Skessuhorn


Skessuhorn - 04.02.2015, Blaðsíða 12

Skessuhorn - 04.02.2015, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 2015 Keppni í sextán liða úrslitum Út- svars spurningakeppni Ríkissjón- varpsins er rúmlega hálfnuð og að- eins þrjár viðureignir eftir. Næst- komandi föstudag verður barátt- an um Faxaflóann má segja því þá mætast Akranes og Reykjavík. Lið Akraness, skipað þeim Valgarði Lyngdal Jónssyni, Vilborgu Þ Guð- bjartsdóttur og Vífli Atlasyni, tap- aði naumlega fyrir hinu nesinu við Flóann, Seltjarnarnesi, í 24-liða úr- slitunum en komast áfram sem eitt af fjórum stigahæstu tapliðunum. Helgina þar á eftir, föstudaginn 13. febrúar, er síðan komið að við- ureign Reykjanesbæjar og Fjarða- byggðar. Síðasta viðureign 16-liða úrslita verður síðan þegar hitt Vest- urlandsliðið sem eftir er í keppn- inni, Stykkishólmur, mætir liði Ölf- uss. Sú viðureign verður föstudags- kvöldið 6. mars. þá Háskólinn á Bifröst tekur þátt í hinu alþjóðlega samstarfsverk- efni LawWithoutWalls annað árið í röð. Skólinn er þar í hópi þrjá- tíu þekktra háskóla en þar má nefna Harvard, Stanford, Whar- ton, University of Miami, og Uni- versity College London. Laganem- ar frá Bifröst ásamt Helgu Krist- ínu Auðunsdóttur sviðsstjóra lög- fræðisviðs voru viðstaddir setning- arhátíð verkefnisins og voru þar í hópi rúmlega tvö hundruð laga- nema, fræðimann, lögfræðinga og fjárfesta víðsvegar að úr heiminum. Setningarhátíðin í Dublin í janú- ar markar upphaf þátttakenda að LWOW verkefni sem unnið verð- ur að næstu þrjá mánuði. Þar voru jafnframt myndaðir hópar sem samanstanda af allt að tíu nemend- um og leiðbeinendum. Leiðbein- endurnir eru fræðimenn eða koma úr atvinnulífinu en einnig eru starf- andi lögfræðingar og lögmenn frá Eversheds og öðrum framsæknum fyrirtækjum nemendum til leið- sagnar. Markmið verkefnisins er að nemendur öðlist þekkingu og færni í leiðtogahæfni, hópavinnu, hag- nýtri tækniþekkingu og skapandi og lausnamiðaðri hugsun. Hátt í 450 fræðimenn, áhættufjárfestar, frumkvöðlar, og lögfræðingar víðs- vegar úr heiminum taka þátt í þessu einstaka verkefni. Í ár taka fimm nemendur frá Bif- röst þátt í verkefninu. Það eru þau Arnar Stefánsson, Hjörtur Ingi Hjartarsson, Ásdís Hrönn Ped- ersen og Selma Smáradóttir. Auk þeirra var Sigtryggur Arnþórsson (ekki á mynd) aftur valinn í ár sem sérstakur ráðgjafi í hópastarfi vegna framúrskarandi árangurs frá fyrra ári. Þátttakendur eru laganem- ar sem valdir eru að loknu ströngu umsóknarferli og persónulegu við- tali við fulltrúa frá University of Miami. bþþ Þessi listilega gerði snjókarl, eða snjókona, sit- ur á garðbekk neðan við Bíóhöllina á Akranesi, við Lambhúsasund. Ekki er vitað hver listamaðurinn er, en líklega bíður þessi snjóvera vorsins og hverfur þá á braut. mm/ Ljósm. ki. Hildur Karen Aðalsteinsdóttir er verkefnastjóri umferðarfræðslu í Grundaskóla á Akra- nesi. Hún segir að á undanförnum árum hafi athyglisverður árangur náðst í um- ferðaröryggismálum. „Það má þó aldrei slaka á þó vel hafi tek- ist til og því er mik- ilvægt að benda á tvö atriði sem tengj- ast öryggi barna okk- ar í umferðinni,“ seg- ir Hildur Karen. „Þrátt fyrir að nú sé daginn tekið að lengja er enn myrkur þegar börn á skólaaldri eru á ferðinni. Því er mikilvægt að nota endurskinsmerki á yfirhafnir, ekki síður hjá fullorðna fólkinu sem með því sýnir gott fordæmi. Þá er einnig þörf á að skerpa á reglum um að börn undir 150 cm á hæð mega ekki sitja í framsæti bifreiða sem búnar eru öryggis- púðum. Að sjálfsögðu eiga allir farþegar í bílum einnig að vera spenntir í belti, líka þegar farið er um stuttan veg. Ver- um upplýst og örugg í umferðinni,“ segir Hildur Karen. mm Hópur myndlistarmanna hefur tek- ið á leigu fyrrum húsnæði stjórn- stöðvar Sementsverksmiðjunn- ar á Akranesi og hyggst standa þar fyrir metnaðarfullu starfi. Mark- mið hópsins er að vinna að eflingu mynd- og sjónlistar og standa fyr- ir fjölbreyttri menningarstarfsemi á Akranesi. Síðastliðinn mánu- dag undirrituðu Bryndís Siem- sen og Regína Ásvaldsdóttir bæj- arstjóri leigusamning um húsnæð- ið til tveggja ára. Auk Bryndísar munu myndlistakonurnar sem nýta aðtöðuna verða þær Drífa Gústafs- dóttir, Gyða L. Jónsdóttir Wells, María Kristín Óskarsdóttir og Þór- ey Jónsdóttir. ,,Það er smám saman að færast líf í húsnæði gömlu Sementsverk- smiðjunnar,“ segir Regína Ásvalds- dóttir bæjarstjóri. Síðastliðið haust fékk Skagaleikflokkurinn aðstöðu þar til æfinga og varðveislu leik- muna. Einnig hefur Vegagerðin tekið hluta af fyrrum efnisgeymslu til leigu undir ýmis áhöld. Að sögn Regínu vinnur starfshópur und- ir forystu bæjarfulltrúans Rakel- ar Óskarsdóttur að mótun tillagna um framtíðarskipulag svæðisins. Í janúar í fyrra var haldinn fjöl- mennur vinnufundur með íbúum um framtíð reitsins. ,,Skilaboðin þar frá íbúum voru skýr; flýtið ykk- ur hægt.“ Við viljum hinsvegar nýta rýmin sem best þar til ákvörð- un verður tekin um annað,“ segir Regína. eo Bæjarráð Akra- ness samþykkti á fundi sínum síðast- liðinn fimmtudag að fela bæjarstjóra að leita eftir form- legu samstarfi við þ jóðminjavörs l- una, forsætisráðu- neytið og mennta- og menningar- má la ráðuneyt ið varðandi varðveislu kútters Sigurfara á Safnasvæðinu í Görðum. Í bókun frá fundinum segir að kanna þurfi hvort umrædd styrkveiting geti fal- ið í sér vinnu við gerð verndunar- áætlunar fyrir skipið að hluta eða heild. Slík vinna yrði unnin und- ir forystu Þjóðminjasafnsins. Sam- þykkt bæjarráðs var gerð í fram- haldi af erindi frá fundi menning- ar- og safnanefndar sem haldinn var 21. janúar en þar var lagt til að kútter Sigurfari yrði hlutaður sund- ur og fjarlægður af stalli sínum. Samþykkt nefndarinnar var gerð eftir að fimm milljóna króna styrk úr Græna hagkerfinu var hafnað af nefndinni á þeirri forsendu að lítið yrði gert fyrir þá upphæð. Ástand kúttersins væri orðið slíkt að það byði upp á slysahættu. þá Minnt á endurskinsmerki á yfirhafnir Óskað eftir samvinnu við ríkið um varðveislu kúttersins Myndlistarhópurinn ásamt bæjarstjóra við undirritun samningsins. Myndlist í stað stjórntækja Sementsverksmiðjunnar Bifrestingar taka þátt í alþjóðlegu lagaverkefni Akranes mætir Reykjavík í Útsvari Hvílir sig á bekk við hafið

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.