Skessuhorn - 04.02.2015, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 2015
Bakaríið Brauðval á Akranesi, sem
varð 25 ára á síðasta ári, opnaði af-
greiðslu og veitingastofu á nýjum
stað síðastliðinn föstudag. Það er
nú í húsinu Mörk við Skólabraut.
Þrátt fyrir að Ingimar Garðarsson
bakari hafi ákveðið að fara hljóð-
lega með opnunina í fyrstu var
margt fólk sem lagði leið sína til
hans og greinilegt að viðskiptavin-
ir fögnuðu þessari viðbót á bakar-
ísmarkaðinn á Skaganum. Brauðval
hefur síðustu árin verið til húsa við
Vallholt á Akranesi en áður var það
um árabil rekið í Búðardal. Nú er
starfsemin flutt í framtíðarhúsnæði
við Skólabraut í hús sem segja má
að sé þrungið sögu bakaría. Fróðir
menn segja að þetta sé sjöunda bak-
aríið sem opnað er í húsinu. Ingi-
mar byrjaði þar sjálfur sitt iðnnám
árið 1977 í Harðarbakaríi. Hann
segir að það bakarí, ásamt Alþýðu-
brauðgerðinni, eigi sér langsam-
lega lengsta sögu í húsinu. „Það má
segja að ég sé kominn heim aftur.
Ég stefni á að koma upp myndum í
veitingasalnum af forverum mínum
og starfseminni hérna í húsinu. Það
væri mjög gaman að geta komið því
í verk,“ sagði Ingimar.
Vill skapa sér sérstöðu
Ingimar er núna að stækka veru-
lega við sig og auka starfsemina.
Aðspurður segir hann að liður í
stækkuninni hafi verið að kaupa
nýjan ofn, steinofn þar sem að sjálf-
sögðu verða steinbökuð brauð sem
auki fjölbreytnina í framleiðslunni
til muna. Hann segist líka ætla að
auka framboðið í kaffibrauði og
meðlæti og reyna að skapa sér sér-
stöðu. „Ég vona að það verði til þess
að bæði heimafólk og ferðamað-
urinn geti valið úr meiru en boð-
ið er upp á hérna í bænum. Þannig
að þetta verði viðbót við það sem í
boði er nú þegar. Ég verð hér með
veitingastofu og kaffi. Ég ætla þó
ekki að efna til beinnar samkeppni
við hin kaffihúsin eða matsölu-
staðina í bænum, heldur eins og
ég segi skerpa frekar á minni sér-
stöðu og bakarísins. Að sjálfsögðu
er full ástæða til að fyrirtækin starfi
saman í þeim tilgangi að efla þjón-
ustuna og laða fleiri ferðamenn til
bæjarins,“ segir Ingimar. Hann seg-
ir að einnig verði stílað upp á rúm-
an opnunartíma bæði virka daga og
um helgar. Á virkum dögum verði
opið klukkan níu til átján en ekki
sé ákveðið með opnunartíma um
helgar. Í Brauðvali er einnig verið
að standsetja veitingasal sem hægt
verður að leigja fyrir minni sam-
kvæmi og veislur. Búið er að panta
veislu í salnum 14. mars og stefnt
á að hann verði tilbúinn ekki síð-
ar en þá. „Þetta verður svona betri
stofan. Salurinn er ætlaður til að
auka framboð á veislusölum hérna í
bænum og mun líka nýtast ef stærri
hópar myndu leggja leið sína til
okkar í bakaríið,“ segir Ingimar.
Viðbrögðin sýna að full
ástæða er til bjartsýni
Eins og áður sagði byrjaði Ingi-
mar í bakaraiðninni árið 1977 og
hefur lengst af starfað að iðninni.
Hann hefur verið sjálfstætt starf-
andi í rúmlega 25 ár, stofnaði m.a.
Brauðval í Búðardal 27. júní 1989.
Síðustu fimm árin hefur fyrirtækið
verið starfandi á Akranesi. Ingimar
segir að síðustu árin sem fyrirtæk-
ið var starfrækt í Búðardal hafi ekki
verið um fulla starfsemi að ræða.
„Ég var nokkra mánuði í annarri
vinnu og fór vestur annað slag-
ið til að baka. Ég þráaðist þó alltaf
við þótt dregið hafi úr starfseminni
um tíma en hætti aldrei rekstrinum.
Núna er ég svo verulega að færa út
kvíarnar og eftir viðbrögðunum að
dæma er full ástæða til bjartsýni.“
Ingimar segir að við aukna starf-
semi þurfi að huga að því að skipu-
leggja hlutina vel og ljóst að hátt
í tvö stöðugildi muni bætast við í
starfsmannahaldi. „Minn vinnu-
tími mun væntanlega lengjast eitt-
hvað en það fylgir að þegar stækkað
er við sig, að þá má fastlega reikna
með því að vinnan aukist. Það er
betra að hafa meira en minna fyr-
ir stafni,“ sagði Ingimar Garðars-
son bakari.
Færði Ingimar
myndir að gjöf
Þegar Brauðval var opnað síðastlið-
inn föstudag komu ýmsir færandi
hendi til að gleðjast með Ingimar
og hans fólki. Meðal annarra kom
Elías Jóhannesson færandi hendi.
Hann gaf Ingimar innrammaða
mynd sem geymir ljósmyndir sem
tengjast því að faðir hans, Jóhannes
Jónsson bakari, starfaði í 40 ár við
bakstur í bakaríum á þessum stað. Á
einni myndinni, sem er frá 1940, er
Alþýðubrauðgerðin á horni Merk-
urteigs og Skólabrautar. Önnur
ljósmyndin sýnir Jóhannes bakara
en hann lærði bakaraiðn hjá Sig-
mundi Lövdahl í Hafnarfirði og
lauk sveinsprófi 1932. Jóhannes
starfaði fyrst við iðnina í Hafnar-
firði en fluttist síðar á Akranes þar
sem hann starfaði frá 1936 til 1976
í Lövdahlsbakaríi sem árið 1947
varð Alþýðubrauðgerðin. Loks er
á þriðju ljósmyndinni Jóhannes um
1968 með gríðarstórt deig sem varð
að brauði. Myndirnar verða hengd-
ar upp í Brauðvali. þá/mm
Gistiheimilið Iceland Guesthouse
– Hvítá hefur byrjað rekstur á Hvít-
árbakka í Borgarfirði. Það er í hús-
inu á Hvítárbakka sem síðast hýsti
meðferðarheimili fyrir unglinga en
var upphaflega sem orlofshús fyr-
ir starfsmenn varnarliðsins á Mið-
nesheiði. Rekstri meðferðarheimil-
is var hætt í ársbyrjun 2008. Hús-
ið var í eigu Borgarbyggðar og stóð
autt allt það ár. Í árslok 2008 gáfu
vatnslagnir sig innandyra og hús-
ið varð fyrir miklum skemmdum.
Núverandi eigendur, hjónin Ólaf-
ur Gunnarsson og Sigrún Eggerts-
dóttir, keyptu húsið í mars á síðasta
ári. Þau hafa unnið hörðum hönd-
um að viðgerðum og endurbótum
með það fyrir augum að reka þar
gistiheimili.
Friðsæld og
náttúrufegurð
Þar sem húsið var fyrrum meðferð-
arheimili hafði það mörg svefnher-
bergi og aðra aðstöðu til að hýsa
fjölda fólks. Það hentaði því ágæt-
lega að breyta því í gistiheimili.
„Það er mjög góður andi í þessu
húsi. Mér hefur aldrei liðið jafn
vel í neinu húsi eins og þessu. Við
ákváðum að kaupa húsið af Borgar-
byggð í mars á síðasta ári. Ég hafði
ekið mikið með ferðamenn fyrir
Guðmund Tyrfingsson og þann-
ig áttað mig á því hvernig ferða-
fólk vill hafa það hér á Íslandi. Ég
hafði skoðað þetta hús fyrst fyrir
einum þremur árum síðan. Þá stóð
það tómt og hafði gert um nokkurt
skeið eftir að hafa orðið fyrir miklu
vatnstjóni. Ég taldi alveg tilvalið
að breyta því í gistiheimili. Húsið
býður upp á mikla möguleika bæði
fyrir fyrirtæki og ferðamenn sem
koma hér í hópum, sem og einstak-
linga. Þetta er friðsæll staður hér
við bakka Hvítár og mikil náttúru-
fegurð, auk þess sem húsið er mið-
svæðis í Borgarfirði með margar
náttúruperlur og menningarstaði
allt í kring,“ segir Ólafur Gunnars-
son.
Komandi sumar lítur
vel út
Endurbæturnar innandyra voru
mikil vinna. Þau tóku við húsinu í
mars en það var ekki tilbúið fyrir
gesti fyrr en í lok júlí á síðasta ári.
„Við erum búin að gera við vatns-
skemmdirnar og taka húsið allt
í gegn að innan. Við hófum ekki
rekstur fyrr en í lok sumars á síð-
asta ári. Veturinn núna höfum við
svo nýtt til að markaðssetja okkur
frekar, en við höfum líka haft opið
hér. Við getum tekið 25 manns
með góðu móti. Til viðbótar því
erum við svo með sal hér á neðri
hæð sem nýta mætti fyrir fundar-
aðstöðu. Ef honum yrði hins vegar
breytt í gistirými þá yrði hér pláss
fyrir um 40 manns. Aðstaðan hér í
dag er orðin mjög góð. Þetta leggst
því mjög vel í mig. Bókanir eru
farnar að streyma inn fyrir sumar-
ið,“ segir Ólafur.
mþh
Ljósmynd af myndunum sem Elías færði Brauðvali.
Ingimar bakari segist vera kominn heim
Fjöldi viðskiptavina mætti þegar Brauðval var opnað formlega sl. föstudag.
Ljósm. mm.
Ingimar bakari við nýja steinofninn sem hann bætti við vélakostinn. Ljósm. þá.
Elías Jóhannesson færði Ingimar innrammaðar ljósmyndir með sögukornum.
Myndirnar tengjast allar bakaríum á þessum stað. Ljósm. mm.
Gistiheimili á Hvítárbakka meðal nýrra sprota í ferðaþjónustunni
Húsið sem áður hýsti meðferðarheimilið á Hvítárbakka er nú orðið gistiheimilið
Iceland Guesthouse Hvítá.
Ólafur Gunnarsson og Sigrún Eggerts-
dóttir eiga og reka gistiheimilið.