Skessuhorn - 31.03.2015, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 2015
Handverkshátíð í
pípunum
EYJAFJ: Undirbúningur er
hafinn að 23. Handverkshátíð
í Eyjafirði, sem mun fara fram
6.-9. ágúst. „Hátíðin er löngu
orðin einn stærsti menningar-
viðburður á Eyjafjarðarsvæð-
inu jafnframt því að vera stærsti
vettvangur handverksfólks og
hönnuða á landinu. Árlega eru
um 100 sýnendur og hátíðin fær
um 15-20 þúsund heimsóknir. Í
aðdraganda hátíðarinnar und-
anfarin ár hafa íbúar Eyjafjarð-
arsveitar lagt sitt af mörkum við
að kæta gesti með ýmsum upp-
ákomum s.s. skreyta póstkassa,
prjóna klæði á traktor og kýr
svo eitthvað sé nefnt. Í ár verða
það fuglahræður sem munu fara
á stjá og er beðið með eftir-
væntingu eftir þeim. Umsókn-
ir vegna þátttöku á hátíðinni
streyma inn þessa dagana og
viljum við benda á að umsókn-
arfrestur rennur nú um mán-
aðamótin. Nánari upplýsingar
er að finna á www.handverksha-
tid.is.“ –fréttatilk.
Fulltrúaráð
Bifrastar
BORGARNES: Aðalfund-
ur Háskólans á Bifröst verður
haldinn 10. apríl næstkomandi
og var óskað eftir tilnefningum
frá Byggðarráð Borgarbyggð-
ar í fulltrúaráð Háskólans á Bif-
röst. Var Helgi Haukur Hauks-
son tilnefndur sem aðalmaður
til þriggja ára og Sigríður Júlía
Brynleifsdóttir sem varamaður
til eins árs. -eha
Aflatölur fyrir
Vesturland
21. – 27. mars.
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu
Akranes 16 bátar.
Heildarlöndun: 1.415.566 kg.
Mestur afli: Ingunn AK:
609.817 kg í tveimur löndun-
um.
Engar landanir á Arnarstapa í
vikunni
Grundarfjörður 5 bátar.
Heildarlöndun: 141.298 kg.
Mestur afli: Hringur SH:
65.249 kg í einni löndun.
Ólafsvík 8 bátar.
Heildarlöndun: 245.858 kg.
Mestur afli: Bárður SH: 52.780
kg í fimm löndunum.
Rif 11 bátar.
Heildarlöndun: 345.229 kg.
Mestur afli: Tjaldur SH:
80.671 kg í einni löndun.
Stykkishólmur 5 bátar.
Heildarlöndun: 116.606 kg.
Mestur afli: Þórsnes SH:
104.128 kg í þremur löndun-
um.
Topp fimm landanir á tíma-
bilinu:
1. Kap VE – AKR:
656.559 kg. 21. mars
2. Ingunn AK – AKR:
573.687 kg. 22. mars
3. Faxi RE – AKR:
122.628 kg. 24. mars
4. Tjaldur SH – RIF:
80.671 kg. 24. mars
5. Hringur SH – GRU:
65.249 kg. 24. mars
mþh
Fjölgun íbúa
REYKHÓLAR: Enn fjar-
ar undan í mannfjöldaþró-
un á Vestfjörðum, að einu
sveitarfélagi undanskildu,
sem er Reykhólahreppur. Á
tíu ára tímabilinu milli ár-
anna 2005 og 2015 fækkaði
fólki í öllum sveitarfélögum
Vestfjarðakjálkans nema
þar. Í heild fækkaði á Vest-
fjörðum úr 7.597 manns
2005 í 6.970 tíu árum síðar.
Það er 8,3% fækkun. Verst
er ástandið í Ísafjarðarbæ
þar sem fólki hefur fækkað
stöðugt úr 4.134 árið 2005
í 3.629 um síðustu áramót.
Það er 12,2% fækkun. Þró-
un íbúafjölda í Reykhóla-
hreppi á þessu sama tíma-
bili sýnir hins vegar kúrfu
með uppsveiflu og niður-
sveiflu. Árið 2005 bjuggu
þar 262. Fjöldinn steig til
2010 þegar hann náði há-
marki með 291 íbúa. Síð-
an hefur fækkað aftur og
nú voru íbúar 268 um síð-
ustu áramót. Þeir þó samt
sex fleiri en 2005. Það
var Reykhólavefurinn sem
tók saman tölur um þróun
íbúafjölda á Vestfjörðum
og studdist þar við gögn
Hagstofunnar.
–mþh
Gjaldþrotum
fer fækkandi
LANDIÐ: Nýskráningum
einkahlutafélaga síðustu
tólf mánuði, frá mars 2014
til febrúar 2015, fjölgaði
um 5% samanborið við tólf
mánuði þar á undan. Alls
voru 2.046 ný félög skráð á
tímabilinu. Mest er fjölgun
nýskráninga í sérfræðilegri,
vísindalegri og tæknilegri
starfsemi, 43% á síðasta
ári. Gjaldþrotum einka-
hlutafélaga hefur á sama
tíma fækkað um 17% sam-
anborið við tólf mánuði þar
á undan. Alls voru 778 fyr-
irtæki tekin til gjaldþrota-
skipta á tímabilinu. Gjald-
þrotum fækkaði mest í
flokknum flutningar og
geymsla, eða um 35%.
–mm
Sumarstörf
fyrir 365
námsmenn
LANDIÐ: Ákveðið hefur
verið að verja um 150 millj-
ónum króna úr Atvinnu-
leysistryggingasjóði til að
standa straum af átaksverk-
efni til að skapa störf fyr-
ir námsmenn í sumar hjá
opinberum stofnunum og
sveitarfélögum. Sams kon-
ar átak hefur verið gert síð-
ustu fimm sumur. Stefnt er
að því að auglýsa störfin í
lok apríl eða byrjun maí.
Skilyrði fyrir ráðningu er
að námsmenn séu að koma
úr námi, þeir séu skráðir í
nám að hausti (séu á milli
anna) og verði 18 ára á
árinu. Vonir standa til að
með átakinu verði til 365
störf í sumar fyrir náms-
menn sem skiptast á milli
opinberra stofnanna og
sveitarfélaga. Vinnumála-
stofnun mun halda utan
um þetta verkefni.
–mþh
Ríkiskaup auglýsir í Skessuhorni í dag
eftir leiguhúsnæði fyrir Vínbúðina
í Borgarnesi. Undanfarin ár hefur
verslun ÁTVR verið til húsa í Hyrnu-
torgi. Í auglýsingunni er óskað eftir að
taka á leigu 200-300 fermetra húsnæði
á verslunarsvæði sem m.a. skal liggja
vel við almenningssamgöngum, skal
vera á jarðhæð og uppfylla ýmis fleiri
skilyrði.
mm
Línu- og netabátinn Saxhamar
SH-50 tók niðri í vikunni sem leið
þegar skipið var að sigla inn í Rifs-
höfn. „Við vorum að koma úr okkar
síðasta róðri eftir að hafa lokið við
kvótann á þessu fiskveiðiári. Það var
háfjara, bátinn tók óvænt niðri og
hann sópaði grjóti í gegnum skrúf-
una. Hún stoppaði og skipið varð
vélarvana. Við settum strax út an-
keri og björgunarskipið Björg kom
svo og dró okkur að bryggju,“ segir
Friðþjófur Sævarsson skipstjóri og
útgerðarmaður Saxhamars í samtali
við Skessuhorn.
„Það er kafari búinn að fara niður
og skoða skrúfuna. Öll blöð í henni
eru beygluð. Gírinn hefur sjálfsagt
orðið fyrir tjóni. Hann er fastur í
afturábak. Það eru líka skemmd-
ir á skrúfuhaus og líklega einn-
ig á skrúfuöxli. Þetta verður við-
gerð sem tekur einn mánuð. Skipið
er vélarvana og það verður dregið í
slipp á Akureyri. Við áttum reynd-
ar að óbreyttu að mæta með Sax-
hamar í slipp þar 7. apríl til að fara
í venjubundið viðhald. Hamar SH
mun draga Saxhamar norður.“
Friðþjófur segist ekki gera sér al-
mennilega grein fyrir því hvað hafi
gerst. „Það var auðvitað háfjara og
mikið útfiri. Við vorum með ein-
hver 46 tonn af fiski í skipinu eft-
ir þennan róður. Við vorum á réttri
siglingaleið. Þetta leiðindaóhapp
er sjálfsagt tryggingamál. Það hafa
engin sjópróf verið haldin, allavega
hef ég ekki heyrt neitt. En það hlýt-
ur að verða.“
Skipið hefur verið á netum síð-
ustu tvo mánuði og fiskað afar vel.
Eins og fyrr var greint var Saxham-
ar á innleið úr sínum síðasta róðri
á þessu fiskveiðiári. Óhappið skerð-
ir þannig ekki tekjumöguleika út-
gerðar og áhafnar. „Skipið fer ekki
á veiðar næstu fimm mánuðina. Það
var búið að segja öllum í áhöfninni
upp eftir 30. mars,“ segir Friðþjóf-
ur Sævarsson.
mþh
Hljómsveitin Vök hefur sent frá
sér nýtt lag af væntanlegri EP plötu
sinni. Lagið nefnist „If I Was.“
Þetta er fyrsta lagið sem er gert
opinbert af nýju plötunni „Circles“
sem kemur út 15. maí. Vök er skip-
uð Andra Má Enokssyni, Margréti
Rán Magnúsdóttur og Ólafi Alex-
ander Ólafssyni. Öll þrjú eru bú-
sett í Hafnarfirði en þau Margrét
Rán og Ólafur Alexander eru ætt-
uð af Akranesi. Vök þykir afar efni-
leg hljómsveit og hefur vakið verð-
skuldaða athygli bæði á Íslandi og
erlendis. Upptökur og upptöku-
stjórn var í höndum þeirra þriggja
sem skipa Vök. Biggi Veira, sem
oftast er kenndur við hljómsveitina
GusGus, sá hins vegar um hljóð-
blöndun og hljómjöfnun.
Vök vakti mikla athygli þegar þau
komu fyrst fram á sjónarsviðið og
sigruðu Músíktilraunir 2013. Sama
ár sendi sveitin frá sér EP plötunna
„Tension.“ Hún hefur fengið mjög
lofsamlegar móttökur. Vök hefur
þegar verið bókuð á nokkrar tón-
listarhátir í Evrópu í sumar. Þar má
nefna „The Great Escape“ í Brig-
hton í Englandi. Vök er líka ein af
fjórum íslenskum hljómsveitir sem
eru bókaðar á Roskilde-tónlistarhá-
tíðina í Danmörku.
Melódísk raftónlist með saxa-
fónsveiflum einkennir tónlist Vak-
ar. Þetta er óvenjuleg og frumleg
blanda. Sjá má myndbandið við
nýja lagið „If I Was“ á myndbanda-
veitunni youtube.com og hlusta á
það á spotify.com og soundcloud.
com á netinu. mþh
Saxhamar SH. Myndin er tekin þegar skipið kom nýkeypt til Rifs í júlí 2006.
Saxhamar tók niðri í
innsiglunni í Rif
Auglýsa eftir húsnæði fyrir
vínbúð í Borgarnesi
Vök er skipuð Andra Má Enokssyni, Margréti Rán Magnúsdóttur og Ólafi
Alexander Ólafssyni. Öll þrjú eru búsett í Hafnarfirði. Margrét Rán og Ólafur
Alexander eru ættuð af Akranesi og ólust þar upp að hluta.
Ungt tónlistarfólk ættað frá Akranesi
í sigurför með nýja plötu