Umhverfistölur - 15.01.1997, Blaðsíða 18
16
Umliverfistölur
Orka
V innsla og notkun á orku hefur marg vísleg áhrif á umh verfið.
Brennsla eldneytis hefur í för með sér losun á brennisteins-
og köfnunarefnisoxíðum, koltvísýringi, kolvetnum og fleiri
efnum sem öll eru skaðleg umhverfinu. Vinnsla orku leiðir
auk þess af sér margvíslegar breytingar á náttúrunni, svo sem
við virkjun vatnsorku og við kolanám. Nýting kjamorku
hefur í för með sér hættu á óhöppum með losun á geislavirkum
efnum út í umhverfið, losun geislavirks úrgangs o.fl.
fbúar Evrópu, sem eru um 13% af íbúafjölda jarðar, nýta
yfir 40% af orkuauðlindum hennar. ísland er meðal þeirra
landa sem nota allra mesta orku á hvern íbúa. A meðfylgj andi
my nd, sem á við árið 1990, er ísland í öðru sæti. En orkunotkun
íslendinga er að meiri hluta til umhverfisvæn borið saman
við þær þjóðir sem fá orku sína að mestu leyti úr eldsneyti.
Árið 1995 fengust 66% hennar úr vatnsorku og jarðhita en
aðeins 34% komu úr eldsneyti borið saman við yfir 90% hjá
mörgum þjóðum. Hlutur vatnsorku og j arðhita er hér reiknaður
samkvæmt reglum OECD um slíka reikninga.
Orkunotkun á íbúa í tonnum árið 1990, TOE 0
Finnland
Island
Svíþjóð
Noregur
Austur Þýskaland
Belgía
Holland
Vestur Þýskaland
Sviss
Frakkland
Bretland
Danmörk
Austurríki
írland
Ítalía
Spánn
Grikkland
Portúgal
0 1 2 3 4 5 6
!) TOE = tonn olíugildis.
Heimild: Europe’s enviroment, Eurostat 1995.
My nd hér á eftir sýnir þróun orkunotkunar á Norðurlöndum
frá árinu 1970. Langmest aukning er á íslandi, eða 75%.
Minnsta aukningin er í Svíþjóð, 17%, en í Danmörku dregst
orkunotkun saman á þessu tímabili og minnkar um 20%.
Orkunotkun á íbúa 1970-1990 á Norðuiiöndunum
Heimild: Europe’s Environment, Eurostat 1995.