Skessuhorn - 31.03.2015, Síða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 2015
Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga
á Vesturlandi var haldinn í Hót-
el Hamri í Borgarnesi síðastlið-
inn miðvikudag. Fyrr um daginn
voru aðalfundir Símenntunarmið-
stöðvar Vesturlands, Heilbrigðis-
nefndar Vesturlands, Sorpurðunar
Vesturlands og Vesturlandsstofu. Í
umræðum um skýrslu stjórnar og
reikninga SSV sem og í almennum
umræðum á fundinum var mest
rætt um almenningssamgöngur,
sem skilað hefur hagnaði síðustu
tvö árin. Í umræðunni kom með-
al annars fram í máli Páls S. Brynj-
arssonar framkvæmdastjóra SSV
að skoðað yrði að stofna sérstakt
félag um almenningssamgöngurn-
ar, enda talið nauðsynlegt í ljósi
stærðar verkefnisins. Engar kosn-
ingar fóru fram á aðalfundinum
enda er á haustfundi samtakanna
kosið til tveggja ára. Fyrir fundin-
um lá þó ein breyting á stjórn þar
sem Björgvin Helgason kemur inn
í stjórnina sem fulltrúi Hvalfjarð-
arsveitar í stað Hjördísar Stefáns-
dóttur.
Í lok fundarins kom fram tillaga
frá fimm bæjarfulltrúum á Akra-
nesi. Í henni fólst að stjórn SSV
skoðaði allar mögulegar leiðir til
að leiðrétta þann lýðræðishalla sem
er í stjórninni. Í stjórninni núna
eins og ákvarðað var á síðasta ári er
einn fulltrúi frá hverju sveitarfélag-
anna sem eru með færri en 3000
íbúa og tveir fulltrúa frá stærstu
sveitarfélögunum; Akraneskaup-
stað og Borgarbyggð. Á Akranesi
og í Borgarbyggð eru 65% íbúar
Vesturlands, en þessi sveitarfélög
hafa 33% vægi í stjórninni og jafn-
vel minna ef til kemur að formað-
ur, sem er nú frá hvorugu sveitar-
félaginu, þurfi að nýta sitt tvöfalda
atkvæðavægi. Þessi tillaga bæjar-
fulltrúa Akraneskaupstaðar var
felld með tólf atkvæðum gegn sex.
Gengur vel á leiðum og
farþegum að fjölga
Fram kom í máli Páls S Brynj-
arssonar framkvæmdastjóra SSV
vegna almenningssamgagna að
hagnaður hafi orðið á verkefninu
um 3,5 milljónir á árinu 2013 og
tæpar þrjár milljónir á síðasta ári.
Enn ætti þó eftir að leysa fortíð-
arvanda verkefnisins en af ýmsum
ástæðum varð 19 milljóna króna
tap á því árið 2012. Sveitarfélögin
tóku við verkefninu á haustdög-
um það ár. Páll sagði að leið 57
gengi vel, sem er leiðin Reykjavík-
Akranes-Borgarnes-Akureyri. Al-
menningssamgangnaverkefnið er
sem kunnugt er samstarfsverkefni
landshlutasamtakanna frá Hval-
fjarðargöngum að Akureyri. Upp
kom ágreiningur við Eyþing sem
taldi vegna útreikninga sem sam-
bandið lét gera að því bæri meiri
arður úr verkefninu og voru ekki
sammála fulltrúum Norðurlands
vestra, Vestfirðinga og Vesturlands
sem vildu að allur rekstur yrði í
einum sameiginlegum potti. Páll
sagði að samkomulag hafi náðst
við Eyþing síðasta haust um lausn.
Ef ekki hefði komið til samkomu-
lags við Eyþing, hefði í raun orð-
ið 15 milljóna króna hagnaður á
verkefninu á síðasta ári. Fram kom
einnig í máli Páls að farþegum væri
að fjölga á leið 58 á Snæfellsnesið
og sú leið í sókn sem og leið 82 frá
Hellissandi að Stykkishólmi. Í vor
yrði sú breyting að sumaráætlun
taki gildi rúmum mánuði seinna en
síðustu ár, það er 15. júní í stað 7.
maí áður. þá
Fjölmargir gestir leggja leið sína að
brugghúsinu Steðja í Borgarfirði til
að kynnast bruggferlinu og smakka
á framleiðslunni. „Við fáum í heim-
sókn 200-300 manns á mánuði að
meðaltali yfir árið. Þetta er fólk sem
vill skoða minni bruggsmiðju og fá
að smakka hjá okkur,“ segir Dag-
bjartur Ingvar Arilíusson aðspurður
út í stækkunaráformin. „Við erum
að stækka um 150 fermetra og hug-
myndin að vera með lageraðstöðu
og betri aðstöðu til að taka á móti
ferðafólki. Því verður bætt við mót-
tökusal og salernisaðstaðan bætt til
að taka á móti hópum ferðamanna.
Eftir breytingar á húsnæðinu eru
áform um að gera meira úr því að
taka á móti hópum. Heimsóknir í
minni brugghús eru gríðarlega vin-
sælar í Evrópu.“
Skóflustunga að stækkuðu húsi
verður þegar snjóa leysir og veð-
ur verður gott. Að framkvæmdum
loknum verður brugghúsið orðið
um 400 fermetrar. „Við erum fjög-
ur sem störfum hér á ársgrundvelli
og allt stefnir í fjölgun starfsmanna.
Núna er unnið af kappi við kynn-
ingu á fyrirtækinu, höfum farið ytra
og kynnt íslenska bjórgerð og það
sem við erum að gera. Svo er nóg
að gera að undurbúa sumarbjór-
inn,“ segir Dagbjartur. eha
Guðjón Sigmundsson (Gaui litli)
hefur varið vetrinum til að gera
nokkrar endurbætur á Hernáms-
setrinu sem hann rekur að Hlöð-
um á Hvalfjarðarströnd. „Við höf-
um lokið við að mála leikmyndina
sem stendur hér á sviðinu þannig
að hún lítur út fyrir að vera lúin
og gömul. Ég fékk leikmyndamál-
ara til þess verks. Það hefur heppn-
ast vel. Svo eru alltaf að bætast við
nýir hlutir og safnið stækkar. Nú
höfum við sett upp nýja sýningu
í gamla skrifstofuherberginu sem
kallað er hér á Hlöðum. Þar er á
einum vegg eins konar verkstæð-
is- eða skemmuveggur með ýms-
um hlutum. Mest af því fékk ég
hjá Olíudreifingu úr skemmu og
litlum bragga sem verið var að rífa
á Litlasandi við olíustöðina hér
inni í Hvalfirði.“
Safnið stækkar stöðugt
Gaui segir að stórir og þung-
ir hlutir hafi einnig verið færðir
til og settir í skrifstofuherbergið.
„Þar má nefna fjarskiptabúnað úr
seinni heimsstyrjöld og risalíkanið
af orrustubeitiskipinu Hood. Það
er ákveðið hagræði í þessu. Þetta
opnar betri möguleika til að halda
viðburði í sjálfum samkomusaln-
um hér á Hlöðum,“ segir hann.
Safnið á Hernámssetrinu heldur
stöðugt áfram að stækka. „Ég var
að vona að safnið yrði nú til friðs
þannig að ég þyrfti ekki að breyta
og bæta meira um stund allavega.
En þá hringdi maður til mín í gær
sem ætlar að koma til mín sendibíl
með gömlu dóti frá stríðsárunum
sem hann var að losa úr geymslu
hjá sér. Hann vildi koma því á góð-
an og öruggan stað og valdi Hlað-
ir. Núna um páskana mun gólfið
hér því fyllast af þessum nýju ger-
semum sem þarf að koma fyrir.“
Aðsókn eykst stöðugt
Draumurinn er að stækka Her-
námssetrið enn frekar. Aðsókn að
því er góð og eykst ár frá ári. Fjöldi
fólks sem fer um Hvalfjörð heim-
sækir Hernámssetrið á sumrin. Í
vetur hafa margir hópar komið og
sótt það heim. „Ég er búinn að láta
teikna stækkun að safninu. Ég hef
fengið íslenskan arkitekt sem er
búsettur í Danmörku til að teikna
þrjá bragga sem yrðu þá reistir hér
hjá. Þetta eru þó bara draumar enn
sem komið er. Það er ekkert ákveð-
ið í þessum efnum.“
Gaui segir að sumarið líti vel
út. „Það er ágætlega bókað. Um
helgar verður mikið um brúð-
kaup og ættarmót. Annars verð-
ur Hernámssetrið opið frá klukk-
an 11 til 17 alla daga nema laug-
ardaga. Þá eru ættarmótin. Kaffi-
húsið Hvíti fálkinn sem hefur ver-
ið rekið hér undanfarin ár verður
líka opið. Svo er það stórviðburður
ársins. Sunnudaginn 10. maí verða
70 ár liðin síðan seinni heimsstyrj-
öldinni lauk. Þá verður haldinn
sérstök friðarhátíð hér á Hlöðum.
Núna yfir páskana verður opið frá
kl. 13 til 17 nema á skírdag. Þá er
húsið bókað fyrir fermingarveislu.“
mþh
Síðastliðinn föstudag var skrif-
að undir samninga vegna Lands-
móts hestamanna sem fara á fram
á Hólum í Hjaltadal sumarið 2016.
Hólar voru þennan dag kynnt-
ir formlega sem mótstaður og far-
ið með gesti um svæðið og þeim
m.a. sagt frá hvaða framkvæmd-
ir ráðist verður í vegna mótsins.
Að lokinni leiðsögninni var samn-
ingurinn undirritaður milli Lands-
móts hestamanna ehf. og Gullhyls
sem er félag hestamannafélaganna
þriggja í Skagafirði. Fjölmenni var
við athöfnina sem stýrt var af Lár-
usi Ástmari Hannessyni formanni
LH. Hestamannafélögin í Skaga-
firði stóðu fyrir fánareið og Karla-
kórinn Heimir söng nokkur lög.
Ásamt Lárusi ávörpuðu samkom-
una Erla Björk Örnólfsdóttir rekt-
or Háskólans á Hólum, Sigríður
Svavarsdóttir forseti sveitarstjórnar
Sveitarfélagsins Skagafjarðar, Ingi-
mar Ingimarsson og Jónína Stef-
ánsdóttir formaður hestamanna-
félagsins Stíganda.
mm
Fulltrúar sunnan Skarðsheiðar, úr Hvalfjarðarsveit og
Akranesi eru hér fremstir á mynd.
Almenningssamgöngur og stjórnar-
skipan mest ræddar á aðalfundi SSV
Svipmynd af fundinum í síðustu viku. Fulltrúar frá
Stykkishólmi á fundinum fremst í mynd.
Þorvaldur Böðvar Jónsson er einn af færustu sviðsmyndamál-
urum Íslands og hefur starfað fyrir leikhúsin um árabil. Hann
hjálpaði til við breytingarnar á Hernámssetrinu í vetur. Búið er
að stilla upp gömlum búnaði úr Olíustöðinni í Hvalfirði. Gamla
bárujárnið á myndinni fékkst hins vegar úti á Akranesi.
Endurbætur á Hernámssetrinu á Hlöðum
Guðjón Sigmundsson á Hernámssetrinu á Hlöðum er
tilbúinn fyrir sumarið eftir endurbætur og breytingar í
vetur.
Flöskur bíða áfyllingar í Steðja.
Brugghúsið Steðji
verður stækkað í vor
Dagbjartur Ingvar í Brugghúsinu Steðja.
Lárus Á. Hannesson formaður LH í ræðupúlti. Við hlið hans eru forsvarsmenn
hestamannafélaganna í Skagafirði og á bakvið Karlakórinn Heimir.
Ljósm. Feykir/kse.
Skrifað undir samninga um
landsmót á Hólum