Umhverfistölur - 15.01.1997, Qupperneq 23

Umhverfistölur - 15.01.1997, Qupperneq 23
Umhverfistölur 21 Samgöngur valda mengun umhverfis með útblæstri ýmissa lofttegunda svo sem koltvísýringi, köfnunarefnisoxíðum, brennisteinsoxíðum, kolvetnum og kolsýringi auk rykagna og blýs. Jarðvegur, ár og vötn geta súrnað vegna ákomu brennis- teins- og köfnunarefnisoxíða. Síðarnefndu efnin geta jafn- framt leitt til ofauðgunar og myndað ljósefnafræðileg oxandi efni með kolvetnum. í flestum löndunum valda samgöngur meira en helmingi alls útstrey mis af köfnunarefnisoxíðum en hlutfall útstreymis brennisteinsoxíða vegna samgangna er lægra skv. með- fylgjandi töflu. í töflunni er hlutur fiskiskipa trúlega alls staðar talinn með (þ.e. flokkaður undir samgöngur) en hann vegur hlutfallslega mj ög mikið í tölum frá Islandi. S amgöngur á landi valda meginhluta útstreymis köfnunarefnisoxíða í flestum löndum. Á íslandi valda þó fiskiskip 70-80% út- streymis þess en samgöngur á landi innan við 20%. Hvað varðar útstrey mi brennisteinsoxíða vegna eldsneytisbrennslu á íslandi eru fiskiskip einnig þar með mestan hlut og töluvert meiri en samgöngur á landi. Hvarfakútar í nýjum bílum draga úr útstreymi kolsýrings, kolvetnis og köfnunarefnisoxíðs. Útstreymi koltvísýrings fer hins vegar eingöngu eftir eldneytisnotkun. Hlutur samgangna í heildarútstreymi brennisteins- og köfnunarefnisoxíða til andrúmsloftsins 1993 Köfnunarefnis- Köfnunarefnis- Brennisteinsoxíð,% oxíð,% Brennisteinsoxíð,% oxíð,% ísland 2) 36 96 Bretland 4 56 Danmörk 9 55 Frakkland *•3) 13 72 Finnland 11 4 66 Holland 19 62 Noregur 25 79 Pólland 2 38 Svfþjóð 24 82 Sviss 5 64 Austurríki31 11 65 Ungverjaland 11 2 51 Belgía 11 6 56 Þýskaland ” 2 67 0 1992. Frá Þýskalandi, bráðabirgðatölur. 2) Lang mest vegna fiskiskipa. 3) Eingöngu samgöngur á landi. Heimild: Environmental data, OECD 1995.

x

Umhverfistölur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Umhverfistölur
https://timarit.is/publication/1395

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.