Skessuhorn - 31.03.2015, Side 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 2015
Vörur og þjónusta
PARKETLIST
PARKETSLÍPUN
OG LÖKKUN
Sigurbjörn Grétarsson
GSM 699 7566
parketlist@simnet.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Hilmir B ehf
Alhliða pípulagningaþjónusta
hilmirb@simnet.is
facebook.com/hilmirbehf
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
Þriðjudagskvöldið 24. mars síðast-
liðinn var haldið töltmót í Söðuls-
holti í Eyja- og Miklaholtshreppi.
Keppt var í fjórum flokkum; polla-
flokki, tölti 16 ára og yngri, öðrum
flokki og svo fyrsta flokki. Skráning
var góð og voru bæði A og B úrslit
í 1. og 2. flokki. Stefnt er að því að
halda annað mót fljótlega og yrði
þá keppt í þrígangi, tölti, brokki og
feti.
Úrslit á töltmóti:
Pollaflokkur þar sem allir voru í
fyrsta sæti:
Friðjón Haukur Kristjánsson og
Kolbrá frá Söðulsholti
Kristin Eir Hauksdóttir og Keila frá
Skáney
Gísli Sigurbjörnsson og Lotning frá
Minni-Borg.
Tölt 16 ára og yngri
1. Fanney Gunnarsdóttir og Kári
frá Brimilsvöllum
2. Inga Dís Víkingsdóttir og Sindri
frá Keldudal
3. Kolbrún Katla Halldórsdóttir og
Kolbrá frá Söðulsholti
4. Inga Dóra Sigurbjörnsdóttir og
Hamar frá Miðhrauni
5. Selma Rakel Gestsdóttir og
Brúnka
6. Hafdís Lóa Sigurbjörnsdóttir og
Lotning frá Minni-Borg.
Tölt annar flokkur
B úrslit
1. Veronica Osterhammer og Snót
frá Brimilsvöllum
2. Hrefna Frímannsdóttir og Garp-
ur frá Kóngsbakka
3. Rut Leifsdóttir og Móses frá
Fremri-Fitjum
4. Margrét Sigurðardóttir og Frá
frá Hítarneskoti.
A úrslit í öðrum flokki, en sá sem
var efstur í B úrslitum vann sér þátt-
tökurétt í A úrslitum.
1. Moa Enqvist og Tvenna frá Skáney
2. Herborg Sigurðardóttir og Assa
frá Bjarnarhöfn
3. Veronica Osterhammer og Snót
frá Brimilsvöllum
4. Sigurbjörn Magnússon og Klöpp frá
Miðhrauni.
B úrslit í 1. flokki
1. Skúli Skúlasson og Baltasar frá Hall-
kelsstaðahlíð
2. Gísli Pálsson og Gimli frá Lágmúla
3. Guðmundur M. Skúlason og Rjóð
frá Hallkelsstaðahlíð
4. Larissa Heinrich og Neisti frá Brim-
ilsvöllum
5. Hlynur Hjaltason og Fáni frá
Breiðabólstað.
A úrstli í 1. flokki
1. Halldór Sigurkarlsson og Sleipnir
frá Söðulsholti
2. Iðunn Svansdóttir og Ábóti frá
Söðulsholti
3. Randi Holaker og Hekla frá Skáney
4. Sigrún Ólafsdóttir og Sparisjóður
frá Hallkelsstaðahlíð
5. Skúli Skúlasson og Baltasar frá
Hallkelsstaðahlíð
6. Valeníntus Guðnasson og Neisti
frá Stykkishólmi.
iss
Héldu töltmót í Söðulsholti
Þau kepptu í pollaflokki. Efstu keppendur í öðrum flokki; Moa, Herborg, Veronica og Sigurbjörn.
Pennagrein
Opinn fundur samráðshóps um
þjónustu við einstaklinga með
fötlun í Borgarbyggð, var hald-
inn 26. mars síðastliðinn. Fund-
urinn var ágætlega sóttur. Kynnt
var lauslega skýrsla vinnuhóps um
stefnumótun þjónustu í mála-
flokknum. Það sem lagt var til
grundvallar þeirri stefnumótun
voru meðal annars upplýsingar
sem fram komu á sambærilegum
fundi í maí 2014. Þar gátu þjón-
ustuþegar, aðstandendur þeirra
og aðrir áhugasamir um mála-
flokkinn, komið sínum skoðunum
á framfæri um hvað í þjónustunni
væri í góðu lagi og hvað þyrfti að
bæta.
Á fundinum síðastliðinn
fimmtudag ræddu fundarmenn
allar hliðar málaflokksins og eins
og á þeim fyrri var upplýsingum
safnað í sarpinn. Velferðarnefnd
mun nota þær ábendingar sem
fram komu til að stuðla að því að
þjónustan verði enn betri. En auk
ábendinga um það sem betur má
fara, kom fram hrós um það sem
vel er gert. Því mun verða komið
á framfæri við viðkomandi starfs-
menn og forstöðumenn stofn-
ana. Miðað er við að næsti opni
fundur verði haldinn í mars 2016.
Skýrsla vinnuhópsins er aðgengi-
leg á vef Borgarbyggðar.
Velferðarnefnd þakkar þeim
sem sóttu fundinn fyrir veitta að-
stoð. Ykkar þekking á málaflokkn-
um og ábendingar um hvernig
þjónustunni er best háttað, eru
okkur mikilvæg til að skipuleggja
þjónustuna þannig að hún nýtist
sem best.
Þeir sem sáu sér ekki fært að
mæta á fundinn, en vilja koma
ábendingum varðandi þjónustuna
á framfæri eru hvattir til að hafa
samband í síma 692-1461 eða
senda póst á netfangið hulda-
hronn@borgarbyggd.is fyrir 9.
apríl nk.
Fyrir hönd velferðarnefndar,
Hulda Hrönn Sigurðardóttir,
formaður.
Samráð við
þjónustuþega
Freisting vikunnar
Með einföldum hætti má gera
sitt eigið súkkulaðipáskaegg. Það
getur reynst bráðskemmtileg fjöl-
skyldustund, þrátt fyrir að tiltekt-
in eftir á sé ekki sú allra skemmti-
legasta. Kámugir súkkulaðiputtar,
sælusvipurinn og ljúf endurminn-
ingin er þess virði að leyfa börn-
unum að vera með í súkkulaði-
gerðinni. Að þessu sinni er freist-
ing vikunnar sykurlaust súkkulaði
til að setja í skeljalagað form svo
úr verður sykurlaust páskaegg.
Ef ekki er óskað eftir sykurlausu
góðgæti má einfaldlega bræða sitt
uppáhalds súkkulaði yfir vatns-
baði og fylgja svo leiðbeiningum
um skeljagerðina sjálfa.
Sykurlaust súkkulaði
1 dl kakósmjör
½ dl agavesýróp eða sú sæta sem
hentar
1 ½ - 2 dl kakó
2 tsk vanilluduft
Smá salt
Súkkulaðigerð
Bræðið kakósmjör í potti við mjög
lágan hita, eins lágan og mögu-
legt er. Bætið svo agavesýrópinu
út í og hrærið létt þegar kakósm-
jörið er bráðið. Blandið þurrefn-
um varlega saman við. Þá ætti að
vera komin silkimjúk súkkulaði-
bráð. Ef blandan er mjög þunn
má bæta við meira kakódufti.
Aðferð við skeljagerð
Setjið um tvær matskeiðar í hvort
form og veltið varlega um allt
formið. Þarna er tilvalið að leyfa
börnunum að spreyta sig. Þeg-
ar allt formið er þakið súkkul-
aðibráð er þeim skellt í frysti í
nokkrar mínútur og ferlið end-
urtekið nokkrum sinnum. Að
minnsta kosti þrisvar svo skelin
verði nógu þykk til að hún brotni
ekki þegar hún er losuð úr form-
inu.
Samsetning
Þegar tvær skeljar eru tilbúnar er
hægt að fylla eggið með heima-
gerðum málshætti, leikföngum
eða sælgæti eftir óskum hvers og
eins. Samsetningin sjálf er kúnst-
ug og súkkulaðibráðin er notuð til
að líma helmingana saman. Hægt
er að gera það með því að setja
formin saman og hafa kantana
óstorknaða. Gott er að treysta og
skreyta samskeytin með súkkul-
aðibráð úr sprautupoka. Ef eggið
er vel fast saman er hægt að nota
borða til skreytingar eins og sést
hér á myndinni.
Skreytingar
Súkkulaðibráðin virkar sem
lím og hægt er að skreyta egg-
ið að vild með því að dýfa fræj-
um, möndlum, kókosflögum eða
páskaungum létt í súkkulaðið og
festa við eggið. Það er hin mesta
skemmtun fyrir börnin og gaman
að fá sitt eigið páskaegg á páska-
dag.
eha
Heimagert páskaegg