Skessuhorn - 04.02.2015, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 2015
Tvær ungar konur af Vesturlandi,
þær Halla Sif Svansdóttir og Sig-
urdís Egilsdóttir, eru í framboði
til Stúdentaráðs Háskóla Íslands
og bjóða sig fram fyrir Röskvu.
Halla Sif er frá Dalsmynni í Eyja-
og Miklaholtshreppi en Sigurdís
kemur frá Reykhólum. Halla Sif
stundar nám í heimspeki en Sigur-
dís er í námi til hjúkrunarfræðings.
Röskva er stúdentahreyfing innan
Háskóla Íslands sem tekur virkan
þátt í hagsmunabaráttu stúdenta.
Röskva er samtök félagshyggju-
fólks innan HÍ og hefur grund-
vallarstefna Röskvu alltaf verið sú
sama; jafn réttur til náms. Kosið
verður rafrænni kosningu til Stúd-
entaráðs 4. og 5. febrúar.
mm
Margrét Marteinsdóttir, vert á
Kaffihúsi Vesturbæjar í Reykjavík
og fyrrum frétta- og dagskrágerð-
arkona á RÚV, var á laugardaginn
kjörin formaður stjórnar Bjartrar
framtíðar. Kjörið fór fram á auka-
ársfundi flokksins sem haldinn var
á Akranesi. Margrét hlaut 53%
greiddra atkvæða, en gjaldkeri og
varaþingmaður flokksins, Brynhild-
ur S. Björnsdóttir var einnig í fram-
boði. Stjórnarformaður er annar
formaður flokksins en viðkomandi
stýrir stjórn Bjartrar framtíðar sem
telur 80 manns, hefur umsjón með
málefnastarfi flokksins og er tengi-
liður stjórnar við sveitarstjórnar-
framboð.
Margrét er 43 ára, býr í Reykjavík
og starfar sem vert á Kaffihúsi Vest-
urbæjar. Hún vann í 16 ár á Ríkis-
útvarpinu, lengst af sem fréttakona
en einnig við dagskrárgerð um ára-
bil auk þess að vera varafréttastjóri
og dagskrárgerðarstjóri á Rás 1 og
Rás 2. Fyrir þann tíma vann hún að
mestu við aðhlynningu á hjúkrunar-
heimilum, lengst af á Grund. Hún
hefur starfað með Bjartri framtíð
síðan fyrir síðustu sveitarstjórnar-
kosningar þar sem hún var í fram-
boði í Reykjavík. mm
Dag ur í lífi...
Leikara og leikhússtjóra
Í framboði fyrir Röskvu
til Stúdentaráðs
Nafn: Kári Viðarsson.
Fjölskylduhagir/búseta: Ein-
hleypur með búsetu bæði í Reykja-
vík og á Hellissandi.
Starfsheiti/fyrirtæki: Leikari,
leikhússtjóri, hostelstjóri, listrænn
stjórnandi og framkvæmdastjóri
Frystiklefans í Rifi.
Áhugamál: Vinnan mín, tón-
list, íþróttir og þessa dagana er ég
djúpt sokkinn í heimildamyndir
um samsæriskenningar.
Vinnudagurinn: Fimmtudagur-
inn 29. janúar.
Klukkan hvað vaknaðirðu og
hvað var það fyrsta sem þú gerð-
ir? Ég vaknaði í nettu móki klukk-
an hálf átta þegar ég fékk hring-
ingu frá ferðamanni sem vildi fá
að vita hvar næsta pósthús væri og
hvernig hann kæmist þangað.
Hvað borðaðirðu í morgunmat?
Ég fékk mér ommilettu og heitt
vatn með engifer, sítrónu og hun-
angi. Skúli afi minn segir að hun-
ang sé elixír lífsins og af þeim sök-
um er ég orðinn mikill hunangs-
neytandi.
Hvenær fórstu til vinnu og
hvernig? Vinnan mín hófst fyr-
ir framan tölvu í dag þannig að ég
gekk bara frá morgunverðarborð-
inu að tölvunni, sirka tólf skref.
Fyrstu verk í vinnunni: Svara
tölvupóstum frá áhugasömum
listamönnum sem vilja ólmir kom-
ast í Rif til að vinna og taka saman
og svara miðapöntunum fyrir leik-
sýninguna MAR sem gengur eins
og vel smurð vél í Frystiklefanum
þessa dagana.
Hvað varstu að gera klukkan 10?
Vinna í umsókn vegna komandi
verkefna og ganga frá reikningum.
Sem betur fer aðstoðar faðir minn
mig, Viðar „Wez“ Gylfason. Hann
er algjör meistari í bókhaldi og án
hans snilldarlegu tölvukunnáttu,
óþrjótandi þolinmæði og framúr-
skarandi reiknigetu væri ég löngu
búinn að fá taugaáfall yfir þessum
þætti fyrirtækjarekstursins.
Hvað gerðirðu í hádeginu? Þetta
var svakalega ánægjulegt hádegi.
Ég var að skrifa undir samstarfs-
samning við Snæfellsbæ. Samn-
ingurinn leggur grunn að auknum
umsvifum Frystiklefans í bæjarlíf-
inu og mun skila sér í meiri menn-
ingu og skemmtilegheitum í Snæ-
fellsbæ árið 2015. Það er frábært
að vinna í bæjarfélagi sem kann
að meta fjölbreytni í atvinnulíf-
inu og skilur mikilvægi menning-
ar og lista. Ég er stoltur af þessum
samningi og vona að hann verði
fordæmisgefandi fyrir önnur bæj-
arfélög á komandi árum.
Hvað varstu að gera klukkan 14:
Ég var í Frystiklefanum að sinna
daglegum hostelrekstri sem snýst
aðallega um þrif og að blanda geði
við gesti.
Hvenær hættirðu og það síðasta
sem þú gerðir í vinnunni? Ég
hætti um sex og það síðasta sem
ég gerði var að keyra ljós og hljóð
á generalprufu danssýningarinn-
ar Martröð. Sýningin er afrakst-
ur dvalar suður-afríska dansarans
Oupa Sibeko í Frystiklefanum.
Oupa var með aðsetur í klefanum
síðustu vikurnar og frumsýnir á
morgun þetta nýja verk. Það verð-
ur frítt inn og Oupa er hrikalega
spenntur fyrir því að sýna í fyrsta
sinn fyrir framan íslenska áhorf-
endur.
Hvað var í kvöldmat og hver
eldaði? Ég var í mat hjá mömmu.
Hún eldaði fyrirtaks rétt sem hún
kallaði T.T.Í.Í. og stendur fyr-
ir Tekið til í ísskápnum. Þetta var
einhverskonar blanda af kjúklingi,
lífrænt ræktuðu spagettíi, ýmis
konar grænmeti, grísku jógúrti,
feta osti og hvítlaukspestói. Þessu
tókst henni að splæsa saman í því-
líka veislu fyrir bragðlaukana að
orð fá því ekki lýst.
Hvernig var kvöldið? Ég
tók að mér að dæma í söngva-
keppni félagsmiðstöðvarinn-
ar hér í bænum. Þetta var hörð
keppni þar sem margir hugrakk-
ir krakkar tóku lagið. Greinilegt
að það er gomma af hæfileikum
í boði og ég er viss um að sig-
urvegararnir í kvöld eiga góðan
séns á að rúlla upp Samfés í höll-
inni 2015.
Hvenær fórstu að sofa? Alltof
seint.
Hvað var það síðasta sem þú
gerðir áður en þú fórst að
hátta? Ég byrjaði að lesa bók-
ina Nemesis. Þetta er grjótharð-
ur norskur krimmi sem rígheld-
ur. Mæli með henni.
Hvað stendur upp úr eftir
daginn? Að skrifa undir tíma-
mótasamning við Snæfellsbæ.
Það var hápunktur dagsins, ef
ekki mánaðarins.
Eitthvað að lokum? Leiksýn-
ingin MAR. Byggð á sannsögu-
legum atburðum. 5 stjörnur. Aft-
ur 5 stjörnur. Áhorfandi sagði:
„Ég er ennþá að hugsa Mar, 6
dögum eftir sýninguna.“ Að-
eins sýnt í Frystiklefanum í Rifi.
Ókeypis gisting fyrir þá leik-
húsgesti sem ferðast úr öðrum
bæjarfélögum. Áhorfendur ráða
miðaverðinu sjálfir og mega ráð
hvort þeir borga fyrir eða eft-
ir sýninguna. Orðið á götunni:
„Leikhústilboð aldarinnar“.
Guðmundur Steingrímsson og Margrét Marteinsdóttir.
Margrét kjörin stjórnarfor-
maður Bjartrar framtíðar
Nýtt dansverk frumflutt í Frystiklefanum í Rifi
Síðastliðinn föstudag frumsýndi
suður-afríski dansarinn Oupa Si-
beki nýtt verk sitt í Frystiklefan-
um í Rifi. Hann er gestalistamað-
ur í Frystiklefanum og hefur dvalið
þar um hríð við undirbúning sýn-
ingarinnar. Dansatriði hans nefn-
ist Martröð og vinnur Oupa það í
samvinnu við Frystiklefann. Verkið
er gríðarlega orkumikið og fallegt.
Fyrr um daginn var Oupa Sibeki
með danskennslu fyrir grunnskóla-
börn í Ólafsvík og ekki var annað
að sjá en unga fólkið hefði gaman
af kennslunni.
af
Oupa Sibeki í verki sýnu Martröð.
Oupa kenndi grunnskólanemendum dans.
Dansararnir stilltu sér upp fyrir ljósmyndara að lokinni æfingunni.
Sigurdís, til vinstri og Halla Sif.