Skessuhorn


Skessuhorn - 04.02.2015, Blaðsíða 31

Skessuhorn - 04.02.2015, Blaðsíða 31
31MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 2015 Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. auðveldar smásendingar Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR ������� ��������� � e���.�� F ÍT O N / S ÍA Fálki gerði sig heimakominn á laugardaginn á lóð Grundaskóla á Akranesi. Kom hann sér þar fyr- ir og var laugardagsmaturinn máf- ur. Hafði fálkinn um hríð verið að velja sér rólegan stað til að snæða bráð sína á. Gísli Guðmundsson tók meðfylgjandi myndir. mm Eftir þrettán sigurleiki í röð í Dominosdeild kvenna stöðvuðu Kefla- víkurstúlkur sigurgöngu Snæfellskvenna þegar liðin mættust í Keflavík á miðvikudag í liðinni viku. Heimaliðið vann allsannfærandi sigur, 85:72, og lið gestanna virkaði andlaust og Snæfellsliðið ekki líkt sjálfu sér eins og það hefur verið í vetur. Baráttuna, kraftinn og liðsheildina vantaði í þess- um leik. Framan af fyrri hálfleik var þó útlit fyrir hörkuspennandi leik. Eftir fyrsta leikhluta var staðan jöfn 21:21. Leikurinn hélst svo í jafnvægi fram eft- ir öðrum leikhluta en þá áttu heima- stúlkur góðan kafla og voru tíu stigum yfir í hálfleik, 48:38. Svipaður mun- ur hélst á liðunum í seinni hálfleikn- um. Snæfellskonur áttu góðan kafla í lokafjórðungnum en tak heimastúlkna á leiknum var sterkt og þær sigldu sigr- inum heim af öryggi. Kristan McCarthy skoraði 27 stig fyrir Snæfell, tók 10 fráköst og varði 5 skot, Gunnhildur Gunnarsdóttir skoraði 14 stig, Hildur Sigurðardótt- ir 13 og tók 9 fráköst, Berglind Gunn- arsdóttir 9 stig, María Björnsdóttir 4, Hugrún Eva Valdimarsdóttir 2 og Alda Leif Jónsdóttir 1. þá Nýverið var þriðja mót Íslands- meistaramótaraðarinnar í klifri haldið í Reykjavík og tóku sex klifr- arar frá Akranesi þátt. Í hópi 8-12 ára kepptu þau Karl Þór, Hjalti, Gyða, Sylvía og Ástrós Elísabet og í unglingaflokki, 13-15 ára, keppti Brimrún Eir. Öll stóðu þau sig með prýði. Sylvía og Ástrós Elísabet náðu báðar stigamarkmiðum síns flokks með flottri frammistöðu. Sylvía náði 97 stigum í 8-10 ára flokki, þar sem stigamarkmið var 90 stig, og Ástrós Elísabet náði 132 stigum í 11-12 ára flokki þar sem stigamarkmið var 100 stig. Síðasta mót vetrarins fer fram í mars og stefnir Klif-A á þátttöku með þessa efnilegu klifrara, að sögn Þórðar Sævarssonar þjálfara. mm Það var rafmögnuð spenna sem mynd- aðist í Fjósinu í Borgarnesi á fimmtu- dagskvöldið þegar Skallagrímur tók á móti Haukum í Dominosdeild karla í körfunni. Tvíframlengja þurfti leikinn þar sem jafnt var á stigum í leikslok og eftir fyrri framlengingu. Það voru þó Borgnesingar sem höfðu betur í 207 stiga leik; þar sem stigin skiptust 106:101. Skallagrímur leiddi fram- an af leik og var yfir í hálfleik 48:45. Þeir gul-grænklæddu bættu í forskot sitt í síðari hálfleik og voru tíu stig- um yfir 83:73 þegar tæpar fjórar mín- útur voru eftir. Þá kom góður kafli hjá Hafnfirðingum sem sættu lagi og jöfnuðu leikinn 84:84 þegar einung- is fáeinar sekúndur voru eftir. Skalla- grímsmenn reyndu að ljúka leiknum en skot Sigtryggs Arnars Björnssonar í leikslok geigaði. Framlenging var því staðreynd og mátti greina hroll hjá mörgum stuðningsmönnum á pöll- um Fjóssins sem eftir nýlega reynslu höfðu ekki áhuga á framlengingu. Í seinni framlengingunni náðu Skalla- grímsmenn að klára þetta og voru ósvikin fagnaðarlæti heimamanna á pöllunum, en þá var verulega farið að þyrsta í stigin. Þar með eru sex stig í húsi og tíunda til ellefta sætið í deild- inni. Hjá Skallagrími var Sigtrygg- ur Arnar Björnsson atkvæðamest- ur með 36 stig, tók 6 fráköst og átti 7 stoðsendingar. Í næstu umferð sækja Skallagrímsmenn Fjölni heim í Graf- arvoginn og fer sá leikur fram föstu- dagskvöldið 6. febrúar. mm/ Ljósm. óör. Ekki hafði lið ÍA árangur sem erf- iði gegn toppliði Hattar frá Egils- stöðum þegar liðin mættust í fyrstu deildinni í körfubolta í íþróttahús- inu við Vesturgötu á sunnudag. Slök frammistaða Skagamanna í fyrri hálfleiknum kostaði tíu stiga tap, 73:83 og Austfirðingarnir eru því enn með afgerandi stöðu á toppi deildarinnar. Höttur var með fimm stiga forskot eftir fyrsta leik- hluta og vann síðan annan leikhluta mjög sannfærandi, 28:16. Skaga- menn þurftu því að vinna upp 17 stiga mun í seinni hálfleiknum og það tókst þeim ekki þótt þeir ynnu þriðja leikhluta með tveggja stiga mun og væru svo mun betra liðið í lokafjórðungnum. Jamarco Warren var sem fyrr at- kvæðamestur hjá ÍA með 29 stig, Fannar Freyr Helgason skoraði 13 stig og tók 8 fráköst, Áskell Jóns- son og Magnús Bjarki Guðmunds- son skoruðu 8 stig hvor, Ómar Örn Helgason og Erlendur Þór Otte- sen 6 stig hvor og Birkir Guðjóns- son 3 stig. Í næstu umferð mæta Skaga- menn Breiðabliki í Kópavogi nk. föstudagskvöld. ÍA er með 12 stig í fimmta sæti deildarinnar og Breiða- blik í sjötta sætinu með tveimur stigum minna en ÍA. Það er ein- mitt fimmta sætið sem gefur rétt á þátttöku í úrslitakeppninni þar sem barist verður um eitt útvalsdeildar- sæti. Leikurinn er því mjög mikil- vægur báðum liðum. þá Piltarnir í Snæfelli mættu Stjörnunni í Ásgarði síð- astliðið fimmtudags- kvöld í Dominosdeild- inni. Heimamenn byrjuðu betur í leiknum með Shouse og Dag í broddi fylkingar en bestu menn Snæ- fellinga voru Austin Magnus Bracey og Christopher Woods. Stjarnan var því í forystu eftir fyrsta fjórðunginn með 22 stig á móti 17 stigum Snæfell- inga. Illa gekk hjá báðum liðum síð- ustu mínúturnar í leikhlutanum og má þar sem dæmi nefna að Snæfell- ingar voru ekki með nema 22% skot- nýtingu í tveggja stiga skotum. Þeir hresstust til muna í öðrum leikhluta og voru Bracey og Woods enn bestu menn. Snæfellingar komust í 24-26 en þá tóku Stjörnumenn við sér aft- ur og fóru að raða niður þriggja stiga körfum. Heimamenn leiddu með fjórum stigum, 48-44 í hálfleik. Heimamenn héldu nokkurra stiga forskoti framan af í þriðja leikhlutan- um. Snæfellingar áttu sinn besta kafla í leiknum um miðjan leikhlutann. Sveinn Arnar skoraði tvær þriggja stiga körfur í röð og Pálmi og Stef- án fylgdu því eftir með körfu og víti. Snæfell náði forystu á þessum kafla, 62-67. Garðbæingar náðu naumlega forystu aftur og þegar leikhlutan- um lauk var staðan 70-68. Leikurinn hélt áfram að vera jafn og skemmti- legur í upphafi síðasta leikhluta. Snæ- fellingar komust yfir á nýjan leik með Austin Bracey í broddi fylkingar. Eftir það áttu Snæfellingar ekki möguleika. Sóknarleikur þeirra dalaði á sama tíma og Stjörnumenn þéttu vörn- ina. Þegar þrjár mínútur voru eftir af leiknum var munurinn kominn í níu stig, 90-81. Stjörnumenn gerðu svo enn betur og sigruðu með stigaskor- inu 97-88. Austin Magnus Bracey var atkvæða- mestur í liði Snæfellinga með 30 stig. Christopher Woods var næstur með 18 stig og 9 fráköst. Pálmi Freyr Sig- urgeirsson skoraði 10 stig, Stefán Karel Torfason 9 og 4 fráköst, Sveinn Arnar Davíðsson 9 stig, 4 fráköst, Sig- urður Á. Þorvaldsson 8, 6 fráköst og 5 stoðsendingar. Óli Ragnar Alex- andersson var með 4 stig og 4 fráköst. Eftir viðureignina eru Snæfelling- ar í fimmta sæti deildarinnar með 16 stig. Næsti leikur Snæfellinga verður í Hólminum á morgun, fimmtudag kl. 19:15 þegar þeir taka á móti Þór Þ. grþ Vesturlandsliðin sem eftir voru í Bikarkeppn- inni í körfubolta töp- uðu bæði í undanúr- slitum keppninnar um helgina. Skallagrímsmenn börðust eins og ljón á móti Stjörnumönn- um þegar liðin mættust í Borgar- nesi á sunnudagskvöldið en urðu að sætta sig við fimm stiga tap; 97:102. Sami munur var reyndar eftir hvern fjórðunganna fjögurra. Stjarnan fer því í Laugardalshöllina í úrslitaleik- inn. Snæfellskonur höfðu á laugar- daginn tapað óvænt nokkuð stórt fyrir Keflavíkurstúlkum suður með sjó, 81:64. Keflvíkingar fara því enn einu sinni í úrslitaleikinn í Höllinni, en Snæfell sem hefur verið í þeirri stöðu undanfarin ár er úr leik. Skallagrímsmenn lögðu allt í sölurnar á móti Stjörnumönnum, enn og aftur drifnir áfram af Sig- tryggi Arnari Björnssyni og Tracy Smith. Gestirnir náðu þó snemma yfirhöndinni og létu hana ekki af hendi. Skallagrímsmenn seigluðust og hleyptu gestunum aldrei langt frá sér en vantaði herslumuninn til að sigra. Tracy Smith var stiga- hæstur Skallagrímsmanna með 29 stig, Sigtryggur Arnar kom næstur með 26, Páll Axel Vilbergsson 18, Davíð Ásgeirsson 12, Daði Berg Grétarsson 5, Magnús Þór Gunn- arsson 3 og þeir Egill Egilsson og Trausti Eiríksson 2 stig hvor. Kvennaleikurinn í Keflavík var jafn framan af en heimastúlkur þó með frumkvæðið. Þær voru stigi yfir eftir fyrsta leikhluta og fjór- um stigum yfir í hálfleik 33:29. Í seinni hálfleiknum voru Keflavík- urstúlkur mun ákveðnari og sigr- uðu eins og áður segir örugglega 81:64. Ingi Þór Steinþórsson þjálf- ari Snæfells var óánægður með margt í leik síns liðs eftir leikinn. Kristin McCarthy var stigahæst hjá Snæfelli með 22, Hildur Sig- urðardóttir 15, Berglind Gunn- arsdóttir og Helga Hjördís Björg- vinsdóttir 5 stig hvor, Gunnhild- ur Gunnarsdóttir og Hugrún Eva Valdimarsdóttir 4 stig hvor, Silja Katrín Davíðsdóttir 3, Rebekka Rán Karlsdóttir, Alda Leif Jóns- dóttir og María Björnsdóttir 2 stig hvor. þá Keflavíkurstúlkur rufu sigurgöngu Snæfells Snæfellingar lágu í Ásgarði Langþráð stig til Skalla- gríms í tvíframlengdum leik Fálki að snæðingi við Grundaskóla Ástrós Elísabet og Sylvía. Klifurfólk af Akranesi í keppni Vesturlandsliðin töpuðu í undanúrslitum Bikarkeppninnar Jamarco Warren skýtur á körfu Hattar en hann var atkvæðamestur í liði ÍA. Ljósm. Jónas Hallgrímur Ottósson. Skagamenn töpuðu fyrir toppliði Hattar

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.