Skessuhorn


Skessuhorn - 31.03.2015, Blaðsíða 9

Skessuhorn - 31.03.2015, Blaðsíða 9
9ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 2015 Laus störf hjá Akraneskaupstað SK ES SU H O R N 2 01 5 Eftirfarandi störf eru laus til umsóknar: Störf deildarstjóra í Leikskólanum Akraseli• Störf leikskólakennara í Leikskólunum Akraseli og Vallarseli• Hlutastörf í liðveislu með fötluðum börnum/unglingum• Sótt er um rafrænt á heimsíðu Akraneskaupstaðar á þar til gerðu eyðublaði. Nánari upplýsingar er að finna á www.akranes.is CLARVISTA STURTUGLER FYRIR VANDLÁTA CLARVISTA STURTUGLER FYRIR VANDLÁTA Seinni hluta Íslands- móts skákfélaga fór ný- verið fram í Rimaskóla í Reykjavík. Í ár kepptu í fyrsta sinn tvær sveit- ir frá Ungmennasam- bandi Borgarfjarð- ar. A sveitin hafnaði í öðru sæti þriðju deild- ar með níu vinninga og keppir því í ann- arri deild á næsta ári. B sveit UMSB hafnaði í áttunda sæti í annarri deild. Tinna Kristín Finn- bogadóttir frá Híta- rdal keppti með A sveit UMSB. „Keppnisfyrirkomulagið er þannig að sex skipa hverja sveit. Sterkasti skákmaður hverrar sveitar keppir við sterkasta keppanda mótherj- ans og þannig koll af kolli. Skák- irnar hefjast allar samtímis,“ sagði Tinna í samtali við Skessuhorn. „Þetta er í grunninn áhugamannamót. Við æfum ekki sérstaklega fyrir þetta, mætum bara og teflum. En þetta er mjög skemmtilegt og við erum með prýði- lega sveit, að minnsta kosti nógu góða til að komast upp um deild,“ sagði Tinna í samtali við Skessuhorn. Aðspurð um eigin árangur segist hún hafa teflt ágætlega á mótinu. „Ég tapaði einni skák í fyrri hlutan- um í haust og gerði eitt jafntefli núna. Endaði því með 4,5 vinninga af sex mögulegum,“ segir Tinna. kgk Knattspyrnufélag ÍA og VÍS hafa gert með sér tveggja ára samn- ing um að VÍS verði áfram einn stærsti bak- hjarl knattspyrnunnar á Akranesi. VÍS hefur alla tíð stutt dyggilega við bakið á ÍA. „Það er mikið ánægjuefni að svo verði áfram. VÍS verður sem fyrr áber- andi á búningi félagsins sem og á vellinum. VÍS slysatryggir alla samn- ingsbundna leikmenn meistaraflokks karla og kvenna næstu tvö árin. Full ástæða er svo til að benda Skagamönnum á ábend- ingarhnapp á vef ÍA til að fá tilboð í tryggingar frá VÍS. Ef það leiðir til viðskipta rennur hluti af iðgjaldinu til knattspyrnufélagsins sem styrk- ur og getur því orðið okkur frekari tekjulind,“ segir Magnús Guðmundsson formað- ur KFÍA í tilkynningu vegna samningsins. Auður Björk Guð- mundsdóttir fram- kvæmdastjóri fyrirtækja- sviðs VÍS segist stolt af starfsfólki fyrirtækisins á Akranesi sem borið hef- ur hitann og þungan af samstarfinu í gegnum tíðina. „Teymið á skrif- stofunni ber vitni um hve mikilvægir Skaga- menn eru okkur og það er heiður að leggja einu sigursælasta knattspyrnufélagi landsins lið með þessum hætti,“ segir Auður. þá Skáksveit UMSB upp um deild á Íslandsmóti skákfélaga VÍS og ÍA áfram í samstarfi Magnús og Auður Björk sem rituðu undir samninginn. Með þeim á myndinni eru Anna Halldórsdóttir sérfræðingur í markaðsdeild VÍS, Örn Gunnarsson stjórnarmaður í KFÍA og Haraldur Ingólfsson framkvæmdastjóri KFÍA. Frá verðlaunaafhendingunni um kvöldið. F.v. John Ontiveros, Tinna Kristín Finnbogadóttir og Bjarni Sæmundsson liðsstjóri með silfur- verðlaunagripina. Opið hús hjá Kaupfélaginu Fimmtudaginn 09.apríl, kl. 20-22 Fjölmennið og eigið góða kvöldstund með okkur Léttar veitingar í boði ! 10-70% afsláttur, margar spennandi vörukynningar, fullt af tilboðum og góður félagsskapur!

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.