Umhverfistölur - 15.01.1997, Blaðsíða 42
40
Umhverfistölur
Alþjóðlegt samstarf
Umhverfisráðuneyti fer með alþjóðasamskipti og samvinnu
á sviði umhverfismála í samráði við utanríkisráðuneyti og
hefur yfirumsjón með framkvæmd allra alþjóðlegra
umhverfissamninga sem Island er aðili að. Alþjóðastarf
ráðuneytisins felst að mestu leyti í stefnumótun og þátttöku
í samningaviðræðum, fullgildingu samninga, framkvæmd
þeirra og þátttöku í starfi alþjóðastofnana.
Ráðuneytið tekur virkan þátt í starfi Sameinuðu þjóðanna
á vettvangi umhverfismála, bæði á vegurn Umhverfis-
stofnunar þeirra (UNEP) og nefndar urn sjálfbæra þróun
(CSD) er stofnuð var í kjölfar umhverfisráðstefnunnar í Ríó
de Janeiró í Brasilíu í júní 1992. Þá sér ráðuneytið, í náinni
samvinnu við Hollustuvernd ríkisins, um framkvæmd skuld-
bindinga samkvæmt EES-samningnum á sviði umhverfismála
og vöruviðskipta en undir þann málaflokk falla m.a. matvæli
og hættuleg efni. Ráðuneytið tekur þátt í starfi Evrópsku
umhverfisstofnunarinnar, sem hefur aðsetur í Kaupmanna-
höfn. Að starfseinni standa EES-ríkin 1S en hlutverk hennar
er að samhæfa upplýsingar og vöktun á sviði umhverfismála.
Einnig lætur ráðuneytið töluvert að sér kveða á vettvangi
Norðurlanda en bæði umhverfisráðherrar og embættismenn
hafa þar með sér náið samstarf. Ennfremur er mikið starf
unnið á þeim vettvangi á vegum norrænna sérfræðinganefnda
í umhverfismálum. Island tekur þátt í starfi Norræna
umhverfisfjármögnunarfélagsins (NEFCO) en umsvif þess
fara sífellt vaxandi.
Ráðuneytið vinnur einnig að málefnum Norðurheims-
skautsins, bæði í Rovaniemi-samstarfinu um vernd umhverfis
á norðurslóðum og var með í undirbúningi að stofnun Heims-
skautaráðsins, sem var stofnað í Ottawa í september 1996. Þá
tekur ráðuneytið þátt í starfi Evrópuráðsins og Efnahags-
samvinnu- og þróunarstofnunar Evrópu (OECD) er lýtur að
umhverfismálum.
Alþjóðlegir samningar á sviði umhverfismála sem ísland er aðili að
Náttúruvernd
Samþykkt umfuglavernd (París 1950)
Aðild íslands: 28. janúar 1956; Stjórnartíðindi A 14/1956
Markntið samningsins er að stuðla að verndun villtra
fugla.
Samþykkt um votlendi sem hefur alþjóðlegt gildi, einkum
fyrir fuglalíf (Ramsar 1971)
Aðild íslands: 2. desember 1977; Stjtíð. C 1/1978, 10/1986
og 19/1993
Markmið samningsins er að stuðla að verndun votlendis-
svæða í heiminum, sérstaklega sem lífsvæðis fyrir votlendis-
fugla.Tvö votlendissvæði á Islandi eru á skrá samningsins:
Mývatn-Laxá og Þjórsárver.
Samningur um verndun villtra plantna og dýra og lífsvœða
í Evrópu (Bern 1979)
Aðild íslands: 1. október 1993; Stjtíð. C 17/1993
Markmið samningsins er að stuðla að verndun evrópskra
tegunda villtra plantna og dýra og lífsvæða þeirra, einkurn
þeirra tegunda og lífsvæða sem fjölþjóðlega samvinnu þarf
til að vernda.
Samningur um líjfræðilegafjölbreytni (Ríó de Janeiró 1992)
Aðild íslands: 11. desember 1994; Stjtíð. C 1994
Markmið samningsins er að vernda líffræðilega fjölbreytni
og að stuðla að sjálfbærri nýtingu lifandi náttúruauðlinda.
Jafnframt er það markmið samningsins að stuðla að sann-
gjarnri skiptingu þess hagnaðar sem skapast af nýtingu
erfðaauðlinda sem og aðgangi að þeim og tækni til að nýta þær.
Dýravernd
Evrópusamningur um vernd dýra í flutningum milli landa
(París 1968)
Aðildíslands: 1. maí 1969; Stjtíð. C 8/1969,28/1992,8/1986
og 36/1991
Markmið samningsins er að tryggja, eins og mögulegt er,
að dýr þjáist ekki þegar þau eru flutt milli landa.
Samningurinn hefur að geyma reglur sem aðildarríkjum
ber að fylgja um ástand dýra fyrir flutning og meðferð þeirra
meðan á flutningi stendur.
Evrópusamningur um vernd dýra í landbúnaði (Strasbourg
1976)
Aðild fslands; 20. mars 1990; Stjtíð. C 17/1989
Markmið samningsins er að vernda dýr í landbúnaði,
einkum í stórvirkum nútímabúskap.
Loftmengun
Vínarsamningur um vernd ósonlagsins (1985) og
Montrealbókun um efni sem valda rýrnun ósonlagsins (1987)
Aðildíslands: 27. nóvember 1989; Stjtíð. C 9/1989,15/1993
og 1/1994
Markmið samningsins er að vernda heilsu fólks og umhverfi
gegn neikvæðum áhrifum sem kunna að verða vegna breytinga
á ósonlaginu.
Samningur um loftmengun sem berst langar leiðir milli
landa (Genf 1979)
Aðild íslands: 3. ágúst 1983; Stjtíð. C 1/1983
Markmið samningsins er að vernda fólk og umhverfi gegn
loftmengun.
Rammasamningur um loftslagsbreytingar (Ríó de Janeiró
1992) ^
Aðild íslands: 16. júní 1993; Stjtíð. C 14/1993
Markmið samningsins er að koma í veg fyrir hættulega
röskun af mannavöldum á loftslagskerfinu. Jafnframt er það