Skessuhorn - 31.03.2015, Síða 25
25ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 2015
Undanfarnar vikur hefur samstarfs-
hópur um forvarnir í Borgarbyggð
boðið unglingum og foreldrum á
fyrirlestra um hin ýmsu málefni
er varða unglinga. Forvarnarhóp-
ur Borgarbyggðar samanstendur af
fulltrúum frá lögreglu, heilsugæslu,
Grunnskóla Borgarness, Grunn-
skóla Borgarfjarðar, Menntaskóla
Borgarfjarðar, UMSB og Borgar-
byggð.
„Að slefa upp í aðra
manneskju er skrýtið“
Einn þessara fyrirlestra var haldinn
síðastliðinn miðvikudag í Hjálm-
akletti í Borgarnesi. Þá kom Sigríð-
ur Dögg Arnardóttir, Sigga Dögg
kynfræðingur, og fræddi nemend-
ur elstu bekkja grunnskólans og for-
eldra þeirra um kynlíf. Yfirskriftin
var „Kjaftað um kynlíf“ eftir sam-
nefndri bók Siggu Daggar sem er
ætlað að auðvelda foreldrum að
tala um kynlíf við börnin sín. Sigga
Dögg, sem er með BA í sálfræði og
MA í kynfræði, byrjaði að tala um
vandræðalegheitin í tengslum við
samtöl foreldra og barna um kyn-
líf. „Valdamismunur er á milli barna
og foreldra og þar af leiðandi er oft
erfitt að opna á þessi málefni. For-
eldrar þurfa að stinga á kýlið, grípa
tækifærin sem gefast og fræða börn-
in sín,“ útskýrir Sigga Dögg. „Það
er þó mjög mikilvægt að foreldr-
ar fari varlega í að segja sögur af
sjálfum sér.“ Létt var yfir salnum í
Hjálmaklett og mikið hlegið af hin-
um ýmsu upprifjunum af kynfræðslu
unglingsáranna. „Að slefa upp í
aðra manneskju er skrýtið,“ heldur
Sigga Dögg áfram. „Það er enginn
sem segir: „fyrsti sleikurinn var al-
veg frábær!“ Þú munt opna munn-
inn og nudda saman tungum við
aðra manneskju og skiptast á slefi.
Þetta muntu jafnvel gera í 20 mín-
útur. Þetta verður mjög ánægju-
legt,“ sagði hún og uppskar mikinn
hlátur.
Stóísk ró æskileg
Sigga Dögg hafði farið í skólana í
Borgarnesi, á Varmalandi og Klepp-
járnsreykjum fyrr um daginn og
þar sem hún hitti unglingana í ní-
unda og tíunda bekk. Einnig hafði
hún verið á ferðalagi um Vestur-
land í síðustu viku. „Ég er búin að
heimsækja Grundarfjörð, Stykkis-
hólm, Ólafsvík og Borgarfjörðinn
og þið eigið alveg frábæra unglinga
á Vesturlandi,“ segir Sigga Dögg.
Fræðsluerindin eru á vegum félags-
miðstöðva eða forvarnarfulltrúa á
hverjum stað og hafa verið vel sótt.
Sigga Dögg talaði um hve ungling-
unum þætti mikilvægt að geta leitað
til foreldra með fræðslu um kynlíf
og annað. Hún ráðlagði foreldrum
að gott væri að anda með nefinu,
búa yfir stóískri ró og búa sig und-
ir spurningar barnsins. Sömuleið-
is ráðlagði hún foreldrum unglinga
að kaupa smokka og hafa aðgengi-
lega fyrir þá. Ekki einn pakka, held-
ur marga og segja unglingunum að
nota þá. Sömuleiðis fræða börnin
sín um hvað ber að gera ef getnað-
arvörnin rofnar. Það hjálpaði ung-
lingum að koma til foreldranna með
spurningar og opnaði á samtalið.
Sigga Dögg segist vita að unglingar
hafi margar spurningar því hún fær
mikið af spurningum frá unglingun-
um, bæði í fræðsluerindum sem og
í gegnum samskiptasíður. Hún hitti
álíka mikið af foreldrum en fái ekki
margar spurningar frá þeim. Ung-
lingarnir hafi líka oft áhyggjur að
foreldrarnir ráði ekki við fyrirlest-
urinn, að hann sé of dónalegur fyrir
fullorðna fólkið því það sé svo langt
síðan foreldrarnir hafi stundað kyn-
líf. eha
Kjaftaði um kynlíf við unglinga og foreldra
Bókin svarar fjölmörgum spurningum.
Sigga Dögg Arnardóttir áritaði bók sína „Kjaftað um kynlíf“ fyrir foreldra sem
vildu vera betur búin undir kynfræðslu barna sinna.
Fyrirlesturinn var á léttu nótunum og það var mikið hlegið.
Mæla með auknum veiðum á grásleppu
Sérfræðingar Hafrannsóknastofn-
unar leggja til að heildarafli grá-
sleppu á vertíðinni 2015 verði 6.200
tonn. Það er tveggja þúsunda tonna
aukning frá því í fyrra. Ástæða aukn-
ingarinnar er sú að stofnmælingar
benda til að mun meira sé en áður af
grásleppu við landið í ár samanborið
við í fyrra. Hefur ekki sést jafn mik-
ið af grásleppu við rannsóknir í níu
ár. Þetta þykir í samræmi við góð
aflabrögð það sem af er vertíð nú á
þessu ári. Grásleppuvertíð má hefj-
ast við Vestfirði, utanverðan Breiða-
fjörð og í Faxaflóa 1. apríl. Vertíð
hefst hins vegar ekki fyrr en 20. maí
við innanverðan Breiðafjörð.
Mokveiði norðaustan-
lands
Veiðum er stjórnað með því að út-
deila ákveðnum fjölda veiðidaga
á hvern bát sem þeir mega síðan
nota til veiðanna. „Við eigum von
á ákvörðun um fjölda veiðidaga á
vertíðinni seinna nú í dag,“ sagði
Örn Pálsson framkvæmdastjóri
Landssambands smábátaeigenda
við Skessuhorn í gær. Hann sagð-
ist þó ekki eiga von á mikilli fjölgun
daga. „Það er meiri áhugi á veiðun-
um í ár heldur en í fyrra. Því má bú-
ast við að fleiri bátar fari á þær núna.
Í fyrra voru gefin út 223 leyfi. Þau
voru reyndar óvenju fá þar sem verð
voru lág. En nú hafa verðin hækk-
að og leyfin verða fleiri núna, senni-
lega uppundir 300 talsins þegar upp
verður staðið. Mér hefur ekki heyrst
að menn séu almennt spenntir fyrir
mikilli fjölgun veiðidaga.“
Bátar hafa þegar hafið veiðar
norðanlands. „Menn eru byrjað-
ir frá Ströndum og austur úr. Það
hefur veiðst svakalega vel það sem
af er vertíð. Það búið að vera mok
á þessum gömlu góðu stöðum frá
Húsavík austur á Vopnafjörð. Afla-
brögð hafa líka verið ágæt á Eyja-
fjarðarsvæðinu og við Siglufjörð.“
Væntingar um hærra
verð
Að sögn Arnar voru greidd 171
króna fyrir kílóið af óskorinni grá-
sleppu til sjómanna í fyrra. „Verð-
ið núna á mörkuðum byrjaði í 225
krónum. HB Grandi sem er einn
stærsti kaupandi hefur hins vegar
ekki viljað borga meira en 200 krón-
ur. Við hjá Landssambandinu höf-
um lagt til 252 króna lágmarksverð.
Margt mælir með verðhækkun. Nú
er skortur á hrognum á mörkuð-
um, það er ekkert óselt. Það hefur
líka gengið vel að selja grásleppu-
búkana og gott verð á þeim. Íslend-
ingar fengu í vetur einir þjóða svo-
kallaða MSC-vottun sem staðfest-
ir að nýting grásleppunnar við Ís-
land er með sjálfbærum hætti. Það
sem af er vertíð hefur verðið verið
um 210 krónur. Við teljum það allt-
of lágt og það sendi beinlínis slæm
skipaboð út á markaðinn að verð
skuli vera svona lágt. Það skapar þá
ímynd að þetta sé ekki nein úrval-
svara. En það er aldrei að vita að
nema hækki nokkuð,“ segir Örn
Pálsson.
mþh
Miklu betur horfir nú með grásleppuveiðar samanborið við í fyrra þegar afla-
brögðin höfðu yfir sér doða og þunglyndisblæ eftir verðhrun í kjölfar offramboðs
á mörkuðum.
Aðalfundur hátíðarfélags Grund-
arfjarðar var haldinn síðastliðinn
sunnudag. Mál málanna á fundin-
um var að sjálfsögðu bæjarhátíðin
Á góðri stund í Grundarfirði en fé-
lagið sér um utanumhald um hátíð-
ina eins og fyrri ár. Ákveðið var að
halda hátíðina með svipuðu sniði
og áður enda var mikil ánægja með
gleðina í fyrra sem þótti heppnast
vel. Næst á dagskrá er að auglýsa eft-
ir framkvæmdastjóra fyrir hátíðina en
áhugasamir geta haft samband á net-
fangið grundargata86@bref.is fyrir
frekari upplýsingar. Það er því ljóst
að gleðin verður við völd í Grund-
arfirði síðustu helgina í júlí eins og
undanfarin ár. tfk
Ungmennafélag Grundarfjarðar hélt
árlegt páskabingó félagsins miðviku-
daginn 25. mars síðastliðinn. Þá gátu
gestir freistað þess að vinna sér inn
páskaegg með réttu bingóspjöldun-
um. Vel var mætt en bingóið fór fram
í Fjölbrautaskóla Snæfellinga líkt og
síðustu ár. tfk
Páskabingó í Grundarfirði
Halda bæjarhátíðina í lok júlí