur nafnið Landsbjörg. 2006 Lokað er fyrir hjáveitugöng Kárahnjúkastíflu og myndun Hálslóns hefst. Ástkær móðir okkar og tengdamóðir, Kristín Kristinsdóttir Ennisbraut 27 Ólafsvík, lést miðvikudaginn 25. september á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi. Útförin verður auglýst síðar. Svanur Kristófersson Guðrún Kjartansdóttir Stefán Smári Kristófersson Hrefna Rut Kristjánsdóttir Kristinn Kristófersson Auður Sigurjónsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Sigríður Sveinlaug Guðmundsdóttir Sólvangsvegi 3 Hafnarfirði lést á Landspítalanum 24. september. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 3. október kl 13.00. Elsa Óskarsdóttir Hafsteinn Eggertsson Ingvar Sigurðsson Pálína Þráinsdóttir Birna Leifsdóttir Sigurður Valgeirsson Guðmundur Leifsson Kristrún Runólfsdóttir Sævar Leifsson Hildur Benediktsdóttir Sigrún Leifsdóttir barnabörn, barnabarnabörn 2 8 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R40 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT 2 8 -0 9 -2 0 1 9 0 4 :5 2 F B 1 0 4 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 E 6 -E C C 0 2 3 E 6 -E B 8 4 2 3 E 6 -E A 4 8 2 3 E 6 -E 9 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 1 0 4 s _ 2 7 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.