Skessuhorn - 04.02.2015, Page 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 6. tbl. 18. árg. 4. febrúar 2015 - kr. 750 í lausasölu
HEFUR SAFNAÐ FYRIR
ÖKUTÆKI
FYRIR HVERJU
LANGAR ÞIG AÐ SAFNA?
Allt um sparnað á arionbanki.is/reglulegur_sparnadur
Lúsina burt!
Nefúði!
Naso-ratiopharm
Grænn er
fyrir börnin
FRAMKÖLLUNARÞJÓNUSTAN EHF
BRÚARTORGI - 310 BORGARNESI - S. 437 1055
www.framkollunarthjonustan.is
ÚTSÖLULOK
Laugardag
7. febrúar
ÚTSÖLUVÖRUR
50%
AFSLÁTTUR
Grundarfjarðarbær færði nýjustu íbúum bæjarins veglegar gjafir í Sögumiðstöðinni í Grundarfirði síðastliðinn fimmtudag. Þá voru 16 nýjustu íbúarnir boðnir velkomnir
og leystir út með gjöfum. Eftir að Þorsteinn Steinsson bæjarstjóri flutti ávarp og kallaði börnin upp var boðið upp á kaffi og kökur. Greinilegt er að mikið líf er í íbúum
Grundarfjarðar um þessar mundir en langt er síðan svo mörg börn fæddust á einu ári. Hvort þetta sé eitthvað í vatninu, eða ástæðurnar aðrar, skal ósagt látið en
Skessuhorn óskar þessum nýbökuðu foreldrum innilega til hamingju. Ljósm. tfk.
Fyrsta loðnan komin til Akraness
Loðnuskipið Lundey NS 14 kom til Akraness
laust eftir hádegi í gær með fyrsta loðnufarminn
á þessari vertíð. Lundey var með um 1500 tonn
af loðnu innanborðs og fór aflinn allur í bræðslu
hjá fiskimölsverksmiðju HB Granda. Búast má
við uppgripum í loðnunni nú í febrúar og mars
eftir að sjávarútvegsráðherra ákvað fyrr í vikunni
að fylgja ráðum Hafrannsóknastofnunar og auka
loðnukvótann í 580 þúsund tonn á þessari ver-
tíð. Þetta er 320 þúsund tonna aukning frá fyrri
kvótaákvörðun í október síðastliðnum. Ljóst er
að menn verða að halda vel á spöðunum til að
þessi kvóti náist.
Sjá nánar á bls. 18.
mþh/ Ljósm. fh.
Hefð hefur skapast fyrir því að áhöfnum loðnuskipa sem landa fyrstu ver-
tíðarförmum á Akranesi séu færðar tertur við komuna þangað. Regína Ásvalds-
dóttir bæjarstjóri kom færandi hendi í gær með tertu frá Akranesbæ til Arnþórs
Hjörleifssonar skipstjóra á Lundey.
Lundey kemur að landi með fyrsta aflann á vertíðinni.