Umhverfistölur - 15.01.1997, Qupperneq 21

Umhverfistölur - 15.01.1997, Qupperneq 21
Umhverfistölur 19 Samgöngur Samgöngur hafa á margan hátt áhrif á umhverfi. Þar vegur þyngst framleiðsla ökutækja, lagning vega, járnbrauta, gerð flugvallao.fi., útblástur og hávaði. Einkabílum hefur fjölgað rnjög í flestum Evrópulöndum frá 1970. Bílaeign á hvern íbúa er mest í Vestur-Evrópu og skv. meðfylgjandi mynd er ísland þar í fimmta sæti árið 1993 með um 44 bíla á hverja 100 íbúa. Á allra síðustu árum hefur þó hlutfallsleg aukning orðið mest í Austur-Evrópu. Fólksbílaeign Islendinga náði hámarki 1988. Fækkaði þeim síðan um 7% til ársins 1994 en fjölgaði að nýju um 2,5% árið 1995. í árslok 1995 voru tæplega 5% færri fólksbílar hér á landi en í árslok 1988. Fjölgun ökutækja hefur leitt af sér mjög aukna umferð á vegum í mörgum Evrópulöndum. Uppbygging vegakerfis hefur þanist út frá 1980 og hraðbrautum fjölgað í flestum Vestur-Evrópuríkjum. í meðfylgjandi töflu er umferðarþungi reiknaður út frá fjölda ökutækja og meðalakstri á ári miðað við hinar ýmsu tegundir ökutækja. Misræmi gæti verið á skilgreiningum milli landa. Unferðarþungi og lengtl þjóðvega 1993 Umferðarþungi Þjóðvegir Umferðarþungi Þjóðvegir milljarðar km 1.000 km milljarðar km 1.000 km 1980 1991 1993 1980 1991 1993 fsland 1 2 12 Holland 70 91 120 Danmörk 26 38 71 írland 19 26 92 Finnland 27 39 78 Ítalía 227 340 307 Noregur 17 22 91 Lúxemborg 2 4 5 Svíþjóð 44 67 136 Pólland 45 91 368 Austurríki 35 64 111 Portúgal 21 35 100 Belgía 46 59 144 Sviss 37 50 71 Bretland 242 403 365 Spánn 75 102 171 Frakkland 296 411 812 Ungverjaland 19 23 179 Grikkland 20 41 41 Þýskaland 377 526 646 Heimild: Environmental Data, OECD 1995; Miljö i Europa, SCB 1995; Vegagerð ríkisins. Fjötdi fólksbíla á 100 íbúa árið 1993 Heimild. Encironmental Data, OECD 1995.

x

Umhverfistölur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Umhverfistölur
https://timarit.is/publication/1395

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.