Skessuhorn


Skessuhorn - 31.03.2015, Blaðsíða 13

Skessuhorn - 31.03.2015, Blaðsíða 13
13ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 2015 Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is NÁNAR ÁWWW.GAP.IS HEIMAPAKKINN! SEM BIGGEST LOSER KEPP ENDUR FENGU MEÐ SÉR HEIM! HJÓLA- OG SPORTVÖRUVERSLUNIN · FAXAFENI 7 · SÍMI 5 200 200 · GAP.IS TAKTU MÁLIN Í ÞÍNAR HENDUR OG ÆFÐU HEIMA. Níu umferðaróhöpp urðu í um- dæminu í liðinni viku. Þar af óhapp síðastliðinn föstudag þar sem tíu bílar, allir á norðurleið nærri Bisk- upsbeygjunni á Holtavörðuheiði, lentu í aftanákeyrslum og urðu fyr- ir tjóni. Engin alvarleg slys urðu á fólki en fimm manns kvörtuðu undan eymslum og var þeim ráð- lagt að fara í læknisskoðun. Fjögur ökutæki voru fjarlægð af vettvangi með kranabíl en hin voru ökufær. Björgunarsveitin Húnar var köll- uð á staðinn og fluttu hún fólk- ið norður af heiðinni. Ökumaður fremsta bílsins taldi sig hafa ekið á um 40 km hraða þegar næstu bif- reið var ekið aftan á hann og síðan koll af kolli. Sumir ökumanna náðu að stoppa í tæka tíð þegar þeir sáu hvað framundan var en þá var bíl- um ekið aftan á þeirra bíla sem þá köstuðust á þá sem voru fyrir fram- an. Töluverðar umferðartafir urðu á meðan verið var að greiða úr mál- um. Á vettvangi var um 20 metra suðvestan vindur og fjögurra gráðu frost. Gekk á með hviðum, skaf- renningi og mjög slæmu skyggni. Mikil hálka var á vettvangi þar sem vegurinn var þakinn svelli. Alls komu 266 mál til afgreiðslu hjá Lögreglunni á Vesturlandi í lið- inni viku, þar af 186 tengd sjálfvirk- um hraðamyndavélum og öðrum ökuhraðamælingum lögreglu. þá Dagana 25. - 27. mars hélt Ung- mennafélag Íslands ungmennaráð- stefnuna Ungt fólk og lýðræði í Stykkishólmi. Yfirskrift ráðstefn- unnar í ár var: „Margur verður af aurum api - réttindi og skyldur ungs fólks á vinnumarkaði“. Um áttatíu manns sóttu ráðstefnuna að þessu sinni, bæði ungmenni sem starfa í ungmennaráðum víðs vegar um landið sem og starfsmenn sem sjá um málefni ungmenna í sínum sveitarfélögum. Í ályktun ráðstefnugesta er skor- að á sveitarfélög að leita til ung- menna og taka tillit til þeirra skoð- ana á málefnum samfélagsins, sér í lagi ef þau varða ungmennin sjálf. Einnig voru atvinnurekendur hvattir til að standa vörð um rétt- indi starfsmanna sinna. Að lokum vildu ráðstefnugestir koma á fram- færi áhyggjum sínum af kynjuðum útlitsstöðlum sem ítrekað gera vart við sig innan hinna ýmsu greina at- vinnulífsins. Þeir telja ekki eðlilegt að umsækjendur séu metnir vegna kyns eða útlits umfram hæfni sinn- ar. Ungmennafélag Íslands sem stóð fyrir ráðstefnunni í samstarfi við VR-skóla lífsins. Þótti hún takast með ágætum og vonir standa til að leikurinn verði endurtekinn að ári. kgk/ Ljósm. umfi. Þannig var einn bíllinn útlítandi á Holtavörðuheiði. Tíu bíla árekstur á Holtavörðuheiði Frá ráðstefnunni í liðinni viku. Ungt fólk og lýðræði í Stykkishólmi Fjölmörg ungmenni sóttu ráðstefnuna.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.