Skessuhorn - 31.03.2015, Blaðsíða 15
15ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 2015
AUGLÝST EFTIR UMSÓKNUM Í
UPPBYGGINGARSJÓÐ VESTURLANDS
Veittir verða styrkir í eftirfarandi verkefni:
1) Styrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar.
2) Verkefnastyrkir á sviði menningar.
3) Stofn- og rekstrarstyrkir menningarmála.
Styrkir úr Uppbyggingasjóði koma í stað styrkveitinga úr sjóðum menningar- og
vaxtarsamninga.
Einungis verður ein aðalúthlutun á árinu 2015 fyrir verkefnastyrki á sviði menningar og
stofn- og rekstrarstyrkja menningarmála.
Styrkjum til atvinnuþróunar og nýsköpunar verður einnig úthlutað að þessu sinni og
aftur síðar á árinu.
Á heimasíðu Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi www.ssv.is, undir flipanum
„Uppbyggingarsjóður“ er að finna upplýsingar um umsóknarferli, reglur og
viðmið varðandi styrkveitingar.
Frestur til að skila umsóknum er til 22. apríl 2015.
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
5
ÚTBOÐÚTBOÐ
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
81x120 mm
TIL SÖLU
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
Húsnæði óskast til leigu
15855 – Leiguhúsnæði fyrir vínbúð
ÁTVR í Borgarnesi
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins óskar eftir að taka á leigu
u.þ.b. 250-300 m² húsnæði fyrir Vínbúð í Borgarnesi. Húsnæðið
þarf að skiptast að u.þ.b. 2/3 hlutum í verslunarsvæði og 1/3
hluta í lager og starfsmannaaðstöðu.
Húsnæðið þarf að fullnægja eftirfarandi kröfum:
Vera á verslunarsvæði. 1.
Liggja vel við almenningssamgöngum. 2.
Umferð að og frá húsnæðinu sé greið. 3.
Húsnæðið skal allt vera á jarðhæð. 4.
Húsnæðið bjóði upp á að vöruhurð o5. pnist beint út og ekki
nálægt inngangi viðskiptavina.
Góð6. aðkoma sé að húsnæðinu fyrir viðskiptavini og næg
bílastæði.
Lögð er áhersla á7. gott aðgengi af bílaplani fyrir hreyfihamlaða
og jafnframt þurfa að vera bílastæði fyrir starfsfólk.
Aðkoma að hús8. næðinu fyrir flutningabíla og/eða lyftara með
vörur skal vera góð.
Verslunarrými9. ð sé sem næst rétthyrnt (hlutföll rýmisins nálægt
3 á móti 2) og mega súlur, veggir eða annað ekki hamla yfirsýn
um verslunarhluta húsnæðisins.
Hljóðd10. empun í verslun skal tryggja góða hljóðvist og lýsing skal
vera 500-600 lux (fer eftir ástandi við skil).
Góð a11. ðstaða þarf að vera fyrir starfsfólk ásamt góðu aðgengi
fyrir hreyfihamlaða.
Hú12. snæðið verður að fullnægja öllum kröfum sem opinberar
eftirlitsstofnanir og umsagnaraðilar gera til slíks og vera
samþykkt af þeim.
Leigutími húsnæðisins er samkomulag.
Húsnæðið skal afhenda samkvæmt samkomulagi og ræðst
afhendingartími nánar af ástandi þess við afhendingu.
Áhugasamir skulu senda öll gögn um það húsnæði sem þeir hyggjast
bjóða í lokuðu umslagi til skrifstofu Ríkiskaupa, Borgartúni 7 C, 105
Reykjavík fyrir kl. 11:00, þriðjudaginn 21. apríl 2015
Merkt: 15855 - Leiga á húsnæði í Borgarnesi fyrir Vínbúð ÁTVR
Gögn þurfa meðal annars að innihalda eftirfarandi:
Staðsetningu. 13.
Teikningar af húsnæði. 14.
Afhendingartíma.15.
Ástand húsnæðis við afhendingu. 16.
Leiguverð án vsk. og skal það innifela allan kostnað. 17.
Fyrirsjáanlega18. r breytingar sem gætu haft áhrif á kröfuliði 1-12
hér að ofan á leigutímanum.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Reykholtsprestakall
Verið innilega velkomin
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
5
Helgihald um páska í Reykholtsprestakalli
Á föstudaginn langa verður lestur píslarsögu Jesú að venju í
Reykholtskirkju kl. 22. Sálmasöngur og bænahald.
Á aðfararnótt páskadags verður Páskavaka í Reykholtskirkju kl. 23.
Hvanneyrar- Stafholts- og Reykholtsprestar leiða lestra og
bænahald þessarar fornu athafnar. Ef veður leyfir verður eldur
kveiktur utandyra og ljós af honum borið inn í myrka kirkjuna,
páskakerti tendrað og ljós þátttakenda. Lesið úr hjálpræðis-
sögunni og skírnarheitis minnst.
Guðsþjónusta er á páskadagsmorgun á Gilsbakka kl. 11.
Guðsþjónusta páskadags er í Reykholtskirkju kl. 14.
Nýtt fólk hefur tekið við rekstri
ferðaþjónustunnar að Þórisstöðum
í Svínadal í Hvalfjarðarsveit. Það
eru þau Elvar Grétarsson og Alla
Sigurðardóttir sem í síðustu viku
gerðu samning til næstu þriggja ára
við Starfsmannafélag Járnblendi-
verksmiðjunnar á Grundartanga
sem á jörðina. „Við byrjuðum með
fjórhjólaleigu hér á Þórisstöðum
2013. Síðastliðið haust fluttum við
svo búferlum hingað frá Akranesi.
Við verðum ekki staðarhaldarar
heldur tökum jörðina með húsum
á leigu og sjáum síðan alfarið um
reksturinn,“ segja þau í samtali við
Skessuhorn.
Ferðir á fjórhjólum
Það eru fjórhjólin sem hafa orðið
upphaf þess að þau Elvar og Alla
ætla nú að sinna ferðaþjónustunni
á breiðum grundvelli. „Fjórhjól-
in eru leigð út til ferðafólks. Við
höfum boðið upp á eins og tveggja
klukkustunda ferðir. Í þeim fyrr-
nefndu er farið hér upp á Þúfu-
fjall sem er fyrir ofan Bjarteyjar-
sand. Þar getur fólk svo gengið á
sjálfa Þúfuna sem fjallið er kennt
við. Þaðan er fagurt útsýni yfir
Hvalfjörðinn. Í lengri ferðinni er
farið upp meðfram línuvegi inn
fyrir Síldarmannagötur og kom-
ið niður í Grafardal. Þaðan er ekið
yfir í Skorradal með sunnanverðu
Skorradalsvatni og svo yfir Drag-
ann aftur að Þórisstöðum. Þetta er
50 kílómetra hringur. Svo er hægt
að fá ferðir eftir eigin hentugleika
til viðbótar við þetta. Það er alveg
hægt að búa til dagsferðir á hjól-
unum og þess vegna lengur ef fólk
óskar.“
Tjaldstæði og veiði
Með yfirtökunni á rekstri Þóris-
staða bætist ýmislegt annað við
fjórhólareksturinn. „Hérna munum
við reka tjaldsvæði með ýmsu sem
tilheyrir. Auk þess nýtum við húsa-
kostinn hér á Þórisstöðum undir
ýmsa starfsemi. Gömlu fjárhúsin
og hlaðan hérna standa við hliðina
á tjaldsvæðinu og mynda skemmti-
lega umgjörð fyrir ýmsa viðburði.
Hingað koma ýmis félagasam-
tök og almennir gestir. Það verða
brúðkaup og ættarmót hérna. Það
er þegar búið að bóka ýmsa slíka
viðburði í sumar. Við verðum með
veiðileyfi í vötnunum þremur hér
í Svínadal sem eru Þórisstaðavatn,
Geitabergsvatn og Eyrarvatn. Þar
erum við meðal annars innan vé-
banda Veiðikortsins svokallaða.
Við höfum sömuleiðis gert samn-
ing um Útilegukortið. Hingað til
hefur hvorki verið hægt að nota
Veiðikortið né Útilegukortið hér
á Þórisstöðum en nú breytist það,“
segir Elvar.
Bjóða upp á fótboltagolf
Ferðaþjónusta hefur verið rek-
in að Þórisstöðum um margra ára
skeið enda skjólsæll staður og mik-
il náttúrufegurð. Nokkrar breyt-
ingar verða á staðnum með til-
komu þeirra Elvars og Öllu. „Hér
hefur til að mynda verið níu holu
golfvöllur. Hann er búinn að vera
í slæmu ástandi vegna lélegs tækja-
kosts til viðhalds. Það er mik-
ill kostnaður bundinn við að reka
sláttuvélar fyrir golfvelli. Við höf-
um ákveðið að hætta með golf-
völlinn í hefðbundnum skilningi.
Í staðinn stækkum við holurnar og
breytum vellinum í fótboltagolf-
völl. Það er þá þannig að í staðinn
fyrir að vera með kylfur og golfkúl-
ur þá sparkar fólk bolta og reynir að
hitta ofan í holurnar. Reglurnar eru
svipaðar og í golfi. Við finnum að
hugmyndinni um þessa nýjung er
vel tekið. Þetta höfðar líka til stærri
markhóps því flestir hafa gaman
af því að sparka í bolta. Þetta get-
ur verið mjög skemmtilegt til að
mynda fyrir fjölskyldur og aðra
hópa. Þessi fótboltagolfvöllur verð-
ur vígður með pompi og prakt um
hvítasunnuhelgina.“
Páskaeggjaleit á
páskahelgi
Ferðamannatímabilið hjá þeim
á Þórisstöðum hefst með páska-
eggjaleit á laugardag nú um páska-
helgina. „Við ætlum að fela ein 200
páskaegg hér úti í skógi. Allir eru
velkomnir að koma og leita. Hér
verður heitt á könnunni og bara
gaman. Páskaeggjaleitin hefur ver-
ið áður hér að Þórisstöðum, gefist
vel og er orðin að vinsælli hefð sem
við ætlum að halda í. Seinna í sum-
ar verður svo ýmislegt í boði. Við
ætlum til dæmis að vera með ýmsa
afþreyingu hér svo sem harmon-
ikkuball, trúbadorar koma og spila
og svo framvegis. Hingað koma oft
stórir hópar svo sem Húsbílafélag-
ið. Það er sjálfsagt að reyna að gera
eitthvað skemmtilegt þegar svo er
og bjóða upp á léttar veitingar í
leiðinni,“ segja þau Elvar og Alla.
mþh
Taka við rekstri Þórisstaða í Svínadal
Elvar Grétarsson og Alla Sigurðardóttir sjá nú um ferðaþjónustuna á Þórisstöðum.