Skessuhorn


Skessuhorn - 04.02.2015, Blaðsíða 24

Skessuhorn - 04.02.2015, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 2015 Sóknarhugur var í fólki á ráð- stefnu um framtíð háskóla í Borgarbyggð sem haldinn var í Hjálmakletti, mennta- og menn- ingarhúsinu í Borgarnesi síð- astliðinn föstudag. Ráðstefnan var vel sótt og fundarsalurinn í Hjálmakletti þétt skipaður. Meðal gesta og frummælenda á fundinum var Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra en talsvert var rætt um nýjasta útspil menntamála- ráðuneytisins varðandi skipulag há- skólastarfs í landinu, það að há- skólanir þrír í Norðvesturkjördæmi, Landbúnaðarháskólinn á Hvann- eyri, Viðskiptaháskólinn á Bifröst og Háskólinn á Hólum verði gerðir að sjálfseignastofnunum en rekstur þeirra sameinaður. Ráðherra sagði að með þessu væru áformin ekki að kroppa nokkur stöðugildi af skól- unum til fjárhagslegar hagræðing- ar, heldur væri markmiðið að finna möguleika til að styrkja þá og skapa þeim ákveðna sérstöðu til viðbótar og fjölbreytni öðru háskólastarfi í landinu. Ráðherra boðaði að í und- irbúningi væri stofnun starfshóps sem myndi vinna að þessu verkefni. Ætlunin væri að í þeim hópi yrðu, auk fulltrúa ráðuneytis og úr há- skólasamfélaginu, sveitarstjórnar- menn og fulltrúar atvinnulífsins. Útkoman verður að vera öflug menntastofnun Rektorar háskólanna í Borgarbyggð voru meðal frummælenda á fund- inum. Vilhjálmur Egilsson rekt- or Háskólans á Bifröst sagði skóla- starf í mikilli sókn og nemend- um væri að fjölga. Námsframboð í skólanum væri öflugt og nýjan lín- an í „Forystu og stjórnun“ algjör- lega að slegið í gegn. Með áform- um um sameiningu háskólanna í Borgarfirði yrði að leggja upp með að útkoman yrði öflug mennta- stofnun. Björn Þorsteinsson, rektor LhbÍ á Hvanneyri, kvaðst hafa efa- semdir um sjálfeignastofnunar-fyr- irkomulagið, en skipulögðu undan- haldi Landbúnaðarháskólans yrði engu að síður að linna og landbún- aðarmenntun yrði að efla í landinu. Kolfinna Jóhannesdóttir, sveitar- stjóri Borgarbyggðar, kvaðst mjög ánægð með ráðstefnuna og einn- ig hugmyndina um sameiningu há- skólanna þriggja. Sagðist hún sjá ákveðin tækifæri í því og hugmynd- in væri í þeim anda sem heimafólk hefði rætt. Hvatt var til þess á fund- inum að starf vinnuhópsins myndi hefjast sem fyrst. Það var Fram- farafélag Borgfirðinga sem síðasta haust fór af stað með hugmynd um ráðstefnuna en að henni stóðu einnig Borgarbyggð og háskólarnir á Bifröst og Hvanneyri auk Snorra- stofu. Erum langflottust! Eftir að Guðveig Eyglóardótt- ir, forseti sveitarstjórnar Borgar- byggðar, hafði sett ráðstefna flutti Vilhjálmur Egilsson, rektor Há- skólans á Bifrös,t fyrsta framsögu- erindið. Þar kvað strax við sterk- an tón sem varð síðan einkennandi fyrir framvinduna á ráðstefnunni og margir ræðumanna vitnuðu í orð Vilhjálms um að á Bifröst væru menntaðir heimsborgarar með rætur í sveitinni. Fólk sem stend- ur sig alls staðar og kann muninn á metnaði og græðgi, forystufólk í atvinnulífi og samfélagi. Vilhjálm- ur sagði Háskólann á Bifröst vissu- lega eiga erindi við samfélagið. Þar væru kennsluhættir í fremstu röð, kennsluaðferðir sem meðal annars byggjast á verkefnavinnu og hóp- vinnu. Áhersla væri lögð á tenging- ar og samstarf við atvinnulífið, svo sem með verkefnum í rekstraráætl- unum, vaxtarklasaverkefnið, Rann- sóknastofnun atvinnulífsins og Rannsóknasetur verslunarinnar var meðal þess sem Vilhjálmur nefndi. Vilhjálmur sagði að jafnframt sem sótt væri fram í auknu námsfram- boði sem þegar væri sýnt að hafði slegið í gegn, væri nemendafjöld- inn að aukast. „Við náum árangri með því að treysta á okkur sjálf. Við þurfum sífellt að sanna okkur og ávinna okkur tiltrú,“ sagði Vil- hjálmur. Í umræðum í pallaborði, þegar fram kom að flestir íslensku háskólarnir væru örskólar miðað að háskóla erlendis, sagði Vilhjálmur. „Þó við séum lítill skóli erum við langflottust!“ Áhrif háskóla á samfélagið Kolfinna Jóhannesdóttir, sveit- arstjóri Borgarbyggðar og fyrr- verandi skólameistari Mennta- skóla Borgarfjarðar, flutti fram- sögu um hlutverk háskóla í þró- un svæða. Hún sagði að bæði inn- lendar og erlendar rannsóknir hafi sýnt að þessi áhrif væri bæði efna- hagsleg og félagsleg í samfélaginu. Staðsetningin hefði aðdráttarafl á staðsetningu stofnana og fyrir- tækja, væri hvati á stofnun sprota- fyrirtækja, hefði áhrif á menntunar- stig á svæðum og mannfjöldaþróun og þar með aukið framboð á vinnu- afli. Kolfinna vitnaði einnig til þess að staðsetning háskóla virtist hafa mikil áhrif á kynjahalla og skapa mikla eftirspurn eftir menntuðu fólki. Kannanir hefðu sýnt mikla fjölgun fólks á aldrinum 25-34 ára og fjölgun kvenna í Borgarbyggð í samanburði við önnur svæði. Kol- finna vitnaði þar til rannsóknar Vífils Karlssonar, hagfræðings hjá SSV. Anna Karlsdóttir, fyrrverandi lektor við umhverfisskipulagsbraut LbhÍ, sem starfar nú við háskóla í Svíþjóð fjallaði í fyrirlestri sínum um svæðisþróun og starfsemi há- skóla. Anna greindi frá könnun sem gerð var um það efni í norrænum háskólum og í niðurstöðum hennar væri mikil samsömun við þær nið- urstöður sem fram komu hjá Kol- finnu og vitnað var í rannsóknir og könnun Vífils Karlssonar. Sendi sveitarstjórnar- mönnum tóninn Eflaust biðu margir framsögu Björns Þorsteinssonar rektors Landbúnað- arháskóla Íslands og vissulega vakti hún athygli. Sumir ráðstefnugest- ir veltu því jafnvel fyrir sér hvort rektor hafi þarna verið að flytja sína kveðjuræðu sem stjórnandi skól- ans, aðrir töldu að innlegg hans í umræðuna væri gott. Björn sagði í upphafi síns máls að eitt heild- areinkenni íslenska háskólakerfis- ins væri vanfjármögnun. Hann fór vítt og breidd yfir sviðið að Háskól- ar á Íslandi eiga sér í alþjóðlegum samanburði ekki langa sögu. Þann- ig eigi raunverulegur háskólarekst- ur í alþjóðlegum skilningi, þar sem tvinnað er saman rannsóknum og kennslu, ekki lengri en 15-25 ára sögu. Björn benti á mikilvægi þess að menn átti sig á því að Landbún- aðarháskólinn sé ekki borgfirsk- ur háskóli. „Hann er þjóðarháskóli á sínu sviði en er að hluta til stað- settur í og með höfuðstöðvar sínar í Borgarfirði í sveitarfélaginu Borg- arbyggð sem telur 1,08% lands- manna. Skólinn er rekinn af ríkisfé en nærist af litlu eða engu leyti af heimafengnum afla úr héraði. Hins vegar nærist nærsamfélagið af skól- anum en sú staðreynd hefur skot- ið þeirri hugmynd niður í kollinn á sveitarstjórnarmönnum að þar með geti þeir gert tilkall til íhlutun- ar um málefni skólans, t.d. virkjað þingmenn og samtök bænda til að stöðva áform menntamálaráðherra um sameiningu HÍ og LbhÍ sem kynnt voru á síðasta ári í samræmi við markaða stefnu þessara skóla og lögbundna lögsögu þeirra í eigin málum. Þetta er dæmi um hvernig stjórnvöld og menntastofnanir sem eiga að fara með sjálfræði í eigin málum hafi verið svipt þessum lög- bundna rétti til að fara með eigin mál. Það væri lögfræðilega áhuga- vert úrlausnarefni að gera stjórn- sýsluúttekt á hvaða merkingu slík forræðissvipting hefur gagnvart lögum og Stjórnarskrá.“ Ráðherra boðaði breytta tíma Að sama skapi biðu margir eftir ræðu Illuga Gunnarssonar mennta- málaráðherra. Ráðherra gat þess í upphafi að hann hafi verið mjög hugsi vegna framgöngu sinnar þeg- ar hann ræddi framtíð Landbún- aðarháskólans á Hvanneyri við heimamenn í Borgarfirði fyrir um ári. Hann hefði eftir á að hyggja ekki staðið sig þar nógu vel, byrjun- in á þeirri kynningu hafi ekki verið nógu góð að sinni hálfu. Ráðherra kynnti síðan hugmyndir sínar um sameiginlegan rekstur háskólanna þriggja í Norðvesturkjördæmi og stofnun sjálfseignarfélags um hvern þeirra. Draga yrði fram sérstöðu hvers skóla og skoða sóknarfærin. Takmarkið væri að skapa með þessu öfluga skólastofnun. Starfshópur með breiða skírskotun yrði stofn- aður á næstunni. Ráðherra varði einnig talsverðum tíma í að ræða nauðsyn þess að endurskoða skóla- kerfið á Íslandi, m.a. með það að markmiði að gera það hnitmiðaðra og hagnýtara. Ekki veitti af þegar sú staðreynd blasti við að þjóðfé- lagið og aldurssamsetning væri að breytast í þá veru á skömmum tíma Sóknarhugur á ráðstefnu um framtíð háskólanna Björn Þorsteinsson rektor LbhÍ, Vilhjálmur Egilsson rektor Háskólans á Bifröst og Kolfinna Jóhannesdóttir, sveitarstjóri í Borgarbyggð, voru meðal frummælenda á fundinum. Ráðstefnan var vel sótt. Pallborð var á seinasta hluta ráðstefnunnar og til þeirra sem þar voru fyrir svörum var beint fjölda spurninga.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.