Skessuhorn - 04.02.2015, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 2015
Átta umferðaró-
höpp og fjöldi
sekta
VESTURLAND: Ekið var
á hross á Vesturlandsvegi við
Grundartanga í gærmorgun.
Hrossið hafði sloppið úr nær-
liggjandi girðingarhólfi. Hross-
ið slasaðist við óhappið og hafði
lögregla samband við eiganda
þess. Átta umferðaróhöpp urðu
í umdæmi lögreglunnar á Vest-
urlandi í liðinni viku öll án telj-
andi meiðsla á fólki. Nokkrir
ökumenn hafa verið sektaðir fyr-
ir að vera ekki með handfrjálsan
búnað er þeir tala í farsíma við
akstur. Þá voru nokkrir ökumenn
sektaðir fyrir að nota ekki bíl-
belti. Að undanförnu hafa nokkr-
ir ökumenn verið stöðvaðir fyr-
ir að hreinsa ekki ísingu og klaka
af rúðum þannig að útsýni hef-
ur verið takmarkað. Einn þessara
ökumanna reyndist auk þess vera
á ótryggðu ökutæki og síðast en
ekki síst hafði hann verið sviptur
ökuréttindum fyrir nokkru. Ann-
ar ökumaður var tekinn vegna
gruns um akstur undir áhrifum
fíkniefna. Við leit á heimili hans
fundust kannabisefni og meint-
ir sterar, ásamt neyslutólum. Alls
voru skráningarnúmer klippt af
tólf ökutækjum í umdæmi lög-
reglunnar á Vesturlandi í liðinni
viku. Var það vegna þess að eig-
endur eða umráðamenn höfðu
trassað að greiða tryggingar og
færa bílana til skoðunar. –þá
Hollvinir Hnoðra-
bóls vilja lausn
BORGARFJ: Hollvinir leik-
skólans Hnoðrabóls í Borgarfirði
hafa hafið söfnun undirskrifta á
fésbókarsíðu þar sem skorað er
á sveitarstjórn Borgarbyggðar
að fundin verði framtíðarlausn
á húsnæðisvanda leikskólans hið
fyrsta og liður til þessa á fjárhags-
áætlun sveitarfélagsins verði end-
urskoðaður. „Í dag rúmar leik-
skólinn 20 börn og er fullsetinn.
Í ljósi mikillar uppbyggingar á
svæðinu er nauðsynlegt að stækka
skólann auk þess sem hann hefur
starfað við ófullnægjandi aðstæð-
ur um árabil. Við viljum veg leik-
skólans okkar sem mestan þannig
að okkar blómlega samfélag geti
haldið áfram að vaxa og dafna.
Uppgangur svæðisins er ekki
einungis til að sveitarstjórnar-
menn geti minnst á hann á tylli-
dögum, mikilvægt er að hlúa að
grunnstoðunum hér rétt eins og
annarsstaðar í sveitarfélaginu og
viljum við að allir íbúar sveitar-
félagsins sitji þar við sama borð,“
segir í áskorun hollvina Hnoðra-
bóls. –mm
Ráðist í sjóvörn
við Skipanes
MELASVEIT: Skipulagsstofn-
un komst að þeirri niðurstöðu í
desember síðastliðnum að fyr-
irhuguð sjóvörn við Skipanes í
Hvalfjarðarsveit sé ekki líkleg
til að hafa í för með sér umtals-
verð umhverfisáhrif. Niðurstað-
an var að framkvæmdin skuli
ekki háð mati á umhverfisáhrif-
um. Umhverfis,- skipulags- og
náttúruverndarnefnd Hvalfjarð-
arsveitar samþykkti á fundi sín-
um miðvikudaginn 21. janúar sl.
að leggja til við sveitarstjórn að
framkvæmdaleyfi verði veitt að
undangenginni grenndarkynn-
ingu fyrir landeiganda Skipaness
og Skipaness 2, í samræmi við
ákvæði skipulagslaga. –þá
Skólagjöld ekki
útilokuð
NV-KJÖRD: Katrín Jakobs-
dóttir formaður Vinstri grænna
og fyrrverandi menntamála-
ráðherra, spurði Illuga Gunn-
arsson menntamálaráðherra
á mánudaginn út í hugmynd-
ir um sameiningu Háskólans á
Bifröst, Landbúnaðarháskól-
ans á Hvanneyri og Háskólans á
Hólum. Katrín spurði ráðherra
hvort gerð hafi verið fýsileika-
könnun af hálfu ráðuneytisins
á annars vegar faglegum ávinn-
ingi af sameiningu og hins veg-
ar á fjárhagslegum ávinningi.
Katrín spurði einnig sérstaklega
um rekstrarform sameinaðs há-
skóla og hvort til stæði að taka
upp skólagjöld í skólanum eins
og gert er á Bifröst. Í svari sínu
sagði menntamálaráðherra að
rekstrarform sameinaðs háskóla
væri líka til skoðunar í ráðuneyt-
inu og kvaðst opinn fyrir öllum
hugmyndum. Illugi tók ekki fyr-
ir upptöku skólagjalda á Hvann-
eyri og á Hólum. Ráðherra vís-
aði ekki til gagna sem sýndu
fram á faglegan ávinning af sam-
einingu háskólanna. –mm
Valnefnd enn að
fjalla um rektors-
ráðningu
HVANNEYRI: Í desember
síðastliðnum rann út umsóknar-
frestur um stöðu rektors Land-
búnaðarháskóla Íslands. Há-
skólaráð ákvað að vísa umsókn-
um til valnefndar en í henni
sitja Ásgeir Jónsson, Guðfinna
Bjarnadóttir og Torfi Jóhannes-
son. Valnefndin er enn að störf-
um og segist Ásgeir Jónsson for-
maður valnefndarinnar reikna
með að ráðning rektors muni
liggja fyrir á næstunni, alla vega
í þessum mánuði. Sjö sóttu um
rektorsstöðuna en einn umsækj-
andi dró umsóknina til baka.
Eftir standa umsóknir frá nú-
verandi rektor Birni Þorsteins-
syni auk umsókna frá Guð-
mundi Kjartanssyni, Ívari Jóns-
syni, Jóni Örvari G. Jónssyni,
Sigríði Kristjánsdóttur og Þór-
unni Pétursdóttur. –þá
Þessa dagana er Stafnafell ehf. að
leggja lokahönd á sjóvarnargarð við
Írskrabrunn rétt vestan við Gufu-
skála. Á þessi garður að koma í veg
fyrir að grjót og sjór berist í brunn-
inn. Garðurinn er 50 metra lang-
ur og um 500 til 600 rúmmetr-
ar af efni sem fara í hann. Þess má
geta að þegar Stafnafell var búið
að vinna undirvinnu fyrir garðinn
og undirbúa grjóthleðslu gekk ein
óveðurslægðin yfir. Gekk þá sjór og
stórgrýti langt upp á land og ofan
í brunninn. Verkinu lýkur endan-
lega í vor þegar umhverfið í kring-
um garðinn verður snyrt til.
þa
Búið er að ganga frá sölu verslana
Omnis í Borgarnesi og Reykja-
nesbæ og unnið að sölu verslunar-
innar við Dalbraut 1 á Akranesi. Að
sögn Bjarka Jóhannessonar sölu-
og markaðsstjóra Omnis var tek-
in ákvörðun um að einfalda rekstur
fyrirtækisins. „Við erum með þess-
um breytingum að einbeita okk-
ur að kjarnastarfsemi okkar sem
er umsjón og viðhald upplýsinga-
kerfa í fyrirtækjum. Þar með tal-
ið er t.d. vefsíðugerð, rekstur net-
þjóna og viðhald tölvu- og hug-
búnaðar,“ segir Bjarki. Í Borgar-
nesi var það Ómar Örn Ragnarsson
sem keypti verslunina við Borgar-
braut og mun hann áfram vinna í
nánu samstarfi við Omnis varðandi
ýmsa þjónustu. Verslunin í Borgar-
nesi mun áfram heita Omnis. Sama
fyrirkomulag var viðhaft við sölu
verslunar Omnis í Reykjanesbæ.
Þar er það Björn Ingi Pálsson, sem
var líkt og Ómar Örn hluthafi og
starfsmaður, sem keypti verslunar-
reksturinn. Sala beggja verslananna
er frágengin og opnuðu þær í byrj-
un febrúar með nýjum eigendum.
Að sögn Bjarka Jóhannessonar er
ekki búið að ganga frá neinu varð-
andi sölu verslunarinnar á Akra-
nesi, en þar eru áhugasamir aðil-
ar að skoða kaup. „Það eru mikil
tækifæri í þessari verslun, ágæt af-
koma og vöxtur fyrirsjáanlegur á og
í nágrenni Akraness. Þar var nýlega
bætt við söluumboði fyrir Ormsson
en verslununum fylgir einnig um-
boð fyrir TM tryggingar og Sím-
ann.
„Viðskiptavinir okkar geta því
gert ráð fyrir að áfram verði rekn-
ar verslanir, líklega allar áfram und-
ir nafni Omnis, með svipuðu sniði
og á sömu stöðum. Heimamenn á
hverjum stað taka hins vegar við
þeim bolta og munu setja sitt mark
á reksturinn,“ segir Bjarki. Fyrir
sölu verslananna störfuðu fjörutíu
hjá Omnis. Starfsmenn verða eft-
ir þessar breytingar 23, með starfs-
stöðvar á Akranesi, við Síðumúla
11 í Reykjavík og í Reykjanesbæ.
Störfum fækkar um tvö til þrjú í
skrifstofuhaldi við þessar breyting-
ar. Á Akranesi munu fimm tækni-
menn sinna þjónustu við fyrirtæki á
Vesturlandi og er það sami fjöldi og
verið hefur.
mm
Garður til varnar Írskrabrunni
Á myndinni eru Bjarki Jóhannesson sölu- og markaðsstjóri og Andrés Hallgríms-
son framkvæmdastjóri Omnis.
Omnis selur verslanir sínar og
einblínir á upplýsingtæknina