Skessuhorn


Skessuhorn - 04.02.2015, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 04.02.2015, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 2015 Samningur um sorphirðu fram- lengdur BORGARBYGGÐ: Á fundi byggðaráðs Borgarbyggðar sl. fimmtudag var lagt fram erindi frá Akraneskaupstað þar sem lagt er til að sorphirðusamn- ingur við Íslenska Gámafélagið ehf. verði framlengdur um eitt ár. Byggðarráð samþykkti fyrir sitt leyti að samningurinn verði framlengdur. Þá hefur sveitar- stjórn Hvalfjarðarsveitar einnig samþykkt framlengingu samn- ings um sorphirðu við Íslenska gámafélagið. –þá Skagaverk hlýtur viðurkenningu AKRANES: Ferðaþjónustu- fyrirtækið Skagaverk á Akranesi komst nýverið á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki á Íslandi 2014. Einungis 1,7% ís- lenskra fyrirtækja standast þau skilyrði sem sett eru. Á hverju ári vinnur Creditinfo ítarlega greiningu sem sýnir hvaða ís- lensk fyrirtæki teljast til fyrir- myndar að teknu tilliti til ým- issa þátta sem varða rekstur og stöðu þeirra. Markmiðið er að draga fram og hampa þeim fyr- irtækjum sem sýna slíkan árang- ur í rekstri og standast ýmsar efnahagssveiflur, ekki bara fyr- ir einstaka ár heldur með tilliti til lengri tíma. Þetta er í fimmta sinn sem viðurkenningin er veitt og hlutu alls 577 fyrirtæki viðurkenninguna Framúrskar- andi fyrirtæki 2014. –grþ Aflatölur fyrir Vesturland 24. - 30. janúar. Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu: Akranes 3 bátar. Heildarlöndun: 11.825 kg. Mestur afli: Akraberg ÓF: 9.897 kg í tveimur löndunum. Arnarstapi Engar landanir í vikunni Grundarfjörður 8 bátar. Heildarlöndun: 320.475 kg. Mestur afli: Kristín GK: 73.996 kg í einni löndun. Ólafsvík 19 bátar. Heildarlöndun: 274.177 kg. Mestur afli: Ólafur Bjarnason SH: 53.956 kg í fimm löndun- um. Rif 18 bátar. Heildarlöndun: 409.357 kg. Mestur afli: Rifsnes SH: 65.951 kg í einni löndun. Stykkishólmur 6 bátar. Heildarlöndun: 106.331 kg. Mestur afli: Þórsnes SH: 48.111 kg í þremur löndunum. Topp fimm landanir á tímabilinu: 1. Kristín GK – GRU: 73.996 kg. 24. janúar 2. Rifsnes SH – RIF: 65.951 kg. 26. janúar 3. Hringur SH – GRU: 63.240 kg. 27. janúar 4. Grundfirðingur SH – GRU: 49.146 kg. 24. janúar 5. Tjaldur SH – RIF: 4 5.662 kg. 27. janúar mþh Vísitala neyslu- verðs lækkar LANDIÐ: Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í janúar á þessu ári er 419,3 stig og lækk- aði um 0,71% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án hús- næðis er 389,2 stig og lækkaði um 1,29% frá desember 2014. Síðastliðna tólf mánuði hef- ur vísitala neysluverðs hækk- að um 0,8% en vísitala án hús- næðis hefur lækkað um 0,6%. Undanfarna þrjá mánuði hef- ur vísitala neysluverðs lækkað um 0,9% sem jafngildir 3,6% verðhjöðnun á ári (6,5% verð- hjöðnun fyrir vísitöluna án hús- næðis). Vetrarútsölur eru víða í gangi og lækkaði verð á fötum og skóm um 15,2% (áhrif á vísi- töluna -0,72%) og verð á hús- gögnum, heimilisbúnaði o.fl. lækkaði um 4,9% (-0,22%). Verð á bensíni og olíum lækk- aði um 11% (-0,42%). Verð á mat og drykkjarvörum hækk- aði um 2,6% (0,38%) en kostn- aður vegna búsetu í eigin hús- næði (reiknuð leiga) hækkaði um 1,3% (0,19%). –mm Skagakonur gerðu jafntefli AKRANES: Kvennalið ÍA í knattspyrnu stendur sig vel í A riðli Faxaflóamótsins. Skaga- konur gerðu 2:2 jafntefli við úrvalsdeildarlið Aftureldingar í Akraneshöllinni sl. föstudag. Það var Unnur Ýr Haraldsdótt- ir sem skoraði bæði mörk ÍA á 9. og 63. mínútu. Í millitíðinni skoruðu gestirnir úr Mosfells- bænum tvívegis. ÍA er þar með komið með fjögur stig í riðlin- um, eftir sigur á Selfossi og tap gegn Breiðabliki. Í næstu um- ferð mæta Skagakonur FH og fer leikurinn fram í Akranes- höllinni föstudaginn 13. febrú- ar. –þá Skagaliðið í fimmta sæti AKRANES: Skagamenn sýndu góðan karakter þegar þeir sigr- uðu ÍBV í leik um fimmta sæt- ið í Fotbolta.net mótinu í Akra- neshöllinni sl. sunnudag. ÍBV komst yfir strax á níundu mín- útu og var með yfirhöndina í fyrri hálfleik. Það var helst Ás- geir Marteinsson sem ógn- aði upp við mark Eyjamanna og það var hann sem fiskaði vítaspyrnu á lokamínútu fyrri hálfleiks. Garðar Gunnlaugs- son steig á punktinn en mark- vörður Eyjamanna varði spyrn- una. Eyjamenn komust síð- an tveimur mörkum yfir eftir mistök í vörn Skagamanna um miðbik seinni hálfleiks. Hall- ur Flosason minnkaði muninn eftir glæsilegt einstaklingsfram- tak og þá komst líf í Skagamenn sem pressuðu Eyjamenn. Garð- ar Gunnlaugsson jafnaði síðan metin eftir frábæra sendingu frá Jóni Vilhelm Ákasyni. Þrátt fyr- ir góðar tilraunir heimamanna náðu þeir ekki sigurmarkinu og leikurinn réðst í vítaspyrnu- keppni. Þar nýttu þeir Árni Snær, Ásgeir, Jón Vilhelm og Arnar Már fyrstu fjórar spyrn- urnar fyrir ÍA meðan tvær skytt- ur Eyjamanna skutu himinhátt yfir. ÍA sigraði því 6:4 í leiknum. Framundan er keppni í Lengju- bikar og verður fyrsti leikur ÍA í mótinu gegn Haukum í Akra- neshöllinni laugardaginn 14. febrúar. –þá Aðstaða til fuglaskoð- unar bætt við Rifsós Snæfellsbær er að koma upp mjög góðri aðstöðu til fuglaskoðunar við Rifsós, en svæðið er þekkt fyr- ir afar fjölbreytt fuglalíf. Þangað koma margir ferðmenn á ári hverju til að skoða og ljósmynda fugla. Snæfellsbær fékk styrk frá Fram- kvæmdasjóði ferðamannastaða til að ráðast í framkvæmdina en eft- ir að henni lýkur verður mjög góð aðstaða til að taka á móti rútum og minni bílum á svæðinu, svo ekki sé talað um góða aðstöðu fyrir fugla- áhugamennina sjálfa. Kristin Jón- asson bæjarstjóri segir í samtali við Skessuhorn að svæðið sé mjög þekkt fyrir afar fjölbreytt fugla- líf og því mikilvægt að aðstaðan sé góð fyrir gestina. af Starfsmenn Áhaldahúss Snæfellsbæjar, þeir Sölvi Guðmundsson og Anton Gísli Ingólfsson, eru hér að leggja lokahönd á að festa húsið niður. Ljósm. þa. Þúsundir ferðamanna stoppa á þessum stað og virða fyrir sér fuglalífið og náttúruna. Ljósm. af. Hvalfjarðarsveit styrkir Hollvinasamtök HVE Nýverið afhenti Skúli Þórðar- son, sveitarstjóri Hvalfjarðarsveit- ar, Steinunni Sigurðardótturfor- manni stjórnar Hollvinasamtaka Heilbrigðisstofnunar Vesturlands styrk frá Hvalfjarðarsveit að fjárhæð ein milljón krónur. Mun styrkur- inn renna í fjársöfnun hollvinasam- takanna til kaupa á sneiðmyndatæki sem afhent verður Heilbrigðisstofn- un Vesturlands til eignar. Meðfylgjandi mynd var tekin þegar styrkur Hvalfjarðarsveitar var afhentur. Á myndinni eru Björgvin Helgason oddviti, Steinunn Sigurð- ardóttir formaður Hollvinasamtaka HVE, Skúli Þórðarson, sveitarstjóri og Kristjana Helga Ólafsdóttir fjár- málastjóri. mm/hvalfjardarsveit.is Óskar eftir rökstuðningi biskups vegna prestsráðningar Séra Skírnir Garðarsson var einn af tíu umsækjendum um embætti prests við Garðaprestakall á Akra- nesi þegar nýja starfið var aug- lýst laust til umsóknar fyrr í vetur. Eins og fram hefur komið í frétt- um Skessuhorns ákvað valnefnd Garðaprestakalls að mæla með því að að sr. Þráinn Haraldsson, sem undanfarin fjögur ár hefur starf- að í Noregi, yrði ráðinn í starf- ið. Í kjölfar þess staðfesti biskup þá niðurstöðu valnefndar að skipa sr. Þráinn í embættið. Séra Skírn- ir Garðarsson er hins vegar ósáttur við ákvörðun valnefndar og bisk- ups. Gengur hann svo langt að halda því fram að þeir sem komið hafi að ráðningunni hafi ekki haft landslög að leiðarljósi. Hefur hann kallað eftir rökstuðningi frá bisk- upi og óskar eftir að fundargerða- bók valnefndar verði gerð aðgengi- leg þeim sem sóttu um starfið, en þó innan þeirra marka sem ákvæði persónuverndarlaga heimila. Í auglýsingu um starf viðbót- arprests við Garðaprestakall kom meðal annars fram að við val á nýj- um presti yrði hæfni í mannleg- um samskiptum lögð til grund- vallar sem og reynsla af barna- og æskulýðsstarfi. Séra Skírnir tel- ur að málsmeðferð við ráðninguna hafi verið stórlega ábótavant, eink- um gagnvart þeim prestvígðu kon- um sem sóttu um starfið. Ekki hafi verið litið til jafnréttislaga og ákvæða Stjórnarskrár um bann við mismunun vegna aldurs og skoð- ana. Þá telur hann að biskup hafi verið settur í óþægilega stöðu af valnefnd og prófasti. Hann hefur því í skriflegu erindi farið fram á rökstuðning biskups. Vísar ásökunum á bug Að sögn sr. Þorbjarnar Hlyns Árna- sonar prófasts í Vesturlandspró- fastsdæmi, sem veitir valnefnd- um í prófastsdæminu formennsku, fundaði valnefnd Garðaprestakalls á tveimur fundum í alls fjórtán klukkustundir þegar tekin voru við- töl við alla umsækjendur, farið yfir umsóknir og þær metnar. „Niður- staða valnefndar og rökstuðning- ur ásamt fundargerðum voru send- ar biskupi sem féllst á niðurstöðu valnefndar og skipaði séra Þráinn í embættið. Með mér og nefndinni starfaði auk þess löglærður fulltrúi biskups, eins og áskilið er í starfs- reglum. Valnefnd Garðaprestakalls starfaði algjörlega eftir gildandi lögum og starfsreglum um val og veitingu prestsembætta. Því get ég ekki annað en vísað á bug fullyrð- ingum séra Skírnis um annað,“ seg- ir séra Þorbjörn Hlynur Árnason prófastur í samtali við Skessuhorn. mm Akraneskirkja.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.