Skessuhorn - 31.03.2015, Blaðsíða 31
31ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 2015
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar
frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á
augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt
leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
auðveldar smásendingar
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
������� ���������
� e���.��
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Skagakonur unnu góðan sigur á Val
í öðrum leik sínum í Lengjubik-
arnum í knattspyrnu. Leikurinn fór
fram í Akraneshöll síðastliðið þriðju-
dagskvöld og lauk með 2:1 sigri ÍA.
Skagakonur töpuðu fyrsta leiknum í
mótinu 0:1 fyrir FH. Valur varð fyrri
til að skora í leikum gegn ÍA en gest-
irnir skoruðum um miðjan fyrri hálf-
leik. Unnur Ýr Haraldsdóttir skor-
aði bæði mörk ÍA. Það fyrra úr víti
í fyrri hálfleik og sigurmarkið kom
um miðjan síðari hálfleik, skot utan
úr teig eftir góða pressu frá Skaga-
liðinu. Valsstelpur voru meira með
boltann framan af leik en Skagakon-
ur vörðust vel og áttu snarpar sóknir.
Þegar leið á leikinn varð meira jafn-
ræði með liðunum og fengu ÍA stúlk-
ur nokkur góð færi til að skora. Liðið
var skipað eftirtöldum leikmönnum:
Vilborg Júlía í marki. Í vörninni léku
Alexandra, Birta, Hulda og Aníta. Á
miðjunni voru Eyrún, Gréta, Bryn-
dís og Unnur og frammi léku Maren
og Aldís Ylfa. Heiður og Eva María
komu inn á í síðari hálfleik. Næsti
leikur hjá Skagakonum í Lengjubik-
arnum verður ekki fyrr en 17. apríl
við KR í Akraneshöllinni.
þá
ÍA lék sinn sjöunda og
síðasta leik í riðla-
keppni Lengjubik-
arsins, deildarbik-
arkeppninnar, síð-
astliðinn laugardag í
Akraneshöllinni. Lið Fjarðabyggð-
ar sem leikur í 1. deild næsta sum-
ar var í heimsókn. Skagamenn sem
tefldu fram talsvert breyttu liði frá
síðustu leikjum sigruðu 4:3 í leikn-
um. Framherjinn Arsenij Buinickj
skoraði þrennu og miðjumaðurinn
Marko Anderkovic eitt. Þar með
sigraði ÍA í riðlinum með 16 stig og
leikur í átta liða úrslitum keppninn-
ar sem byrja 16. apríl næstkomandi.
Víkingur frá Ólafsvík vann fyrr um
daginn ÍBV 1:0 í Akraneshöllinni
með marki Kenan Turudija. Vík-
ingur er með sjö stig eftir sex leiki
í riðlinum og kemst ekki í átta liða
úrslitin. Síðasti leikur Víkings í
Lengjubikar verður gegn Fylki í Ár-
bænum 10. apríl.
þá
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Það var mikil eftirvænting í loftinu
í fullu íþróttahúsinu á Vesturgötu
síðasta sunnudag þegar Skagamenn
tóku á móti Hamri frá Hveragerði
í öðrum umspilsleiknum um laust
sæti í úrvalsdeild karla í körfubolta
að ári. Með sigri hefði ÍA getað
knúið fram oddaleik. Skagamenn
byrjuðu leikinn af krafti. Létu bolt-
ann ganga og skoruðu auðveld stig
undir körfunni. Á sama tíma stóðu
þeir vörnina ágætlega og Hamars-
menn áttu erfitt uppdráttar fyrstu
mínútur leiksins. Um miðjan fyrsta
leikhluta fóru Hvergerðingar að
hitta úr þriggja stiga skotunum sín-
um og tókst á endanum að jafna eft-
ir annars dapra byrjun. Það virtist
slá Skagamenn örlítið út af laginu
sem gekk illa í sókninni í upphafi
annars leikhluta. Þeir léku vörn-
ina hins vegar ágætlega, tóku frá-
köst og unnu boltann. Þeir skoruðu
auðveld stig undir körfunni og eftir
hraðaupphlaup og komust í 38-35.
Þá tóku Hamarsmenn við sér. Þeir
tóku tíu stiga sprett þar sem þeir
keyrðu á körfuna, skoruðu stig og
fengu oft vítaskot að auki. Staðan í
hálfleik var 38-48 Hamri í vil.
Hamarsmenn hófu síðari hálfleik
af krafti, létu boltann ganga vel og
biðu eftir góðu skoti fyrir utan lín-
una. Skagamenn spyrntu við fót-
um, náðu nokkrum góðum sóknum
í röð og minnkuðu muninn niður
í sex stig. Þeir komust hins vegar
aldrei á skrið vegna þess hve Ham-
arsmenn hittu vel úr þriggja stiga
skotum sínum. Í fjórða leikhluta var
það sama uppi á teningnum, Hver-
gerðingar hittu vel. Skagamenn
börðust áfram og minnkuðu mun-
inn í 5 stig þegar ein mínúta lifði
leiks með nokkrum góðum þriggja
stiga körfum frá Zachary Warren
og Áskeli Jónssyni. Þeir brugðu
því á það ráð að senda Hamars-
menn á vítalínuna og freistast til að
jafna leikinn. Það gekk hins vegar
ekki og níu stiga tap staðreynd, 94 -
103. Það er því ljóst að Skagamenn
komast ekki í úrvalsdeild að ári.
Vonbrigðin voru mikil að leik
loknum og Skagamenn að vonum
vonsviknir með úrslitin. „Við töp-
uðum náttúrlega síðasta leik niður
sem gerði það að verkum að þeir
komu í þennan leik fullir sjálfs-
trausts,“ sagði Áskell Jónsson, spil-
andi þjálfari Skagamanna í samtali
við Skessuhorn. „Það má ekki tapa
tveimur leikjum, það má ekkert út
af bregða. Það verður hins vegar
ekki af Hamarsmönnum tekið að
þeir spiluðu vel,“ sagði Áskell að
leik loknum. kgk
Skagamenn verða ekki í
úrvalsdeild í körfunni að ári
Áskell Jónsson, annar tveggja spilandi
þjálfara Skagamanna.
Skagamenn taka varnarfrákast í leiknum á sunnudaginn.
Skagamenn sigruðu
Fjarðabyggð
Skagakonur sigruðu Val í Lengjubikarnum
Laugardaginn 1. mars hittist
áhugafólk eldri borgara frá fjór-
um sveitarfélögum í Snæfellsbæ
og efndu til liðamóts í boccia.
Er það í fyrsra sinn, svo vitað sé,
að mót með þessu sniði er hald-
ið. Þetta var áhugafólk frá Snæ-
fellsbæ, Grundarfirði, Stykkis-
hólmi og Borgarbyggð. Keppt
var í einmenningi, tvímenningi
og hinni hefðbundnu liðakeppni.
Hugmyndin að þessu fyrirkomu-
lagi áttu Flemming Jessen og
Ingimundur Ingimundarson og
stjórnuðu þeir mótinu. Til liðs
mætti eitt fjölskipað lið úr hverju
sveitafélagi.
Í einmenningi var hlutskarpast-
ur Ársæll Ársælsson Snæfellsbæ,
í tvímenningi unnu Grundfirð-
ingarnir Hjörtur Halldórsson,
Kristín Árnadóttir, Jónína Krist-
jánsdóttir og Ólöf Pétursdóttir. Í
keppni A-liða unnu Borgfirðing-
arnir Þórhallur Teitsson, Jóhann-
es Gestsson og Meinhard Berg
og í keppni B-liða unnu Borg-
nesingar einnig. Sveitina skipuðu
Guðmundur Bachmann, Sigurð-
ur Þórarinsson og Flemming Jes-
sen. Stigakeppnin fór þannig að
Borgnesingar hlutu 19 stig, Snæ-
fellsbær 11 og Grundarfjörður og
Stykkishólmur 9 stig.
Í lokin buðu félagar úr eldri
borgarafélagi Snæfellsbæjar upp
á sjávarréttarsúpu og aðrar girni-
legar veitingar.
fj/ Ljósm. Sverrir Karlsson.
Fjögurra fjalla keppnin í boccia
Stúlkurnar í Snæfelli sýndu það
og sönnuðu á laugardaginn að það
er engin tilviljun að þær hampa
nú deildarmeistaratitli. Á laugar-
daginn tóku þær á móti Hamri í
Dominosdeildinni og unnu í stór-
leik 88:53. Þar áður höfðu þær far-
ið til Grindavíkur í vikunni fyrir og
unnið þar öruggan 88:60 sigur. Að
leik loknum á laugardaginn tóku
Snæfellingar á móti titlinum fyrir
deildameistarann. Sannarlega verð-
skuldaður titill.
Til hamingju með frábæra leiktíð
Snæfellsstúlkur! mm
Snæfell deildarmeistari og sýndi yfirburði
sína með stórsigrum í lokin
Kvennalið Snæfells ásamt stjórn og þjálfurum. Ljósm. Sumarliði Ásgeirsson.