Umhverfistölur - 15.01.1997, Blaðsíða 19
Umhverfistölur
17
Raforka
Notkun raforku er breytileg eftir löndum frá um það bil 10%
afheildarnotkuninnihjánotendumít.d.austantjaldslöndunum
fyrrverandi í um 50% í Noregi. Hér á landi var þetta hlutfall
19% árið 1992.
Varmaorkuver, kynt með kolum, olíu og jarðgasi, framleiða
meginhluta raforkunnar í flestum Evrópulöndum. í nokkrum
þeirra, svo sem í Noregi og Islandi, er hún að mestu unnin úr
vatnsorku. Þannig sá vatnsorkan fyrir 94% raforkunnar hér á
landi árið 1995, jarðhiti fyrir 5,8% og eldsneyti (dísilolía) fyrir
0,2%. I Frakklandi, Sviss og Belgíu fæst meirihluti raforkunnar
úr kjarnorku.
Vinnsla í kjarnorkurafstöðvum byggist á því að orka sem
bundin er í kjörnum frumeinda losnar við kjarnaklofning
(klofningskjarnorka). Við eðlilegan rekstur eru áhrif af slíkri
vinnslu á umhverfi takmörkuð, en við bilun í kjarnakljúf
getur mikið magn geislavirkra efna losnað út í umhverfið.
Tsjernobylslysinu árið 1986 fylgdi losun á geislavirkum
efnum sem hafði víðtæk áhrif. Þau átta lönd sem höfðu mest
heildarafl í kjarnorkurafstövum árið 1991 voru Bandaríkin,
Frakkland, Sovétríkin fyrrverandi, Japan, Þýskaland, Kanada,
Bretland og Svíþjóð.
Fjöldi kjarnakljúfa 11 og hluti kjarnorku í heildar raforkuframleiðslu
Fjöldi kjarnakljúfa í notkun 1992 Hluti af heildar- raforkuframleiðslu 1990
ísland _ _
Danmörk - -
Finnland 4 46
Noregur - -
Svíþjóð 12 42'
Albanía - -
Austurríki - -
Belgía 7 62
Bretland 37 22
Búlgaría 6 32
Eistland - -
Frakkland 56 84
Grikkland - -
Holland 2 6
Irland - -
ftalía - -
Fjöldi kjarnakljúfa í notkun 1992 Hluti af heildar- raforkuframleiðslu 1990
Króatía 1 10
Lettland - -
Litáen 2 60
Lúxemborg - -
Pólland - -
Portúgal - -
Rúmenía 0 3)
Rússland (allt) 24 n
Sviss 5 66
Slóvenía 1
Spánn 9 42
(Fyrrum) Tékkóslóvakía 8 20
Úkraína 15
Ungverjaland 4 40
Þýskaland 21 30
" Yfirleitt eru fleiri en einn kjarnakljúfur í hverju kjarnorkuveri.
2) 1993.
3) Unnið er að uppsetningu fimm kjarnakljúfa.
Heimild: Miljö i Europa, SCB 1995.