Skessuhorn - 31.03.2015, Síða 11
11ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 2015
Vinnumálastofnun, Öryrkjabanda-
lag Íslands og Þroskahjálp hafa
ákveðið að fara af stað með sam-
starfsverkefni sem miðar að því að
skapa störf fyrir atvinnuleitendur
með skerta starfsgetu. Verkefnið
hefur fengið nafnið „Virkjum hæfi-
leikana – alla hæfileikana.“ Með
þátttöku í verkefninu geta opin-
berar stofnanir og sveitarfélög ráð-
ið til sín einstaklinga með skerta
starfsgetu með stuðningi frá ráð-
gjöfum Vinnumálastofnunar og
vinnusamningi öryrkja. Með gerð
slíkra samninga fá launagreiðendur
endurgreiðslu að hluta af launum
og launatengdum gjöldum.
Verið er að kynna verkefnið
þessa dagana fyrir forstöðumönn-
um opinberra stofnana, bæjarstjór-
um og framkvæmdastjórum sveit-
arfélaga á Vesturlandi. Kynning-
in byrjaði á Akranesi síðastliðinn
fimmtudag með heimsókn í Stjórn-
sýsluhúsið á Akranesi, á Heilbrigðis-
stofnun Vesturlands og í Fjölbrauta-
skóla Vesturlands. Þar var verkefnið
kynnt fyrir Regínu Ásvaldsdótt-
ur bæjarstjóra, Guðjóni Brjánssyni
framkvæmdastjóra HVE og Ágústu
Elínu Ingþórsdóttur skólameistara
FVA. Guðrún Sigríður Gísladótt-
ur forstöðumaður Vinnumálastofn-
unar á Vesturlandi kynnti verkefnið
ásamt Thelmu Hrund Sigurbjörns-
dóttir forstöðumanni Starfsend-
urhæfingar Vesturlands og Þórdísi
Ingibjartsdóttur atvinnumálafulltrúa
frá Fjöliðjunni. Með þeim í för voru
Böðvar Guðmundsson sem starf-
ar í leikskólanum Akraseli og Borg-
hildur Ósk Bjarnadóttir sem starfar
í Fjöliðjunni en þau hafa bæði tekið
þátt í verkefninu. Regínu, Guðjóni
og Ágústu var færður gripur sem er
til þess gerður að minna á verkefnið
„Virkjum hæfileikana – alla hæfi-
leikana.“
Akkur fyrir samfélagið
að hæfileikar nýtist
Guðrún Sigríður Gísladóttir hjá
Vinnumálastofnun lagði ríka
áherslu á mikilvægi þess að fyrir-
tæki og stofnanir skoðuðu vel hvort
rými væri til að bæta við störfum
á grundvelli þessa verkefnis. „Það
yrði mikill akkur fyrir samfélagið
allt. Mikilvægt er að nýta styrkleika
hvers og eins og skapa fólki þann-
ig mikilvægt hlutverk á vinnumark-
aðinum.“ Guðrún benti á að hæfi-
leikar margra atvinnuleitenda með
skerta starfsgetu ný tist oft betur
í hlutastarfi. Það gæti því hentað
stofnunum og fyrirtækjum að bæta
við slíkum starfskrafti á álagstíma.
Guðjón Brjánsson hjá HVE sagði
rétt að alltof mikið væri horft til
þess fólks sem tilbúið væri að vinna
frá átta til fjögur. Sjálfsagt væri að
skoða vel möguleika að taka þátt í
þessu samstarfsverkefni og stjórn-
endur stofnunarinnar væru jákvæð-
ir gagnvart því.
Samningurinn um verkefnið
„Virkjum hæfileikana – alla hæfi-
leikana“ er þríhliða á milli atvinnu-
rekanda, starfsmanns og Trygg-
ingastofnunar ríkisins. Hámarks-
endurgreiðsla af launum og launa-
tengdum gjöldum er 75% í tvö ár
og lækkar síðan um 10% á ári þar
til 25% endurgreiðslu er náð. Þá
er endurgreiðsluhlutfallið ótíma-
bundið. Ráðningarfyrirkomulag er
eins og almennt gerist og er vinnu-
samningur öryrkja ótengdur ráðn-
ingarsamningi.
þá
Gæðaráð íslenskra háskóla fram-
kvæmdi í síðustu viku úttekt á Há-
skólanum á Bifröst, en áður hafa
samsvarandi úttektir verið gerð-
ar á öðrum háskólum hér á landi,
síðast á Háskóla Íslands í janúar
síðastliðnum. Úttektarnefndin er
skipuð tveimur fulltrúum gæða-
ráðsins, tveimur erlendum sérfræð-
ingum og nemanda við Listahá-
skóla Íslands. Þeim til fulltingis eru
tveir fulltrúar frá Rannís sem ann-
ast skrifstofuhald og framkvæmda-
stjórn fyrir gæðaráðið. Gæðaráð ís-
lenskra háskóla var sett á laggirn-
ar 2011 og er skipað sex erlendum
sérfræðingum í gæðamálum á há-
skólastigi. Úttektin er fer fram með
fundum með yfirstjórn skólans, öll-
um helstu nefndum og ráðum skól-
ans, nemendum og kennurum.
„Úttektarnefndin hefur kynnt
sér háskólaþorpið á Bifröst og útibú
skólans við Hverfisgötu í Reykjavík.
Til grundvallar úttektinni liggja ít-
arlegar sjálfsmatsskýrslur skólans
sjálfs og og fagsviðanna þriggja,
viðskiptasviðs, lagasviðs og félags-
vísindasviðs. Mikið undirbúnings-
starf hefur verið unnið í Háskól-
anum á Bifröst í aðdraganda heim-
sóknar úttektarnefndarinnar og
hafa fjölmargir í skólanum lagt þar
hönd á plóg,“ segir í tilkynningu
Háskólanum á Bifröst.
mm
Gæðaráð tekur út starf-
semi Háskólans á Bifröst
Vilhjálmur Egilsson rektor á Bifröst ræðir við fulltrúa úr gæðaráði.
Nýtt samstarfsverkefni fyrir atvinnu-
leitendur með skerta starfsgetu
Þeir sem viðstaddir voru kynninguna hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands síðast-
liðinn fimmtudag. F.v. Guðjón, Böðvar, Borghildur Ósk, Þórdís, Thelma Hrund og
Guðrún Sigríður.
Smiðjuvellir 32 - 300 Akranes - Sími 431 5090 - Fax 431 5091 - www.apvest.is
Opið um páskana:
Skírdagur, 12-14.
Föstudagurinn langi, 12-13, vakt lyfjafræðings.
Laugardagur 4. apríl, 10-14.
Páskadagur, 12-13, vakt lyfjafræðings.
Annar í páskum, 12-13, vakt lyfjafræðings.