Skessuhorn


Skessuhorn - 31.03.2015, Blaðsíða 24

Skessuhorn - 31.03.2015, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 2015 Soffía Björg Óðinsdóttir tónlistar- kona frá Einarsnesi hefur vakið at- hygli að undanförnu með nýju lagi sínu See me, sem er að fikra sig upp vinsældalista Rásar tvö undanfarnar vikur. Fyrsta sólóplatan er væntanleg í maí og ber hún sama nafn og lag- ið sem nú er í spilun. Soffía Björg er nýflutt aftur heim í Borgarfjörðinn þar sem henni finnst best að semja tónlist. „Ég er með skrifstofu í Ný- sköpunar- og frumkvöðlasetri Hug- heima í Borgarnesi. Þar sinni ég dag- legu amstri og útset tónlistina mína, en best er að sitja í sólstofunni heima í Einarsnesi, umvafin fallegri fjalla- sýn, og semja,“ segir Soffía Björg í samtali við Skessuhorn. Ósýnileg í heimi sýnileikans „Ég sé sjálf um útgáfu plötunn- ar og allar bókanir þannig að það er í nægu að snúast. Ég ákvað eftir að hafa menntað mig í tónsmíðum í Listaháskóla Íslands, undir hand- leiðslu Tryggva M. Baldvinssonar, að tónlistin yrði mitt aðalstarf. Þetta er svona bóhem líf en það eflir mann að þurfa að hafa fyrir hlutunum og spyrja sig; „langar mig þetta virki- lega svona mikið?.“ Fyrsta platan er að hluta fjármögnuð með hjálp Kar- olina fund söfnunarsjóðs sem ger- ir aðilum kleift að fjármagna hug- myndir sínar með fjöldaframlögum. Það er frábær leið fyrir tónlistar- mann sem ætlar sér að gefa út sjálfur. Sömuleiðis góð leið til að vekja at- hygli á verkefninu og sjálfum sér.“ Tilurð lagsins See me er einmitt að Soffíu Björgu fannst hún ósýni- leg í heimi sem krefst sýnileika. „Ég var í innri baráttu, var ekki með allan kjarkinn og gleðina sem ég þurfti til að þora. Það hefur hjálpað mér mik- ið í gegnum tíðina að semja mig út úr aðstæðum og átta mig með þeim hætti á því sem ég er að gera vit- laust.“ Fyrsta platan er unnin upp úr útskriftarverkefni Soffíu Bjargar en hún útskrifaðist með BA gráðu í al- mennum tónsmíðum frá LHÍ í fyrra. „Það er svo mikil synd að öll vinn- an sem fer í gerð útskriftarverkefn- is nýtist ekki og verði bara að einum tónleikum. Því var tilvalið að taka verkefnið upp og byggja svo ofan á það til að gera fyrstu plötuna.“ Dásamlegt þegar tónarnir lifna við Soffía Björg hefur komið talsvert fram á tónleikum síðastliðin ár og tekið þátt í tónlistarhátíðum. „Við erum þessa stundina fjögur; Ingi- björg Elsa Turchi, Þorvaldur Ing- veldarson og Tómas Jónsson sem erum að baki Soffía Björg Band og höfum spilað meðal annars á Reykjavík Folk Festival og Aldrei fór ég suður á Ísafirði. Við tókum líka þátt í Rauðasandi festival, þar sem fokið var fram og tilbaka en ég var svo heppin að sólin kom út í smá tíma og ég gat spilað á sand- inum áður en festivalið var fært til Patreksfjarðar vegna vonsku- veðurs,“ rifjar hún upp og held- ur áfram: „Einnig hef ég unnið að tónsmíðum fyrir aðra. Ég samdi kórverk fyrir Dómkórinn í Reykja- vík sem var flutt í útvarpsmessu og á tónlistadögum Dómkirkjunnar. Það er eitthvað svo magnað við að heyra tónlistina lifna við. Ég vinn verkin mín í nótnaskriftaforritinu Sybelius og þar spilast tónlistin frekar flatt. Svo það er dásamlegt að heyra tónana lifna við í flutn- ingi alvöru kórs eða hljóðfæraleik- ara. Síðasta sumar fór ég svo til New York og söng á útgáfutón- leikum í Rockwood Music Hall fyrir söngleikinn Revolution in the Elbow of Ragnar Agnarsson, Furniture Painter sem var settur upp á Off-Broadway. Það var góð og skemmtileg reynsla að fá að taka þátt í því verkefni. Stefán Örn Gunnlaugsson var tónlistarstjóri þess verkefnis og hann er einn- ig upptökustjóri á plötunni minni sem við erum um þessar mundir að leggja lokahönd á. Það er allt svo breytilegt í tónlistarheiminum og plötusala fer minnkandi. Fólk er í auknum mæli að kaupa tónlist á rafrænu formi en mér fannst samt nauðsynlegt að gefa fyrstu plötuna út, það er svo mikill áfangi,“ segir Soffía Björg glaðlega að endingu. eha Fyrsta sólóplata Soffíu Bjargar væntanleg See me, fyrsta sólóplata Soffíu Bjargar er væntanleg í maí. Soffía Björg í New York þar sem hún söng á útgáfutónleikum í Rockwood Music Hall. Gistihúsið Við hafið í Ólafsvík opnað í maí Framkvæmdir við nýtt gistiheim- ili í Ólafsvík hafa gengið eins og í sögu. „Við keyptum og fengum húsnæðið afhent 5. janúar. Hér var áður til húsa líkamsræktarstöð. Það var strax hafist handa við að rífa allt innan úr húsnæðinu, bæði loft, milliveggi og gólfefni. Þann 13. janúar kom gámur með bygg- ingarefni og byrjað var að innrétta upp á nýtt. Þeir iðnaðarmenn sem hafa komið að þessu verki eru nán- ast allir héðan úr Snæfellsbæ. Þeir hafa staðið sig frábærlega. Fram- kvæmdin hefur gengið rosalega vel. Nú erum við að fara að byrja lokafrágang og raða inn húsgögn- um. Við reynum að nota páskana í það að skrúfa þetta saman og ætl- um svo að opna í byrjun maí þegar öll leyfi verða komin í hús,“ segir Sigurjón Hilmarsson. Opið allt árið um kring Gistiheimilið hefur fengið heit- ið „Við hafið.“ „Þetta verða her- bergi sem rúma alls 44 gesti. Þarna verða bæði tveggja manna herbergi og svo eru tvö herbergi með kojum sem verða þá ódýrari. Annað verður með fimm kojum og tíu manna og hitt með þrem- ur kojum eða fyrir sex gesti. Svo eru tvö herbergi á jarðhæð hússins sem eru með baði og aðstöðu fyrir fatlaða,“ segir Sigurjón. Þessi nýi gististaður verður op- inn gestum allan ársins hring. Sig- urjón segir að það leysi úr brýnum skorti á gistirými í bænum. „Það er skortur á gistingu hér í Ólafs- vík yfir veturinn. Yfir vetrarmán- uðina hefur aðeins verið hægt að leigja herbergi á einum stað í bæn- um. Við ætlum því að vera með opið árið um kring. Það er mikil fjölgun á ferðamönnum, ekki síst um vetrartímann. Ég vinn sjálfur fyrir Vegagerðina á veturna og hef með höndum snjómokstur og eft- irlit. Það hef ég gert síðustu fjög- ur árin. Í gegnum það starf sé ég greinilega aukningu á ferðamann- aumferðinni yfir vetrartímann. Allar tölur styðja svo þetta.“ Í umsjón konu og dætra Ekki verður opnaður matsölustað- ur í tengslum við nýja gistiheim- ilið. „Þetta verður með einföldu sniði. Þarna verður aðeins boð- ið upp á valfrjálsan morgunverð. Gestir munu svo geta notað eld- húsið síðdegis og á kvöldin. Fólk getur þá eldað sér sjálft það sem það vill hafi það áhuga á slíku.“ Sigurjón Hilmarsson hefur um árabil starfað sem sjómaður og gert út eigin báta. Hann segist ekki sjálfur ætla að fara að hella sér í ferðaþjónustuna með bein- um hætti. „Ég hef nú bara gegnum árin verð einn með sjálfum mér úti að sjó á hljóðskrafi við múkkann. Rut Einarsdóttir eiginkona mín og dætur okkar koma til með að sjá um reksturinn.“ Gistiheimilið „Við hafið“ er með eigin síðu á Facebook þar sem fylgjast má með framkvæmd- um. mþh Gistiheimilið „Við hafið“ er staðsett á annarri hæð að Ólafsbraut 55 í Ólafsvík. Á neðri hæðinn er vínbúð ÁTVR og verslunin Hrund. Svona var útlitið innandyra í húsakynnum nýja gistihússins þegar Skessuhorn leit við í síðustu viku. Iðnaðarmenn voru þar á fullu að leggja lokahönd á frágang í nýinnréttuðu húsnæðinu. Útsýnið frá gistiheimilinu er afar fallegt bæði út yfir miðbæinn í Ólafsvík og yfir sjóinn þar fyrir utan. Frá matsalnum verður hægt að sjá bæði yfir bæinn og hafið. Eiríkur Gautsson múrarameistari í Ólafsvík er einn þeirra iðnaðarmanna sem starfa við að koma nýja gisti- heimilinu í stand. Sigurjón Hilmarsson og Rut Einarsdóttir og dætur. Þær mæðgur munu sjá um daglega stjórn og rekstur gistiheimilisins.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.