Jólaharpan - 01.12.1929, Blaðsíða 6

Jólaharpan - 01.12.1929, Blaðsíða 6
6 JÓLAHARPAN 1929 Hugmyndin var gripin á lofti með miklum áhuga, og næsta morgun fór Andrés til skógarfógetans, sem gaf honum fúslega leyfi til að höggva trén. »Hlaupið nú drengir til Hinriks frænda,« sagði And- rés, er hann kom heim, »og fáið sleðann hans Iánaðan.« Það létu þeir Georg og Jóhann ekki segja sér tvisvar, en á meðan hvatti faðirinn öxina og móðirin bjó þeim morgunverð. Er þeir böfðu matazt, lögðu feðgarnir af stað út í skóginn. Úti í skóginum var allt svo hljótt. Þeir ösluð snjó- inn þangað til þeir komu í rjóður eitt; þar námu þeir staðar; var skógurinn þar högginn að mestu, nema nokkur ung i renitré, sem skóaranum virtust hæfilega stór jólatré. Hann hjó nú nokkur smátré, en svo bað Georg hann að lofa sér að reyna líka. Fékk hann það fúslega, en þegar hann sá að það gekk vel, sagði drengurinn: »Heyrðu pabbi, þú hefir svo mikið að gera, farðu nú heim, en ég felli tvö til þrjú tré í viðbót, meðan Jóhann leggur trén á sleðann, svo drögum við þau heim. Við erum orðnir svo stórir, pabbi, að við get- um það vel.« Faðirinn kinkaði kolli. »Farið þá varlega, öxin er beitt,« sagði hann, »og látið ekki meira á sleðann en þið getið hæglega dregið heim.« Síðan hraðaði hann sér heim og tók til starfa. »Komið ekki of seint!« kallaði hann til þeirra, er hann var kominn af stað. »Við komum bráðum,«svaraðiGeorgogveifaði öxinni. Drengjunum gekk vel. Þeim hitnaði við vinnuna, og þeir glöddast yfir því, að smámsaman hækkaði á sleð- anum. Svo hvíldu þeir sig örlítið og lögðu síðan af stað út úr skóginum. Þegar þeir voru rétt komnir að yztu trjánum, stanz- aði Georg snögglega. »Hvar er öxin?« sagði hann. Þeir höfðu þá gleymt öxinni, og án hennar gátu þeir ekki komið heim._ »Bíddu hjerna við sleðann,« sagði Georg, »meðan ég hleyp inn í skóginn, ég man hvar við vorum síðast.« Hann hljóp af stað sem fætur toguðu, en Jóhann var eftir við sleðann. En hann var þreyttur og ætl- aði að setjast milli grenitrjánna á sleðanum, en þegar hann ýtti þeim til hliðar, sá hann blika á öxina milli þeirra. Hann hljóp á eftir bróður sínum, en hvernig sem hann hrópaði: Georg! Georg! fékk hann ekkert svar. Hann snéri því við og beið þolinmóður við sleðann. Georg var nú kominn aftur í rjóðrið, en fann ekki öxina, sem varla var von. Hann varð því að snúa aftur við svo búið, en þegar hann kom aftur að sleðanum, var byrjað að rökkva. Jóhann litli var stein- sofnaður, og öxin var fallin úr hendi hans. Georg kallaði á hann, en gat ekki vakið hann — hann var stirðnaður af kulda. Georg varð nú hræddur um að bróðir sinn mundi frjósa í hel. Hann reyndi nú að draga sleðann einn, en gat ekki hreyft hann úr stað. Hvað átti hann nú að taka til bragðs? Hann litað- ist um og honum virtist hann sæi Ijósbjarma skammt burtu. Hann hljóp af stað beint á ljósið; sá hann þá, sér til mikillar undrunar, að bjarmann lagði ut um gluggapp á gömlum, hrörlegum hallarrústum, sem þar voru. Hann klifraði upp eftir hálfföllnum veggnum og gægðist inn. Þar gat að líta svo merkilega sýn, að hann næstum gleymdi raunum sínum. Á miðju gólfi í geysistórum sal logaði eldur á arni, en yfir honum hékk stór ketill og lagði upp úr honum þægilegan matarilm. Um alla höllina var fjöldi örsmárra dverga við allskonar störf. Virtust þeir allir hafa hraðar hend- ur á borði. Sumir sniðu og saumuðu föt, aðrir skó, húfur, belti og margt fleira, en allir voru þeir ærið handfljótir. Hver flík virtist Georg óðara búin, þegar byrjað var á henni, en aðrir smádvergar söfnuðu sam- an því sem búið var og lögðu það á afvikinn stað mjög snyrtilega. Við eldinn voru hundruð matreiðslu- manna starfandi, sumir bökuðu allskonar brauð og kökur, aðrir bjuggu til ýmiskonar sælgæti, sem allt var mjög girnilegt. »Þeir ætla víst að fara að halda jólin,« hugsaði Georg með sér. Allt í einu kom hreyfing á dvergana í salnum. Það var kominn einn dvergur í viðbót, ofurlítið hærri en hinir, sem fyrir voru. Hann var búinn grænum veiði- mannabúningi, gyrtur gullnu belti og hékk við það lítið veiðimannahorn í gullfesti. Hann litaðist um í salnum, og allir heilsuðu honum hæversklega. Hann leit nú eftir störfum dverganna, en þegar hann renndi augunum yfir borð þau, sem bakararnir röðuðu kök- unum sínum á, kom hann auga á Georg. Hann leit á hann svo illilega og ógnandi, að Georg missti hand- og fótfestu og féll í snjóinn. En inni í salnum hurfu öll ljós, og rústirnar urðu eins eyðilegar og þær voru vanar að vera. Þegar Georg reis á fætur, stóð dvergurinn hjá hon- um og spurði ógnandi: »Hví dirfist þú að njósna um okkur?« Georg þreif af sér húfuna og hneigði sig djúpt. »Heiðraði herra,« sagði hann mjög kurteislega, »ég kom alls ekki til þess að njósna, það hefði ég aldrei vogað, ég kom aðeins til þess að biðja bróður mín- um hjálpar, ég er svo hræddur um að hann deyi úr kulda.« Svo sagði hann frá, hvernig allt hefði farið. Litli maðurinn var nú ekki eins reiður að sjá. »Ég vona að þú segir satt,« sagði hann, »fylgdu mér til hans, ég ætla að sjá, hvort ég get hjálpað þér.« Jóhann litli sat á sleðanum og leit út sem dauður væri. Georg grét hástöfum, en dvergurinn blés í horn sitt. Kom þá fjöldi dverga að úr öllum áttum, en for- ingi þeirra skipaði þeim fyrir, hvað þeir skyldu gera. Þeir hlupu óðara burt, en komu að vörmu spori aft- ur með bikar, fylltan grænleítum vökva. Dvergurinn

x

Jólaharpan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jólaharpan
https://timarit.is/publication/1400

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.