Umhverfistölur - 15.01.1997, Blaðsíða 43

Umhverfistölur - 15.01.1997, Blaðsíða 43
Umhverfistölur 41 markmið samningsins að stuðla að alþjóðlegri samvinnu um að auðvelda félagslega og efnahagslega aðlögun að loftslags- breytingum. Sjávarmengun Alþjóðasamningur um vamir gegn mengunfrá skipum (Lon- don 1973) Aðildíslands: 25. september 1985; Stjtíð. C 9/1985. 5/1989 og 13/1992 Markmið samningsins er að koma í veg fyrir losun mengandi efna í sjó (þ.m.t. í úthöf) frá farartækjum sem eru á siglingu eða í höfnurn. Alþjóðasamningur um varnir gegn mengun hafsins vegna losunar úrgangsefna og annarra efna í það (London 1972) Aðild íslands: 30. ágúst 1975; Stjtíð. C 17/1973 og 1/1976 Markmið samningsins er að stýra og koma í veg fyrir losun úrgangsefna og mengandi efna í sjó (þ.m.t. í úthöf) frá skipum og flugvélum og bruna úrgangsefna á hafi. Alþjóðasamningur um varnir gegn mengun sjávar vegna losunar úrgangsefna frá skipum og flugvélum (Osló 1972) Aðildíslands: 7. apríl 1974; Stjtíð.C 16/1973,5/1974,10/ 1987, 22/1989, 35/1991 og 1994 Markmið samningsins er að draga úr og helst stöðva losun mengandi efna og hættulegra úrgangsefna í sjó (þ.m.t. í úthöf innan samningsvæðisins) frá skipum og flugvélum og brennslu efna á hafi sem hættuleg eru umhverfinu. Samningur um varnir gegn mengun sjávarfrá landstöðvum (París 1974) Aðild íslands: 19. júlí 1981; Stjtíð. C 13/1981, 16/1987 og 23/1989 Markmið samningsins er að draga úr rnengun sem berst til hafs frá starfsemi á landi. Alþjóðasamningurum viðbrögð gegn olíumengun og samstarf þar um (London 1990) Aðild íslands: 13. maí 1995; Stjtíð. C 16/1993 Markmið samningsins er að skapa grundvöll fyrir alþjóð- legri samvinnu og samhjálp urn viðbrögð við mengunar- óhöppum er stafa af olíu. Alþjóðasamningur um íhlutun á úthafinu þegar óhöpp koma fyrir sem valda eða geta valdið olíumengun (Brussel 1969) Aðild íslands: 15. október 1980; Stjtíð. C 10/1980 Markmið samningsins er að gera ríkjum kleift að grípa til aðgerða á úthafinu þegar sjóslys eiga sér stað og valda, eða geta valdið, olíumengun innan lögsögu hlutaðeigandi ríkja. Alþjóðasamningur um einkaréttarlega ábyrgð vegna tjóns afvöldum olíumengunar (Brussel 1969) Aðild íslands: 15. október 1980; Stjtíð. C 10/1980 og 1994 Markmið samningsins er að tryggja skaðabætur til einstak- linga sem verða fyrir tjóni vegna olíumengunar frá skipum. Alþjóðasamningur um stofnun alþjóðasjóðs til að bœta tjón afvöldum olíumengunar (Brussel 1969) Aðild íslands: 15. október 1980; Stjtíð. C 10/1980 og 1994 Markmið samningsins er að tryggja tjónþola olíumengunar baktryggingu þegar hámarksbætur, sem skipaeigendum er gert að greiða samkvæmt samningnum um einkaréttarlega ábyrgð, duga ekki til að bæta það tjón sem hann hefur orðið fyrir. Norðurlandasamningur um samvinnu í baráttu gegn mengun sjávar af völdum olíu og annarra skaðlegra efna (Kaup- mannahöfn 1993) Aðild íslands: 29. júní 1995; Stjtíð 1995 Markmið samningsins er að koma á gagnkvæmu samstarfi aðila um viðbrögð við meiri háttar mengunaróhöppum á sjó, sem stafa af olíu og öðrum efnum, og vinna að því að vernda tiltekin hafsvæði gegn hugsanlegum mengunaróhöppum. Samningurinn er trygging fyrir því að utanaðkomandi aðstoð berist þegar svo alvarleg mengunarslys verða að einstök ríki geta ekki ráðið við þau upp á eigin spýtur. Samningurinn tekur til innsævis, landhelgi, landgrunns og efnahagslögsögu aðildarríkjanna. Urgangur Samningur um eftirlit með flutningi spilliefna og annars úrgangs milli landa ogförgun þeirra (Basel 1989) Aðild íslands: 26. september 1995; Stjtíð 1995 Markmið samningsins er að samræma meðferð spilliefna og annars úrgangs, annarra en geislavirkra úrgangsefna og úrgangsefna sem falla til í venjulegum rekstri skipa. Enn- fremur að draga úr myndun spilliefna og flutningi þeirra á milli landa. Jafnframt er það markmið samningsins að stuðla að því að spilliefnum verði fargað í samræmi við sjónarmið umhverfisverndar og að auka aðstoð við þróunarlönd við umhverfisvæna meðferð spilliefna og annars úrgangs sem til fellur.

x

Umhverfistölur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Umhverfistölur
https://timarit.is/publication/1395

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.