Skessuhorn - 04.02.2015, Side 18
18 MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 2015
Laxarnir
skoruðu mest
BORGARFJ: Borgfirskir
briddsunnendur og nærsveit-
ungar hittust að vanda í Loga-
landi á mánudagskvöldið.
Tilefnið var jú ærið, sveita-
keppni félagsins skildi fram-
haldið. Keppnin var geysihörð
og jafnaðist staðan mikið, ef
frá er talin sveit aðalmanna-
tengslafulltrúa félagsins. Egill
í Örnólfsdal var greinilega bú-
inn að koma þeim skilaboðum
til sinna manna að hann hefði
titil að verja og hann yrði ekki
varinn með einhverju hálfkáki.
Fór hans sveit, Laxarnir, enda
mikinn og skoraði 67 stig.
Sveitina skipa auk Egils þeir
Sindri bændahöfðingi, Sig-
urður fiskifræðingur og Stef-
án Kalmenningur. Flemm-
ing og Sveinn fóru í æfinga-
ferð í vikunni til borgar óttans
og höfðu greinilega skerpt á
ýmsum hlutum. Sveit þeirra,
Stjórarnir, öngluðu saman 62
stigum og komu aðrir í mark,
en sveitina skipa Flemming,
eitt sinn skólastjóri, Sveinn,
einnig fyrrum skólastjóri,
Karvel RML stjóri og Magn-
ús Heiðar bridgesveitarstjóri.
Þriðja hæsta skor kvöldsins
áttu svo Unglingarnir, 49 urðu
þeirra stig en sveitina skipa
Magnús B á Hvanneyri, Eyj-
ólfur á Skálpastöðum, Logi í
Steinahlíð og Heiðar í Múla-
koti. Í heildarkepppninni er
það Dóra og brýnin sem leiða
með 107 stigum, fast á hæla
þeirra eru Telpurnar með 106
stig og svo Skallapoppararnir
með 103 stig.
–ij
Fornbílafélagið
vill kaupa
húsnæði
BORGARNES: Á fundi
byggðarráðs Borgarbyggðar
sl. fimmtudag var greint frá
fundi með forsvarsmönnum
Fornbílafélags Borgarfjarðar
um kaup félagsins á húsnæði
í Brákarey. Byggðarráð tók já-
kvætt í erindið og var sveitar-
stjóra ásamt umsjónarmanni
fasteigna falið að taka saman
minnisblað um ástand hús-
næðisins og kosti þess að selja
það til Fornbílafélagsins. Sam-
kvæmt tillögum vinnuhóps
um nýtingu fasteigna Borg-
arbyggðar frá 2013 er lagt til
að umrætt húsnæði verði not-
að undir safna- og tómstunda-
starf.
–þá
Betur árar í fyr-
irtækjaheimi
LANDIÐ: Nýskráðum einka-
hlutafélögum á árinu 2014
fjölgaði um 6% samanborið
við fyrra ár. Alls voru 2.050 ný
félög skráð á árinu. Mest fjölg-
aði í flokknum Sérfræðileg,
vísindaleg og tæknileg starf-
semi, eða sem nemur 33%.
Gjaldþrotum einkahlutafélaga
á sama tíma fækkaði um 14%
frá árinu 2013. Alls voru 795
fyrirtæki tekin til gjaldþrota-
skipta á árinu, samanborið
við 920 árið áður. Gjaldþrot-
um í flokknum Fasteignavið-
skipti hefur fækkað mest, eða
um 36%.
-mm
„Við fengum þetta austan til í
Skagagrunninu á svona 70 til 80
faðma botndýpi. Við vorum svona
30 mílur norðan af Skaga. Það var
dálítið að sjá þarna af loðnu í gær.
Góðar torfur fannst mér, meira en
maður hafði séð. Loðnutorfurnar
virðast annað hvort á vestur- eða
austurleið. Það er erfitt að fylgjast
með þessu, maður veit ekki alveg
hvert þetta fer. Ekki nokkur leið
að átta sig á því. Önnur skip voru
austar en við, svo sem Faxi og Ing-
unn. Ég held þeir hafi verið ein-
hvers staðar austur af Dalatang-
anum,“ sagði Arnþór Hjörleifsson
skipstjóri á Lundey NS 14 í sam-
tali við Skessuhorn í gær. Hann var
þá nýkominn til hafnar á Akranesi
með skip sitt vel hlaðið um 1500
tonnum af vænni loðnu. Þar með
hófst loðnuvertíðin á Vesturlandi
þennan veturinn.
Væn loðna
Arnþór var ánægður með aflann.
„Þetta er fínasta loðna þótt hún sé
heldur smærri en sú sem við feng-
um í flottrollið austar með landinu.
Þennan farm tókum við í nótina í
einum þremur köstum.“
Loðnuskipin stunda nú veiðar
norður- og austur af landinu. Það
tók áhöfn Lundeyjar alls 18 tíma
að sigla með farminn til Akraness.
„Það kom upp bilun í veiðibún-
aði hjá okkur. Þess vegna sigldum
við hingað suður. Það þarf að fá
varahluti í þetta. Annars hafa HB
Granda skipin landað loðnuförm-
unum austur á Vopnafirði, bæði í
bræðslu og til frystingar til mann-
eldis. Þessi farmur okkar nú er sá
fimmti frá því við hófum veið-
ar eftir áramótin,“ sagði Arnþór
Hjörleifsson skipstjóri.
Há verð á mjöli og lýsi
Almar Guðmundsson rekstrar-
stjóri fiskimjölsverksmiðju HB
Granda á Akranesi var hýr á brá þar
sem hann fylgdist með löndun úr
Lundey. „Verðið hefur farið hækk-
andi á fiskimjöli og lýsi. Markaðir
hafa verið að stíga. Verðið er tölu-
vert hærra en það var í fyrra þó það
sé kannski ekki komin í methæðir.
En þetta lofar nokkuð góðu.“
Ekki er ljóst hve miklu af loðnu
verður landað á Akranesi í ár. Þó
má vænta þess að eitthvað verði um
það þegar líður á vertíðina. Mik-
ill kvóti er enn óveiddur og ekki
margar vikur til stefnu nú þegar
komið er fram í febrúar. Þó hefur
verið talað um að slæmt efnahags-
ástand í Rússlandi og ófriður í Úk-
raínu setji strik í reikninginn fyr-
ir sölu á frystri loðnu. Bæði þessi
lönd hafa verið mikilvægir mark-
aðir fyrir hana til þessa. „Opnast
ekki annar markaður bara þegar
einn lokar? Rússland og Úkraína
hafa verið okkar stærstu markað-
ir til þessa en vonandi er eitthvað
í pípunum með aðra markaði,“
sagði Almar.
mþh/ Ljósm. Friðþjófur Helgason
Lundey skilaði fyrstu loðnu
vertíðarinnar á Akranes
Landfestum kastað upp á bryggjuna og Lundey bundin til löndunar.Almar Guðmundsson rekstrarstjóri fiskimjölsverksmiðju HB Granda á Akranesi.
Arnþór skipstjóri sinnir pappírsvinnunni sem fylgir því að stýra skipi í dag.
Strax um leið og búið var að binda Lundey hófust vélvirkjar HB Granda handa
við að lagfæra búnaðinn sem hafði bilað. Hér handleikur Kristinn Helgason
veiðarfæratromlu.
Tveir úr áhöfn Lundeyjar fylgdust grannt með umsvifum á Akranesbryggju meðan skipið lagðist upp að .