Skessuhorn - 31.03.2015, Page 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 2015
Frá ársbyrjun í fyrra hefur verið
unnið að ritun sögu Borgarness sem
ráðgert er að gefa út í tilefni þess að
í mars 2017 verða 150 ár frá því að
staðurinn varð löggiltur verslunar-
staður. Egill Ólafsson blaðamaður
og sagnfræðingur vann að verkinu
en eftir skyndilegt fráfall hans í lok
janúar var Heiðar Lind Hansson
ráðinn til að ljúka við ritun sögunn-
ar. Heiðar, sem er menntaður sagn-
fræðingur og frændi Egils, hafði
innsýn inn í verkið og hafði ver-
ið honum innan handar í því. Rit-
nefnd sem hefur yfirumsjón með
verkinu ákvað því að fela Heiðari
Lind að taka við verkefninu og hóf
hann störf nú í byrjun mars.
Verkinu miðar vel
Heiðar er fæddur og uppalinn í
Borgarnesi, menntaður sagnfræð-
ingur frá Háskóla Íslands. Hann
lauk mastersnámi í í alþjóðastjórn-
málasögu frá The London Scho-
ol of Economics and Political Sci-
ence (LSE) árið 2011. Eftir heim-
komuna kenndi Heiðar í Mennta-
skóla Borgarfjarðar og starfaði svo
sem blaðamaður á Skessuhorni til
síðasta vors. Undanfarna mánuði
hefur hann unnið við að taka sam-
an gögn fyrir Samskip til undirbún-
ings ritunar sögu fyrirtækisins og
þeirra fyrirtækja sem mynda Sam-
skip í dag. Engin tímamörk voru á
því verkefni og því gat Heiðar fyrir-
varalítið tekið við ritun sögu Borg-
arness. „Egill var búinn að grúska
mjög mikið í verkefninu og hafði
varið miklum tíma í heimildaleit,
m.a. í skjalasöfnum og með sam-
tölum við heimildamenn. Hann var
því búinn að leggja góðan grunn að
verkinu þegar hann féll frá og hafði
skrifað mörg kafladrög sem ná al-
veg inn í samtímann. Svo var hann
einstaklega agaður í vinnubrögðum
og skipulag hans þannig að það hef-
ur reynst auðveldara en ella að taka
við verkinu,“ segir Heiðar í samtali
við Skessuhorn. „Egill hafði kynnt
mér hvernig hann vann að bók-
inni og hafði hugsað sér hana og
er ætlunin að halda vinnunni áfram
á þeim nótum. Stefnt er að því að
upphafleg verklok haldist þrátt fyr-
ir fráfall hans og ég geri ráð fyrir að
rituninni ljúki um næstu áramót.“
Saga fólksins
„Ég mun leitast við að miðla sög-
unni á þann hátt að hún verði
áhugaverð aflestrar og verður saga
fólksins sem búið hefur og lifað í
Borgarnesi. Margir þræðir verða
dregnir fram í bókinni um upp-
haf byggðarinnar og þróun hennar
allt til dagsins í dag. Fjallað verð-
ur atvinnulífið, menningu, félags-
líf, stjórnmál, íþróttir, daglegt líf
og fleira,“ útskýrir Heiðar og held-
ur áfram: „Efni bókarinnar verð-
ur að nokkru leyti byggt á munn-
legum heimildum, fjölmargir hafa
komið að verkinu og veitt upplýs-
ingar. Ljósmyndir munu einnig
skipa veglegan sess. Enn er verið
að safna myndum og hvet ég alla þá
sem eiga gamlar myndir sem ættu
erindi í bókina að hafa samband
við mig eða Safnahúsið í Borgar-
nesi.“ Heiðar segir fjölmarga hafa
lagt lið við vinnslu bókarinnar og
er sá stuðningur mikilvægur. Þá
finni hann fyrir miklum áhuga fyr-
ir verkinu, ekki síst hjá Borgnes-
ingum sjálfum, bæði núverandi og
brottfluttum. ,,Það er von mín að
þetta takist vel og að útkoman verði
bók sem verði víðlesin og alltaf inn-
an seilingar sem góð heimild um
sögu Borgarness.”
eha
Eyrarrósin er viðurkenning fyr-
ir framúrskarandi menningarverk-
efni á landsbyggðinni. Henni er ætl-
að að beina sjónum að og hvetja til
menningarlegrar fjölbreytni, ný-
sköpunar og uppbyggingar á sviði
menningar og lista á landsbyggð-
inni. Þrjú verkefni geta hlotið Eyr-
arrósina 2015. Frystiklefinn í Rifi er
eitt þeirra, ásamt Sköpunarmiðstöð-
inni á Stöðvarfirði og Listasafni Ár-
nesinga. Úrslit verða kunngjörð á
Ísafirði 4. apríl næstkomandi. Í verð-
laun verða flugmiðar auk 1.650 þús-
unda króna.
Kári Viðarsson er leikari, leik-
stjóri, eigandi og framkvæmdastjóri
Frystiklefans. Í samtali við Skessu-
horn kvaðst hann hæstánægður með
tilnefninguna. „Það er frábært að
tekið sé eftir því þegar verið er að
gera eitthvað sem skiptir máli. Ég
get ekki verið annað en ánægður,“
sagði Kári. „Að baki þessari viður-
kenningu liggur þrotlaus vinna, bæði
mín og þeirra sem hafa unnið með
mér og stutt mig í að gera þennan
skrýtna draum að veruleika,“ bætir
hann við. Kári telur einnig að hug-
myndin sem er í öndvegi við rekstur
Frystiklefans sé svolítið spennandi,
til dæmis varðandi það greiðslukerfi
sem viðhaft er. Fólk borgar að sýn-
ingu lokinni og ræður sjálft hve mik-
ið. „Menningarviðburðirnir hér hafa
verið mjög vel sóttir og ég held að
þetta greiðslufyrirkomulag hafi sitt
að segja um það,“ segir Kári. „Fast-
ur liður allra samninga sem ég geri
við listamenn sem vilja koma hingað
er að þeir haldi hér sýningu. Þann-
ig gefa þeir af sér til samfélagsins í
formi menningarviðburða,“ bætir
hann við.
Kári víkur næst að því orðspori
sem honum þykir fara af menning-
arstarfi á landsbyggðinni. „Það er
stundum eins og það starf sé litið
hornauga. Einhvern veginn gert ráð
fyrir að menningar- og listviðburð-
ir úti á landi séu ekki framkvæmdir
af sömu fagmennsku og í Reykjavík.
Það er auðvitað bara rugl og því við-
horfi þarf að breyta,“ segir hann og
bætir því við að hann telji að Frysti-
klefanum sé hægt og rólega að takast
það. „Leiksýningin okkar MAR, sem
hefur verið sýnd yfir 40 sinnum síðan
í desember, hlýtur að segja eitthvað
um gæði þess efnis sem við framleið-
um. Fólk sækir í þetta, Frystiklefinn
er orðinn hluti af samfélaginu hérna
og það er frábært að fólk hér á Snæ-
fellsnesi geti sótt góðar sýningar,“
segir Kári og bætir því að lokum við
að hann vonist til að sjá lítil og fag-
mannleg leikhús spretta upp á fleiri
stöðum á landsbyggðinni. kgk
Átthagastofa Snæfellsbæjar fékk
Inga Hans Jónsson sagnamann og
lífskúnstner í Grundarfirði til að
gera drög að nýjum innviðum og
hugmyndagrunni fyrir Sjávarsafn-
ið í Ólafsvík. Hann hefur nú skil-
að hugmyndum sínum. Afrakstur-
inn má sjá á líkani sem er til sýn-
is í húsakynnum Átthagastofunn-
ar í Ólafsvík. Jóhannes Ólafsson og
Jenný Guðmundsdóttir hafa rek-
ið Sjávarsafnið um árabil. Þar hef-
ur mátt skoða lifandi íslenska fiska
í búrum um sumartímann. Þessi
sýning var þó ekki til staðar í fyrra.
Áhugi er fyrir að endurvekja Sjáv-
arsafnið og skapa því um leið nýj-
ar víddir.
Með skírskotun
til sögunnar
Ingi Hans segir að hann hafi fyrst
og fremst verið fenginn af Átthaga-
stofunni til að koma með nýja hug-
myndafræði inn í rekstrarumhverfi
Sjávarsafnsins. Í því felst að leggja
fram tillögur um hönnun og til-
gang. „Ég hef fengist við svona
hönnunarverkefni sem snúa að sýn-
ingum og jafnvel hótelum og veit-
ingahúsum þar sem maður er svolít-
ið að leika sér með þennan íslenska
veruleika. Sjálfur er ég mikið í sög-
unni. Maður sér nú eftir kreppuna
að fólk er svolítið að leita til baka í
ræturnar. Nú er að hverfa af sjón-
arsviðinu sú kynslóð sem byggði
ótrúlega margt upp í þessu landi.
Það er sjálfsagt að kallast á við þann
tíma þegar þessi kynslóð var upp á
sitt besta.“
Út frá þessum hugleiðingum
settist Ingi Hans niður til að vinna
hugmyndir sem gætu átt rætur í
menningu og sögu Ólafsvíkur. „Ég
reyni að steypa upplifuninni við
sjávarsafnið saman með veitinga-
hluta og sal sem allt dregur upp
eina mjög áhugaverða mynd. Hún
yrði eins konar hjarta verstöðvar-
innar sem Ólafsvík vissulega er og
hefur verið.“
Líkan til sýnis
Hugmynd Inga Hans er þann-
ig að gerður verði góður sjávar-
réttaveitingastaður í þessu um-
hverfi. „Ég bjó til líkan af þessu.
Það liggur frammi í Átthagastof-
unni til skoðunar. Nú vantar okkur
bara fólk sem vill ýta þessum hug-
myndum úr vör og búa til almenni-
legan sjávarréttaveitingastað þarna
á bryggjunni. Þetta er alveg stór-
kostlegt tækifæri. Ólafsvík þarf á
þessu að halda. Þarna er geysimik-
ill ferðamannastraumur sem er allt-
af að aukast. Snæfellsnesþjóðgarð-
urinn er kominn í tíunda sæti sem
vinsælasti ferðamannastaður lands-
ins yfir sumarið og í sjöunda sæti
yfir veturinn. Þetta er tækifæri sem
væri gaman ef fólk myndi vilja nýta.
Þarna kæmi fólk og gæti borð-
að fiskrétti og skoðað þetta fiska-
safn. Við hönnum þetta svolítið út
frá því að draga upp þessa gömlu
Ólafsvík. Við myndum byggja upp
eins konar eftirgerðir sem minntu
á gamla beitningarskúra, hjalla og
þess háttar. Þar yrði aðstaða fyr-
ir eldun, hreinlæti og þess háttar,“
segir Ingi Hans Jónsson.
Hugmyndum tekið vel
Dagbjört Agnarsdóttir verkefna-
stjóri hjá Átthagastofunni segir
að fólki lítist afar vel á hugmyndir
Inga Hans.
„Fiskarnir hafa verið þarna í
þessum búrum á sumrin. Þó ekki í
fyrrasumar. Húsnæðið er mikið og
flott. Það býður upp á möguleika.
Líkanið sem búið er að gera sýn-
ir þessa tillögu vel. Eigendur húss-
ins ætla að koma þeim aftur í gagn-
ið og sjá um þau. Veitingahlutinn
sem Ingi Hans leggur til yrði hins
vegar nýr. Það er búið á ákveða að
opna í sumar. Best væri ef það yrði
með þessum veitingahluta. Þetta
yrði frábær viðbót hérna hjá okkur.
Við urðum vör við það í fyrrasum-
ar þegar var lokað að það var mikið
spurt um Sjávarsafnið,“ segir Dag-
björt. mþh
Dagbjört Agnarsdóttir verkefnastjóri
Átthagastofu Snæfellsbæjar.
Ný hönnun Sjávarsafnsins í Ólafsvík liggur fyrir
Sjávarsafnið stendur steinsnar frá höfninni í Ólafsvík. Svona lítur líkanið út sem Ingi Hans hefur unnið með hugmyndum sínum um inn-
viði og rekstur Sjávarsafnsins. Það er til sýnis á Átthagastofu Snæfellsbæjar.
Ingi Hans Jónsson er þekktur fyrir að
vera hugmyndaríkur.
Kári Viðarsson leikari, leikstjóri, eigandi og framkvæmdastjóri Frystiklefans.
Frystiklefinn tilnefndur
til Eyrarrósarinnar 2015
Borgnesingar áhugasamir um söguritun
Heiðar í starfsaðstöðu sinni á Pálssafni í Safnahúsi.