Skessuhorn - 04.02.2015, Page 27
27MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 2015
Krossgáta Skessuhorns
Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að spreyta sig á að
leysa. Þeir sem vilja geta sent Skessuhorni lausnar-
orð/in á netfangið: krossgata@skessuhorn.is Dregið
verður úr réttum innsendum lausnum og fær vinn-
ingshafinn bókagjöf frá Skessuhorni. Athugið að
lausnir þurfa að berast fyrir klukkan 15:00 á mánu-
dögum.
48 lausnir bárust við krossgátu í blaðinu í síðustu viku.
Lausnarorðin voru: „Lengi býr að fyrstu gerð“. Vinnings-
hafi er Valdís Jakobsdóttir, Jaðarsbraut 37 Akranesi. mm
Hams-
laus
Seyða
Tæp
Hal
Björg
Tútta
Leikni
Kópía
Beljaki
Öxull
Erfiði
Lítið
eggjárn
16
Sam-
hljóðar
Ryk
Angan
Æstur
Lang-
amma
Krap
Skör
Gabba
Þræta
Skömm
Trollari
Mál
Kusk
Einn
Skörp
Forug
Stafa-
logn
Kvittur
8 12
Hnikil
Limi
Sögnin
3
Aml
Enda-
sneið
6 Sýl
Sjó
Dregur
14
Tölur
11 15 1
Fæða
Straff
Frú
Gal-
gopar
Rauð
Elfum
Meta
Vesælar
Brauð
Ljós-
ker
Óreiða
Húfa
Gæði
Feiti
Bardagi
Skjól
Sex
Rák
Vild
9
Pukur
7 Titill
Aldr-
aður
Akta
Hreyf-
ing
Óhljóð
Korn
Eink.st.
Planta
5 Kinn
Band
Tauta
10 Hýra
Átt
Gleður
Samdir
Ílát
Til
Óhóf
2 Mikill
Troll
1003
Þófi
Ummæli
Umrót
15 Sérhlj.
Skjön
Törn
Kelti
Anga
Tæja
14 Múl-
asni
Kall
Lítinn
bor
Spurði
Frekja
4
Leit
Sam-
ofið
13
Haka
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15
Hjónaklúbbur Eyrarsveitar heldur
árlegt þorrablót sitt 7. febrúar næst-
komandi. Miðasalan var á sunnu-
daginn og lögðu menn mismikið
á sig til að nálgast miða. Ákveðin
hefð hefur myndast í Grundarfirði
um að vera fyrstur á húninn og svo
virðist sem aukin harka hafi verið
að færast í leikinn þessi síðustu ár.
Fyrir nokkrum árum lögðu menn
það á sig að vakna eldsnemma um
morguninn til að ná húninum og
dugði það þá til en í fyrra og í ár
voru menn að mæta jafnvel daginn
áður til að bíða í röðinni. Var fyrsti
maður mættur á húninn klukk-
an 20:40 kvöldið áður en miða-
salan sjálf hófst ekki fyrr en á há-
degi á sunnudaginn. Sem betur fer
þurftu menn ekki að bíða úti í kuld-
anum þetta árið, heldur fengu þeir
sem lögðu þetta á sig hlýtt húsa-
skjól, kaffi, kakó og piparkökur til
að ylja sér. Þorrablótsröðin í ár var
í jólahúsinu hjá Jónu og Smára og
því voru aðstæður hinar heimilis-
legustu.
tfk
Í húsi við Akratorg á Akranesi hef-
ur verið opnað nýtt fyrirtæki. Það
er bókarinn Lilja Halldórsdótt-
ir sem hefur leigt neðri hæðina
á Skólabraut 37 og rekur nú það-
an þjónustufyrirtækið LH bókhald
ehf. Lilja er þó enginn nýgræðing-
ur í bransanum. Fyrirtækið stofnaði
hún upphaflega 2011 en hún hefur
starfað lengi við bókhald. „Ég var
lengi að vinna heima við bókhald.
Ég vann á skrifstofu Akranesdeild-
ar Rauða krossins og var í vinnu hjá
Ritara. Ég var búin með fjármála-
og rekstrarnám fyrir löngu, þann-
ig að það má eiginlega segja að ég
hafi alltaf verið í þessu. Ég útskrif-
aðist sem viðurkenndur bókari úr
Háskólanum í Reykjavík í lok árs
2010,“ útskýrir Lilja.
Fyrirtækin ekki bundin
við svæðið
Lilja segir bókhaldsvinnuna eiga vel
við sig og að henni þyki skemmti-
legt að starfa við hana. LH bók-
hald er almenn bókhaldsþjónusta
sem veitt er bæði til fyrirtækja og
einstaklinga. „Þetta er almenn
bókhaldsþjónusta svo sem launa-
útreikningar, virðisaukaskil, upp-
gjör og allt sem viðkemur rekstri
einstaklinga og fyrirtækja,“ seg-
ir Lilja. Hún bætir því við að hún
hafi einnig lengi gert skattfram-
töl fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
„Það er mikilvægt fyrir alla að hafa
allt á hreinu varðandi skattskilin.
Eins eru margir sem vilja láta fara
yfir þetta hjá sér og við gerum það
líka.“ Þjónustan hjá LH bókhaldi
er ekki bundin við bæjarfélagið en
Lilja segir að margir átti sig ekki
á því. „Fyrirtæki geta verið í svo-
kölluðu fjarbókhaldi hjá okkur. Þau
þurfa ekki endilega að vera á staðn-
um, þar sem þetta er að miklu leyti
orðið rafrænt. Þau geta fengið að-
gang að bókhaldskerfinu og fært
eitthvað inn sjálf og fylgst með
ef þau vilja. Þjónustan er því alls
ekki bundin við Akranes,“ útskýrir
Lilja. Hún segir að álagið við starf-
ið dreifist nokkuð jafnt yfir árið en
mest sé að gera um það leyti sem
skila á skattaskýrslum. „Framundan
eru skattframtölin, þannig að það
er nóg að gera. Það koma einstaka
mánuðir sem eru rólegri en aðrir
en annars er þetta nokkuð jafnt yfir
árið, maður hefur alltaf eitthvað að
gera.“
Lífið við Akratorg
að aukast
Lilja starfar ekki ein á Skólabraut-
inni. Jóhanna Árnadóttir hefur ver-
ið í 50% starfi hjá henni í eitt ár.
„Með aukinni starfsemi réði ég
starfsmann og flutti svo í þetta hús-
næði. Ég er mjög ánægð með að
vera komin hingað. Við vorum áður
með litla skrifstofu við Þjóðbraut,“
segir Lilja. Nýja skrifstofan er stað-
sett alveg við Akratorgið, beint á
móti kaffihúsinu Skökkinni sem
opnað var í haust. Þar voru áður til
húsa Veiðibúðin og Róbótasafnið
sem opið var síðasta sumar. Rýmið
er opið og bjart og augljóst að eitt-
hvað hefur verið endurnýjað þar
inni. „Við reistum einn vegg, sett-
um teppi á gólfin og gerðum þetta
fínt,“ segir Lilja. Hún segist hafa
fengið góð viðbrögð frá fólki úr
bænum. „Margir eru ánægðir með
að sjá að það er verið að gera fínt á
neðri Skaganum og að það sé eitt-
hvað um að vera. Einnig eru marg-
ir að uppgötva fyrst núna að maður
sé að gera þetta. Ég hef lítið aug-
lýst það í gegnum árin en núna er
það meira áberandi.“ Þær bæta því
við að gaman sé að vera staðsettur
í miðbænum enda sé lífið að aukast
í kringum torgið. „Það er allt að
lifna við. Þetta er gjörbreytt mið-
að við hvernig það var og eru bara
jákvæðar breytingar. Það er miklu
meira líf í kringum torgið, það hef-
ur bæði aukist bílaumferðin hérna
og umferð gangandi vegfarenda,“
segja Lilja og Jóhanna.
grþ
Skagamaðurinn Sigurður Helgason
tók þátt í keppni bestu matreiðslu-
manna heims, Bocuse d’Or keppn-
inni í Lyon í Frakklandi, óform-
legri heimsmeistarakeppni, sem
fram fór undir lok janúarmánaðar.
Sigurður stóð sig mjög vel í keppni
24 matreiðslumanna og hafnaði í
áttunda sæti. Hver keppandi þurfti
að reiða fram 14 forréttadiska og
síðan einn bakka sem á er aðalrétt-
urinn, einnig fyrir 14 manns. Sig-
urður tengdi saman í matargerð
sinni ímynd hreinleika landsins, af-
urðir þess og náttúrufegurð. Með-
an annars var á bakka hans eldfjall
sem vakti talverða athygli sýningar-
gesta á keppninni. Þátttaka Sigurð-
ar í keppninni var vel studd áhuga-
mannafélagi héðan að heiman og
var Magnús H. Ólafsson arkitekt á
Akranesi forsvarsmaður fyrir hópn-
um. Magnús fylgdist með keppn-
inni á staðnum.
„Ég vil byrja á því að þakka sér-
staklega fyrir framlög Skagamanna
fyrir stuðning við keppnishald Sig-
urðar,“ sagði Magnús í samtali við
Skessuhorn. Hann segir árang-
ur Sigurðar í keppninni vera stór-
merkilegan. „Þeir stóðu sig alveg
með prýði. Það að lenda í næsta
sæti á eftir Frökkum er stórmerki-
legur hlutur.“ Þá nefndi hann
einnig að gaman hafi verið að sjá
hversu vel Norðurlöndin stóðu sig
í keppninni. „Norðmenn urðu í
fyrsta sæti, Svíar í því þriðja, Finn-
ar í fjórða, Danir í sjötta sæti og svo
Ísland í áttunda sæti á eftir Frökk-
um. Þetta er verulega góður árang-
ur hjá Sigurði og það var einstak-
lega ánægjulegt að vera viðstadd-
ur þessa keppni. Það var samt sem
áður greinilegt að þeir sem hafa
mestan fjárhagslegan stuðning í
undirbúningi og þess háttar lenda
ofarlega,“ sagði Magnús H. Ólafs-
son forsvarsmaður stuðningsmanna
Sigurðar.
þá
Beðið lengi eftir
miðum á þorrablótið
Sigurður hafnaði
í áttunda sæti
LH bókhald er nýjasta viðbótin við Akratorg
Jóhanna Árnadóttir og Lilja Halldórsdóttir.