Skessuhorn - 09.09.2015, Side 2
MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 20152
Nú er að renna upp sá tími ársins þegar
bændur sækja fé sitt af fjalli. Því gæti bor-
ið meira á fé nálægt þjóðvegum lands-
ins næstu vikurnar og stundum þarf
að reka féð yfir vegi svo koma megi því
heim á hús. Höfum augun hjá okkur og
förum varlega þegar við ökum um þjóð-
vegi landsins.
Það verður suðaustan 13-20 m/s og
hvassast suðvestanlands á fimmtudag.
Þurrt á Norðurlandi en annars rigning og
töluverð úrkoma suðaustan til. Dregur úr
vætu og vindi með kvöldinu. Hiti 10-17
stig, hlýjast norðanlands. Sunnan 3-8 m/s
og smáskúrir á fimmtudag og föstudag.
Snýr í austlægari áttir á föstudagskvöld
með rigningu á Austurlandi. Hiti 8-13
stig. Austlæg átt og víða rigning á sunnu-
dag og mánudag, einkum austanlands.
Milt veður.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns.
„Hvað læturðu út í kaffið þitt?“ Flestir, eða
39,83% svarenda, kváðust nota mjólk í
kaffið. Ögn færri, eða 38,59% láta ekk-
ert út í kaffið sitt. „Áfengi“ sögðu 7,68%,
„mjólk og sykur“ 4,36% og 3,73% sögð-
ust nota margt af því sem í boði var.
„Rjóma“ sögðu 2,9% og 2,7% svöruðu
„annað.“ „Sýróp“ sögðust aðeins 0,21%
nota og enginn svaraði því til að hann
notaði þeyttan rjóma út í kaffið.
Í næstu viku er spurt:
Hvaða hópíþrótt finnst
þér skemmtilegust?
Ejub Purisevic, þjálfari Víkings Ólafsvíkur,
tryggði liði sínu sæti í úrvalsdeild karla í
annað sinn í sögu félagsins þegar þrjár
umferðir voru eftir af mótinu. Að öðrum
ólöstuðum á hann mikinn heiður skilinn
fyrir afrekið og því er Ejub Vestlending-
ur vikunnar.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Hillir undir
verklok
MÝRAR: Utanhússfram-
kvæmdir við félagsheimlið
Lyngbrekku hafa staðið yfir
í sumar en það verður klætt
utan með múrkerfi. Það eru
SÓ húsbyggingar, EJI, Múr-
smíði og ÓG flísalagnir sem
vinna verkið. Á vef Borg-
arbyggðar er sagt frá því
að ef tíðarfar verður hag-
stætt á næstunni fari brátt að
hilla undir verklok í þessum
áfanga.
-mm
„Best of the
best in the
West“
VESTURLAND: Skv.
heimildum Skessuhorns
stendur til að stofna nokkurs
konar meistaradeild hesta-
íþrótta á Vesturlandi. Verk-
efnið er ekki á vegum hesta-
mannafélaganna heldur er
það hópur knapa af svæðinu
sem stendur að því. Hefur
verkefninu verið gefið vinnu-
heitið „Best of the best in the
West.“ Forsaga málsins er sú
að hestamenn af Vesturlandi
hefur lengi langað að taka sig
saman um að skemmta sér
og öðrum og sýna um leið
fram á að þeir séu vel ríð-
andi, en hugmyndin er sú að
aðeins færari knöpum standi
til boða að taka þátt í keppn-
um. Sú hugmynd hafi hlot-
ið mikinn hljómgrunn og því
ákveðið að boða til stofn-
fundar. Samkvæmt heimild-
um Skessuhorns var stofn-
fundurinn um verkefnið
haldinn mánudaginn 7. sept-
ember síðastliðinn þar sem
framkvæmdanefnd var skip-
uð. Henni hafi verið falið að
gera kostnaðaráætlun, leita
styrktaraðila og skipuleggja
starfið. Á næstu misserum
kemur í ljós hvort af verk-
efninu verður en skv. heim-
ildarmanni Skessuhorns eru
meðlimir hópsins vongóðir
að svo verði og starf geti haf-
ist strax í vetur.
-kgk
Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpi@stolpiehf.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Búslóðageymsla � Ártíðabundinn lager � Lager � Sumar-/vetrarvörur
Frystgeymsla � Kæligeymsla � Leiga til skemmri eða lengri tíma
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpiehf.is
HAFÐU
SAMBAND
Málefni flóttafólks voru til um-
fjöllunar á fundi byggðarráðs
Borgarbyggðar í morgun. Á fund-
inn mætti Elín Kristinsdóttir for-
maður Borgarnesdeildar Rauða
Krossins til viðræðna um hugsan-
lega aðkomu að móttöku flótta-
manna í Borgarbyggð. Byggðar-
ráð þakkar Elínu fyrir greinar-
góðar upplýsingar. Í framhald-
inu samþykkti byggðarráð eftir-
farandi bókun: „Byggðaráð sam-
þykkir að óska eftir viðræðum við
ríkisvaldið um aðkomu sveitar-
félagsins að móttöku flóttafólks
og lýsir sig reiðubúið til að leggja
sitt af mörkum til að tryggja sem
flestum öruggt skjól. Sveitarstjóra
er falið að upplýsa velferðarráðu-
neytið um vilja sveitarfélagsins.
Samþykkt er að setja á stofn stýri-
hóp með aðkomu Borgarfjarðar-
deildar Rauða krossins og ann-
arra aðila sem hafa látið sig mál-
ið varða.“
mm
Síðastliðinn föstudagsmorg-
un varð það óhapp á veginum
skammt frá Laxárholti í Hraun-
Búið er að selja útgerðarfélag-
ið Hjálmar ehf. í Grundarfirði. Í
fundargerð bæjarráðs Grundar-
fjarðar 27. ágúst síðastliðinn kem-
ur fram að samkvæmt áreiðanleg-
um heimildum bæjarfulltrúa liggi
það nú fyrir að gengið hefur verið
frá sölu á öllum hlutabréfum í út-
gerðarfyrirtækinu til Loðnuvinnsl-
unnar ehf. á Fáskrúðsfirði. „Þar
með er Haukaberg SH-20 og all-
ar aflahlutdeildir sem skipinu fylgja
horfnar úr Grundarfirði. Ekki hef-
ur borist fyrirspurn um það hvort
sveitarfélagið hyggist nýta sér for-
kaupsrétt á skipinu sbr. 12. gr. laga
nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða,“
segir í bókun bæjarráðs.
Þorsteini Steinssyni bæjarstjóra
var á fundinum falið að kanna hvort
seljanda sé ekki skylt að spyrjast
fyrir um forkaupsrétt sveitarfélags-
ins til samræmis við ofangreinda
lagagrein. Jafnframt áréttaði bæjar-
ráð mikilvægi þess að Alþingi sjái til
þess að skýra forkaupsréttarákvæði
í 12. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn
fiskveiða er snúa að sölu fiskiskipa
og aflaheimilda. mm
Útgerðarfélagið Hjálmar selt
ásamt Haukaberginu
Borgarbyggð lýsir yfir vilja
til móttöku flóttafólks
Fóðurbíll með tengivagni valt á Mýrunum
hreppi á Mýrum að fóðurbíll frá
Líflandi með áföstum tengivagni
fór á hliðina og enduðu þversum
á veginum. Bílstjórann sakaði ekki
en bæði bíllinn og eftirvagninn
eru illa farnir ef ekki ónýtir.
Óhappið varð á stað þar sem
slæm laut eða skvompa hefur ver-
ið í veginum um langt skeið. Að
sögn Unnsteins Smára Jóhanns-
sonar bónda í Laxárholti hefur
vegurinn frá Hundastapa að Lax-
árholti verið að hans mati van-
ræktur af Vegagerðinni. „Það eru
stór kúabú rekin hér á þessu svæði
sem kalla á mikla þungaflutninga
m.a. á fóðri og mjólk. Viðhald
vegarins er engan veginn í sam-
ræmi við álagið og því algjörlega
óviðunandi. Ég hef ótal sinnum
kvartað yfir þessu við Vegagerð-
ina, en án árangurs, og líklega
mun ég nú kæra Vegagerðina fyr-
ir vanrækslu. Um síðustu helgi var
síðan sett möl í nágrenni við þessa
skvompu en ekki fyllt ofan í hana
sjálfa og alls enginn frágangur
átt sér stað. Sú aðgerð bætti ekki
ástand vegarins og á líklega sinn
þátt í að fóðurbílstjórinn lendir í
því að velta bílnum,“ segir Unn-
steinn.
mm
Unnsteinn í Laxárholti telur veginn milli Hundastapa og Laxárholts vera
vanræktan.
Bíllinn þveraði veginn. Nær má sjá skvompuna sem ekið var ofan í en við það
missir ökumaðurinn vald á bílnum.