Skessuhorn - 04.02.2015, Síða 21
21MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 2015
Körfuknattleiksfélag Akraness
Íþróttahúsið við Vesturgötu
1. deild karla
Sunnudaginn 8. febrúar kl. 18:00
ÍA - KFÍ
Fjölmennum og hvetjum
ÍA til sigurs!
Bakaríið Brauðval • Skólabraut 12 – 14 • Akranesi • Sími 434 1413
Fylgstu með okkur á
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Flutt í nýtt og glæsilegt húsnæði
Afgreiðslutími: Virka daga kl. 9.00 – 18.00 • Laugardaga kl. 9.00 – 16.00
Kökur og brauð • Bara ódýrt
Kökur og brauð í úrvali
Fólk streymdi að í hundraðatali til að skoða endurbætt fjós
Um 500 manns sóttu heim fjósið á
Refsstöðum í Hálsasveit á laugar-
daginn. Þar var opið hús og fjós-
ið með búnaði til sýnis þeim sem
vildu. Fjósið hefur staðið tómt um
nokkurra ára skeið en hefur nú
verið innréttað upp á nýtt og búið
nýjum tækjum. Hjónin Brynjar
Bergsson og Anna Lísa Hilmars-
dóttir bændur á Sleggjulæk í Staf-
holtstungum festu kaup á Refs-
stöðum fyrr í vetur. Þau hafa ráð-
ist í miklar fjárfestingar við að inn-
rétta rúmgóða fjósbygginguna upp
á nýtt og búa hana nýjum tækjum,
svo sem fullkomnum mjaltaþjón
og öðru sem til þarf. Ekki veitir
af. Fjósið á að hýsa um 130 kýr og
ársframleiðslan er áætluð um 800
þúsund lítrar af mjólk.
Óvirkur mjólkurkvóti
lykillinn að fjárfestingu
Þau Brynjar og Anna Lísa ætla
að hefja reksturinn í nýja fjósinu
á því að flytja þangað kýrnar sem
þær halda nú í gömlu og litlu fjósi
á Sleggjulæk. Síðan verður bætt
við bústofninn þar til fjósið verð-
ur fullsetið með 130 mjólkurk-
úm. Hinir ungu bændur hafa með
þessu ráðist í miklar framkvæmdir.
Straumhvörf hafa orðið í skilyrð-
um til mjólkurframleiðslu í land-
inu. Sökum mikillar og sívaxandi
eftirspurnar eftir mjólkurafurðum
hafa höft sem fólust í framleiðslu-
hamlandi mjólkurkvóta verið af-
numin. Nú má hver og einn fram-
leiða mjólk sem mest hann má án
þess að þurfa að kaupa rándýran
kvóta fyrst. Borgað er fullt verð
fyrir alla mjólk sem bændur senda
frá sér. „Jú, jú þetta er mikil fjár-
festing. Lykillinn að þessu er að nú
er enginn mjólkurkvóti við lýði.
Við þurfum ekki að kaupa neinn
kvóta til að fara af stað. Þetta væri
ekki hægt öðruvísi. Þessi skilyrði
sem eru nú í mjólkurframleiðsl-
unni eru að opna veruleg tækifæri
fyrir unga bændur að hefja rekst-
ur og koma undir sig fótunum,“
sagði Brynjar Bergsson við blaða-
mann Skessuhorns í nýja fjósinu á
laugardaginn.
Bæði Brynjar og Anna Lísa eig-
inkona hans eru bjartsýn. „Þetta
er bara byrjunin. Við höfum verið
með kýr á Sleggjulæk í tvö ár. Þær
og fleiri flytja hér inn eftir nokkra
daga,“ sagði Anna Lísa og brosti.
Margir hyggja á
framleiðsluaukningu
Fóðurblandan er sölu- og um-
boðsaðili fyrir innréttingar og
tækjabúnað í fjósinu. Böðvar
Jónsson, sölu- og markaðsstjóri
hjá Fóðurblöndunni, sagði eng-
an vafa leika á því að fjöldi gesta
sem kom að skoða fjósið á Refs-
stöðum tæki af öll tvímæli um að
mikill áhugi væri á mjólkurfram-
leiðslu nú um stundir. „Já, alveg
klárlega. Það er gaman að sjá hve
FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ
www.frumherji. is
Búðardalur 2014
Bifreiðaskoðun verður hjá K.M. þjónustunni ehf.
Vesturbraut 20
Fimmtudaginn 12. febrúar
Föstudaginn 13. febrúar
Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00
Tímapantanir í síma 570 – 9090
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
margir mæta hér í dag. Mjólk-
urgeirinn er svo sannarlega að
hugsa um nýfjárfestingar enda
eru afurðastöðvar að greiða topp-
verð fyrir alla mjólk sem kemur
inn. Það gerist í kjölfar aukinnar
neyslu, meðal annars vegna fjölda
ferðamanna sem hafa sótt landið
heim. Við höfum fengið mjög góð
viðbrögð við okkar vörum. Við
finnum að bændur eru að horfa til
framtíðar með stækkun á sínum
fjósum og þannig reyna að koma
til móts við afurðastöðvar varð-
andi þá þörf og eftirspurn á mjólk
sem liggur fyrir.“
Framtíðarþróun mjólkuriðn-
aðar á Íslandi gæti orðið áhuga-
verð. Böðvar sagði ljóst að margir
kúabændur séu nú farnir að hugsa
sér til hreyfings í nýfjárfestingum.
„Margir hverjir eru reyndar þegar
farnir af stað. Það á sér stað tals-
verð aukning í fjölda fjósa með
sjálfvirkum mjaltabúnaði, svoköll-
uðum róbótum. Ég held að þeim
muni bara fjölga á næstu misser-
um.“ mþh
Bergur Brynjarsson með foreldrum sínum þeim Brynjari Bergssyni og Önnu Lísu
Hilmarsdóttur, bændum á Sleggjulæk og Refsstöðum. Bergur ætlar að verða
kúabóndi þegar hann verður stór.
Margt var skrafað og skeggrætt af áhuga. Meðal gesta voru bændur og búalið
víðs vegar af á Vesturlandi og jafnvel einnig af Suður- og Norðurlandi.
Brynjar, starfsmaður Fóðurblöndunnar, útskýrir undur mjaltaþjónsins fyrir Þresti
bónda á Stakkhamri.
Anna Lísa Hilmarsdóttir bóndi og húsfreyja á Sleggjulæk og Refsstöðum hlær með
vinkonu sinni Guðrúnu á Ölvaldsstöðum sem var ein fjölmargra sem óskuðu henni
og eiginmanni hennar til hamingju með nýja fjósið.
Böðvar Jónsson, sölu- og markaðsstjóri hjá Fóðurblöndunni segir að nú eigi sér
stað mikil gerjun meðal mjólkurframleiðenda.