Umhverfistölur - 15.01.1997, Side 36

Umhverfistölur - 15.01.1997, Side 36
34 Umhverfistölur Súr jarðvegur í súrum jarðvegi hafaeiginleikartil þess að gera sýru hlutlausa verið skertir. Súrt regn (sjá bls. 32) ásamt áhrifum af skógar- vinnslu og landbúnaði eru helstu orsakavaldarjarðvegssúrnunar af mannavöldum. Hins vegar vegur veðrun í jarðvegi þar upp á móti. Berggrunnur Norður-Evrópu veðrast lítið og af því leiðir að þar eru viðkvæmustu svæði Evrópu með tilliti til súrnunar jarðvegs og vatna. Við mat á viðkvæmum svæðum er einnig tekið tillit til jarðvegstegunda. jarðnýtingu og loftslags. Skógarskaðar Ekki er vitað rneð vissu hvað það er sem veldur skaða á trjám eða skógardauða eins og það hefur verið nefnt. Væntanlega verður skaðinn ekki rakinn til einhvers eins þáttar heldur samspils margraþátta. Súrjarðvegur leysir úr læðingi ál sem truflar vaxtarjafnvægi. Loftmengun, eins og óson og brenni- steinsoxíð, hefur árif á lauf og barrnálar, truflar ljóstillífun o.s.frv. Þessar truflanir hafa jafnframt þau áhrif að tré verða viðkvæmari fyrir þurrki, frosti og ýmsum skaðvænlegum þáttum. Skaðinn er oftast skilgreindur með hugtakinu „krónu- þynning“ og miðast við hlutfall af lauf- eða barrþéttleika heilbrigðs trés. Stærstu svæði þar sem skógarskaðar hafa orðið eru í Mið- og Austur-Evrópu og í Bretlandi. Laufskógar hafa yfirleitt orðið verr úti en barrskógar. Líffræðileg fjölbreytni Með hugtakinu líffræðilegur fjölbreytileiki er átt við fjöl- breytni milli lífvera á allan hátt, þ.e.a.s. erfðafræðilegan fjöl- breytileika innan hverrar tegundar, breytileika rnilli tegunda og milli ólíkra vistkerfa. Eiturefni og mengun ógna fjölbreytileika lífríkisins. I löndum Vestur-Evrópu hefur breyting á nýtingu lands jafn- framt verið ógnun, svo sem þurrkun votlendis, aflagning jarðræktar, ásamt nýjum ræktunaraðferðum. Lífvera telst í hættu ef lífslíkur hennar við varanleg, harðger skilyrði eru ekki trygg. I mörgum löndum hafa plöntu- og dýrategundir verið flokkaðar í hættuflokka og skráðar í svokallaða válista. Ólíkir umhverfisþættir hafa áhrif á fjölda og útbreiðslu dýra- og plöntutegunda sem ekki eru í beinni hættu. Súrt regn og áburðarefni (köfnunarefni) úr andrúmslofti hafa áhrif á lífsskilyrði margra plantna. Þær tegundir sem þrífast vel af köfnunarefnisríku lofti, svo sem gras og brenni- netla, dafna á kostnað annarra plantna þar sem þau skilyrði eru fyrir hendi. Þar sem plöntur skapa skordýrum lífsskilyrði og skordýr síðan fuglum, leiðir þessi lífskeðja til þess að Samkvæmt sérstöku samhæfðu vöktunarkerfi fyrir um- hverfismál í Evrópu (EMEP) er álitið að flest svæði í Suður- Evrópu geti tekið á móti 10-20 kg brennisteins á hvern hektara á ári hverju án þess að skaði hljótist af. En stór svæði í Norður-Evrópu þola einungis örfá kg af súrri ákomu á ári. Vandamál þessu tengd eru hins vegar ekki fyrir hendi á Islandi. Á ákveðnum svæðum í Mið-Evrópu verður mikið tjón á skógum vegna brennslu brúnkola. I norðlægari löndum er yfirleitt unnt að sjá meiri skaða eftir því sem norðar dregur en því veldur köld og óblíð veðrátta. Þar að auki eru skógarnir gamlir. Umhverfisbreytingar eru ekki einar og sér valdar að skemmdum á skógi. Fyrir þeim eru einnig náttúrlegar orsakir. Skógarsvæði sem orðið hafa fyrir skaða hafa stækkað hlutfallslega áundanförnum árum í mörgum Evrópulöndum. Samanburð milli landa verður að gera með fyrirvara. Skógar á íslandi eru ekki vaktaðir með tilliti til skaða af völdum loftmengunar, enda hefur ekkert komið fram sem bendir til þess að um slíkan skaða sé að ræða hérlendis. margar tegundir fugla eru einnig í hættu vegna breytinga á lífsskilyrðum plantna. Þurrkun votlendis hefur leitt til fækkunar vaðfugla og froska. Tilveru spendýra og fugla er ógnað með veiðum og eggjatöku. I vötnum og ám hafa umhverfisskilyrði breyst með súru regni. ofnotkun áburðar og útstreymis eiturefna. Þetta, ásamt ofveiði á ýmsum stöðum, hefur haft áhrif á lífsskilyrði ýmissa tegunda vatnafiska og annarra vatnadýra. I mörgum löndum eru skriðdýr og froskar í hlutfallslega mestri í hættu. Fækkun búsvæða, svo sem við þurrkun votlendis, hefur þar sitt að segja. Á íslandi hefur umræðan hin síðari ár í auknum mæli beinst að því að vernda þurfi þau votlendi sem eftir eru og koma öðrum í fyrra horf. Það gerist reyndar smám saman af sjálfu sér þegar búskap er hætt. Aukin umræða hefur einnig orðið á nauðsyn þess að verja dýra- og gróðurríki Islands gegn erfðablöndun við innfluttar og ræktaðar tegundir. Aukinn ferðamannastraumur, virkjanir og vegagerð eru jafnframt þættir sem nauðsynlegt er að fylgjast með með tilliti til áhrifa á fjölbreytni lífríkis landsins.

x

Umhverfistölur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Umhverfistölur
https://timarit.is/publication/1395

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.