Skessuhorn - 04.02.2015, Page 15
15MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 2015
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Óskum Brynjari og Önnu Lísu til hamingju með
nýtt fjós að Refsstöðum
Skattframtöl / bókhald
Öll almenn bókhaldsþjónusta og skattframtöl fyrir
einstaklinga og fyrirtæki.
Lilja Halldórsdóttir - Viðurkenndur bókari
LH bókhald ehf
LHbokhald@gmail.com Finndu okkur á facebook
Upplýsingar í síma 897 5144
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5Hjónin Sigurjón Hilmarsson og
Rut Einarsdóttir í Ólafsvík vinna
nú hörðum höndum ásamt iðnað-
armönnum að því að byggja upp
gistiheimili í bænum. Þau festu
kaup á efri hæð hússins við Ólafs-
braut 55, þar sem líkamsræktar-
stöðin Sólarsport var áður til húsa.
Húsnæðið stendur niðri við sjó og
því hefur gistiheimilið fengið nafn-
ið „Við hafið.“ Að sögn Sigurjóns
hafa þau unnið að því undanfarn-
ar vikur að rífa allt út úr húsnæð-
inu og eru nú farin að byggja upp.
„Við ætlum að vera með fimmtán
herbergi, allt frá tveggja manna
herbergjum með salerni og sturtu
inni á herbergjunum og upp í að
vera með tíu manna herbergi með
kojum. Við munum því bjóða upp á
allt frá svefnpokaplássi upp í uppá-
búin rúm með baðherbergi,“ segir
Sigurjón í samtali við Skessuhorn.
Hann segir að á jarðhæð húss-
ins verði tvö stór herbergi. „Ann-
að þeirra er 24 fermetrar og hitt 27
fm. Þar verður aðgengi fyrir fatlaða
og þau herbergi verða með sturtu
og salerni og jafnvel smá borð-
króki, með eldunaraðstöðu og ís-
skáp. Á efri hæðinni verða ekki sal-
erni inni á herbergjunum, heldur
verður salernisaðstaða sameiginleg
á þeirri hæð.“ Hann bætir því við
að gestir geti svo valið um kaup á
morgunverði.
Mikil þörf á gistirými
Sigurjón segist hafa grandskoðað
málið áður en þau hjónin ákváðu
að hella sér út í ferðaþjónustu-
bransann. „Ég komst meðal ann-
ars að því að miðað við aukningu
á ferðamönnum á tímabilinu 2012
til 2013 var þörf á 14% aukningu
á gistirými hérna á Snæfellsnesinu
en því fjölgaði einungis um 4% á
þeim tíma. Einnig sá ég að af öllum
ferðamönnum sem koma til lands-
ins vilja 22% koma í Þjóðgarðinn
á Snæfellsnesi og 18% þeirra vilja
fara í siglingu um eyjar Breiðafjarð-
ar. Þetta gerir fólk ekki á einum
degi,“ segir hann. Þá bætir hann
því við að mágkona hans, sem rek-
ur veitingastað í Ólafsvík, hafi oftar
en ekki orðið vitni að því að ferða-
menn hafi verið að leita að gistingu
á Snæfellsnesi án árangurs. „Það
hefur verið erfitt að útvega ferða-
mönnum gistingu, enda er hótelið
bara með opið í tæpa þrjá mánuði
á ári. Við ætlum hins vegar að hafa
opið hjá okkur allt árið um kring,“
segir Sigurjón.
Strax komnar pantanir
Við hafið verður sannkallað fjöl-
skyldufyrirtæki þar sem fjölskyld-
an mun sjá um alla vinnu og rekstur
tengdan gistiheimilinu. „Við ætl-
um að sjá um þetta sjálf. Við eigum
fjórar dætur sem munu vinna með
okkur í þessu. Mæðgurnar munu
sjá um þetta en ég verð eitthvað
viðloðandi. Ég verð alltaf að gera
eitthvað, dytta að og fleira,“ segir
Sigurjón. Til stendur að gistiheim-
ilið verði opnað í byrjun maí og að
hægt verði að bóka gistirými inni
á bókunarsíðunni Booking.com.
„Við erum þó ekki búin að græja þá
síðu enn þá en erum komin á Fa-
cebook. Það eru nú þegar farnar að
berast pantanir og fyrirspurnir fyrir
sumarið, þó við séum ekkert farin
að auglýsa,“ segir Sigurjón Hilm-
arsson að endingu. grþ
Rut Einarsdóttir og Sigurjón Hilmarsson ásamt dætrum sínum fjórum. Ljósm. af.
Verðum með Sushi fimmtudaginn 5. febrúar kl. 15.00 – 20.00
Láki Hafnarkaffi
FIMMTUDAGS-
SUSHI
Pantanir í síma 546 6808
Komdu og gerðu daginn þinn betri
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Vizkukýrin 2015
Hin árlega spurningakeppni Landbúnaðarháskóla Íslands
verður haldin í matsal skólans á Hvanneyri
fimmtudaginn 12. febrúar og hefst klukkan 20:00.
Nemendur, kennarar og heimamenn úr
Borgarbyggð munu etja kappi.
Spyrill er Logi Bergmann.
Skemmtiatriði og sælgætissala í hléi.
Aðgangseyrir 500 krónur, frítt fyrir 14 ára og yngri.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Opna gistiheimili í Ólafsvík