Skessuhorn - 31.03.2015, Síða 7
7ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 2015
Leikfimihúsið á
Hvanneyri lagfært
Leikfimihúsið á Hvanneyri, líklega
eitt sögumerkasta hús í Borgarfirði,
og þó víðar væri leitað, fær nú brátt
sinn gamla svip.
Húsið var byggt árið 1911, bæði
til leikfimikennslu og samkomu-
halds. Um árabil var það stærsta
samkomuhús héraðsins. Þar voru
haldnar víðfrægar skemmtanir og
gríðarfjölmenn bændanámskeið,
auk þess sem Hvanneyringar iðk-
uðu þar leikfimi, glímur og dans eft-
ir þörfum og hætti. Leikfimihús-
ið teiknaði Einar Erlendsson. Hús-
ið er enn í notum svo sem ætluð
voru í upphafi, líklega það elsta utan
Reykjavíkur. Húsið er hluti hinn-
ar einstöku húsaþyrpingar á Gamla
staðnum á Hvanneyri - sem nánast
er safn um verk fyrstu íslensku húsa-
meistaranna.
Húsafriðunarsjóður (www.minja-
stofnun.is ) hefur látið fé af hendi
rakna til endurgerðarinnar, sem
fylgir ströngustu reglum þar um. Nú
er verið að setja glugga samkvæmt
upphaflegri gerð á suðurhlið húss-
ins. Það verk annast SÓ-bygging-
ar, alvanir smiðir og fornhúsamenn.
Það er sérstætt við gluggana að þeir
ná alveg niður að gólfi. Hugmyndin,
fyrir utan það að fá inn góða birtu,
var nefnilega að sólin sótthreinsaði
gólfið, sem hún svikalaust gerði.
Einn daginn mun þetta sögufræga
hús standa tilbúið í upphaflegri gerð
sinni. Það mun sóma sér vel við hlið
Skemmunnar frá 1896, sem þarna
stendur ögn austar, og verða engu
minni staðarprýði og lyftistöng
starfs en Skemman hefur orðið.
bg
Lentu í krapa og úti í skurði
Tveir suður-kóreskir ferðamenn
lentu í kröppum dansi á bílaleigu-
bíl sínum að morgni síðasta fimmtu-
dags á veginum vestur Mýrar. Krapi,
hálka og erfið færð var á veginum.
Bíll ferðamannanna snarsnérist á
veginum og lenti úti í skurði án þess
þó að velta. Mennina sakaði ekki en
var talsvert brugðið.
mþh
Georg Breiðfjörð Ólafsson skipa-
smiður í Stykkishólmi varð 106
ára fimmtudaginn 26. mars síð-
astliðinn. Af því tilefni fór hann
ásamt ættmennum og vinum í
kaffi í húsið sitt við Silfurgötu
15, en hann býr á Dvalarheim-
ili aldraðra í Stykkishólmi. Eng-
inn íslenskur karl hefur náð svo
háum aldri. Fjórir urðu 105 ára
og tíu urðu 104 ára. Nú eru á lífi
tíu íslenskir karlar sem eru orðnir
hundrað ára.
mm/ Heimild: Langlífi.
Varð fyrstur karla hér á
landi til að ná 106 ára aldri
Vertu með!
Hólaskóli - Háskólinn á Hólum
Hólum í Hjaltadal 551 Sauðárkrókur
Sími 455 6300 holaskoli@holar.is www.holar.is
Íslensk ferðaþjónusta þarfnast
menntaðs fólks sem kann vel til verka
Í Háskólanum á Hólum er í boði fjölbreytt
og hagnýtt nám á sviði ferðamálafræði
og viðburðastjórnunar.
Umsóknarfrestur er til 5. júní 2015
w
w
w
.h
ol
ar
.i
s
n
ýp
re
n
t
0
3
/2
0
15
Háskólasamfélag með langa sögu
Hólar í Hjaltadal er í senn mikill
sögustaður og útivistarparadís.
Háskólinn á Hólum er lítill en
öflugur háskóli sem sinnir kennslu
og rannsóknum á sviði ört
vaxandi atvinnugreina.
Landsvirkjun hefur um áratugaskeið
starfrækt sumarvinnuflokka ungs
fólks. Hóparnir sinna viðhaldi,
uppbyggingu og fegrun starfsstöðva
Landsvirkjunar og vinna jafnframt að
ýmsum samstarfsverkefnum víða um
land. Samvinna sumarvinnuflokka
Landsvirkjunar og félagasamtaka,
sveitarfélaga og stofnana hefur skilað
sér í auknum umhverfisgæðum og betri
aðstöðu til útivistar og ferðamennsku.
Í boði er vinnuframlag sumarvinnu-
flokka og flokksstjórn yfir þeim. Verkefnin
lúta að ræktun, hreinsun, viðhaldi og
öðrum umhverfisbótum ásamt ýmsum
samfélagsverkefnum.
Óskað er eftir að samstarfsaðilar leggi fram
vel skilgreind verkefni. Umsóknareyðublað
með nánari upplýsingum er að finna á vef
Landsvirkjunar, www.landsvirkjun.is.
Nánari upplýsingar í síma 515 9000, og hjá
thora.maria.gudjonsdottir@landsvirkjun.is
Umsóknarfrestur rennur út 30. apríl.
Umsóknareyðublöð er að finna á
landsvirkjun.is
Landsvirkjun auglýsir eftir
samstarfsaðilum að verkefninu
Margar hendur vinna létt verk
sumarið 2015.