Skessuhorn


Skessuhorn - 31.03.2015, Síða 1

Skessuhorn - 31.03.2015, Síða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 14. tbl. 18. árg. 31. mars 2015 - kr. 750 í lausasölu HEFUR SAFNAÐ FYRIR ÖKUTÆKI FYRIR HVERJU LANGAR ÞIG AÐ SAFNA? Allt um sparnað á arionbanki.is/reglulegur_sparnadur Rafræn áskrift Ný áskriftarleið Pantaðu núna Fluconazol ratiopharm Fæst án lyfseðils Er þér annt um hjartað? Eru bólgur og verkir að hrjá þig? Landnámssetur Íslands, Brákarbraut 13 – 15, Borgarnesi Næstu sýningar í Landnámssetrinu Hallgrímur og Guðríður Steinunn Jóhannesdóttir segir örlagasögu Hallgríms Péturssonar og Guðríðar Símonardóttur Frumsýning 2. apríl kl. 20 Næsta sýning 12. apríl kl. 16 Sýning 17. apríl kl. 20 Skálmöld Einars Feðginin Einar Kárason og Júlía Margrét segja frá atburðunum sem mörkuðu upphaf Sturlungaaldar Sýning föstudaginn 10. apríl kl. 20 GLEÐILEGA PÁSKA Nánari upplýsingar um sýningar á landnamssetur.is SK ES SU H O R N 2 01 5 Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxa- flóahafna, segir að líkur séu vissu- lega alltaf að aukast á því að fyrir- huguð verksmiðja Silicor Materials rísi á Grundartanga. Hann á þó ekki von á því að miklar framkvæmdir hefjist í sumar. „Það gæti þó orðið með haustinu. Slíkt myndi þá snúa að framkvæmdum sem Faxaflóa- hafnir stæðu fyrir svo sem að tengja fyrirhugaða byggingarlóð við vega- kerfið að Grundartanga. Ég á von á að stjórn Faxaflóahafna muni fyr- ir sitt leyti samþykkja fyrirliggjandi samninga við Silicor á fundi nú í apríl. Síðan gætu Faxaflóahafnir verið fljótar af stað í fyrsta áfanga framkvæmda. Það verður þó ekki farið af stað fyrr en allir fyrirvarar eru úr sögunni.“ Tveir af þremur samningum komnir Gísli segir að nú sé búið að ganga frá tveimur af þremur stórum samn- ingum sem allir séu forsenda þess að verksmiðjan rísi. Sá fyrsti var við Faxaflóahafnir um lóðar- og hafn- armál. „Samningurinn sem undir- ritaður var milli Silicor og þýska fyrirtækisins SMS Siemag um kaup á tækjabúnaði verksmiðjunnar í síðustu viku var síðan annað stóra skrefið í þessa átt. Nú standa mál þannig að fjármögnunaraðilar er- lendis eru að vega og meta lánafyr- irgreiðslu sem tengist þeim samn- ingi. Þar á meðal er þýskur útflutn- ingssjóður. Næst er svo að gera samning um jarðvinnu og bygg- ingu verksmiðjuhúsanna. Hann er í undirbúningi. Hönnun verk- smiðjunnar er í höndum SMS Sie- mag. Þar undir er líka hönnun hús- bygginga. Líklega munu milli 400 og 500 manns koma að fyrirhug- uðum framkvæmdum sem verða í áföngum.“ Allt á góðri leið Fleiri mikilvægir þættir eru einn- ig ófrágengnir. Íslensk stjórnvöld hafa veitt Silicor Materials ýms- ar ívilnanir svo sem í skattamálum. Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) sinn- ir eftirliti með því að skuldbinding- ar samkvæmt EES-samningnum séu efndar og að aðgerðir aðildar- ríkjanna á sviði samkeppni séu lög- mætar. ESA er nú að fara yfir íviln- unarsamninga íslenskra stjórnvalda og Silicor Materials. Ekki verð- ur haldið áfram fyrr en liggur fyr- ir að þeir samningar standist skuld- bindingar EES-samningsins. „Sili- cor Materials eru einnig að vinna í ákveðnum málum varðandi orkuna bæði gagnvart Landsneti og Orku- veitu Reykjavíkur. Ég á þó von á að þau mál leysist án hnökra. Þetta er allt á ágætis leið en auðvitað er það svo að þegar menn setja sér tíma- mörk í svona flóknum verkefn- um þá er margt sem þarf að ganga upp,“ segir Gísli Gíslason. mþh Þegar sól tekur að hækka á lofti og daginn að lengja kviknar líf inn til lands og út til stranda. Þessi mynd var tekin við ströndina á Akranesi í síðustu viku og sýnir máva í þúsundatali. Mikill fjöldi æðarfugls er einnig á ferð og greinilegt að vorið liggur í loftinu. Páskarnir eru frábær tími til útiveru og sjaldan sem fólk fær jafn marga samfellda frídaga og einmitt þá til að njóta þess sem náttúran og umhverfið hefur upp á að bjóða. Skessuhorn óskar lesendum sínum gleðilegra páska. Ljósm. Jónas H Ottósson Framkvæmdir vegna sólarkísilverksmiðju gætu hafist í haust Meðfylgjandi er mynd af fyrirhuguðum byggingum Silicor Materials í Kata- neslandi við Grundartanga sem þekja munu 12 hektara lands. Athafnasvæðið verður þó helmingi stærra.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.