Skessuhorn


Skessuhorn - 09.09.2015, Blaðsíða 9

Skessuhorn - 09.09.2015, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2015 9 Dagur íslenskrar náttúru á Akranesi Í tilefni af Degi íslenskrar náttúru þann 16. september næstkomandi ætla Akraneskaupstaður og Landmælingar Íslands að taka höndum saman og bjóða til fræðslu- og örnefnagöngu. Kl. 17:00 verður gengið frá aðalinngangi á Jaðarsbökkum meðfram Langasandi, út á Sólmundarhöfða og þaðan að Garðalundi, undir leiðsögn Guðna Hannessonar og Rannveigar L. Benediktsdóttur starfsmanna Landmælinga Íslands. Þau munu fræða gesti um örnefni á þessum slóðum. Kl. 17:45 verður gengið um Garðalund undir leiðsögn Jóns Guðmundssonar garðyrkjufræðings og Sindra Birgissonar skipulagsfræðings. Garðalundur hefur verið vinsælt útivistarsvæði Akurnesinga um árabil en hefur gengið í gegnum miklar breytingar undanfarin ár. Allir hjartanlega velkomnir, klæðnaður eftir veðri. SK ES SU H O R N 2 01 5 Sunnudagaskóli Akranekirkju hefst næstkomandi sunnudag. Vetrarstarfið hefst að þessu sinni með leiksýningunni Hafdís og Klemmi - og leyndardómar háaloftsins sem er fyrir börn á öllum aldri. Persónur sýningarinnar eru þau Hafdís og Klemmi sem eru jafnframt aðalpersónur þáttaseríunnar Daginn í dag en sýningin er sjálfstætt framhald þáttanna. Sýningin er í Safnaðarheimilinu Vinaminni, sunnudaginn 13. september klukkan 11. Aðgangur ókeypis! SK ES SU H O R N 2 01 5 Símenntunarmiðstöð Vestur- lands hefur sett á laggirnar nýtt nám fyrir þá sem vilja afla sér rétt- inda í mannvirkja- og málmtækni- greinum. Námið kallast Tækni- stoðir og er fjármagnað af verk- efninu Menntun núna! sem geng- ur út á að hækka menntunarstig í Norðvesturkjördæmi. Tæknistoðir er tveggja anna fjarnám með stað- bundnum lotum. „Þetta er gert til að höfða til þeirra sem búa í dreif- býli. Við erum ekki að útiloka einn né neinn en þetta er sérstaklega ætlað þeim sem búa fjarri verk- námsskóla. Þeir geta unnið stór- an hluta heima hjá sér en mæta svo fjórum sinnum á önn í Borgarnes,“ segir Hörður Baldvinsson verk- efnisstjóri Tæknistoða. Hann seg- ir þetta fyrirkomulag gera það að verkum að þeir sem búi fjarri skóla þurfi ekki að hitta kennara eins oft og áður var. „Við höfum verið með nemendur sem hafa þurft að keyra í þrjá klukkutíma til að komast í tíma á laugardagsmorgni. Síðasta vetur var þetta mjög erfitt fyrir þá sem voru í dreifbýlinu en með þessu fyrirkomulagi fækkar ferðunum mikið,“ bætir Hörður við og segir þetta frábært tækifæri fyrir þá sem hafa kost á því. Fyrir alla aldurshópa Í Tæknistoðum eru meðal annars kennd fög eins og grunnteikning, efnisfræði málms og trés, iðnreikn- ingur og forritun á iðnaðarvélum. „Vonandi fáum við svo fjármagn í Tæknistoðir 2, þá myndi bóklegum fögum fjölga og það myndi hjálpa þeim sem áhuga hafa á réttinda- námi að ná sér í þau,“ segir Hörð- ur. Hann segir verkefnið samvinnu- verkefni allra framhaldsskólanna í kjördæminu og að það sé fullmetið í hefðbundið iðnnám. „Þetta gerir það að verkum að það verða færri ferðir í verknámsskólana fyrir þá sem vilja ná sér í löggild iðnrétt- indi.“ Hörður segir að góður stuðn- ingur sé í náminu og haldið sé vel utan um alla nemendur. „Nemend- ur fá stuðning frá kennurum allan tímann í gegnum kennsluforritið Moodle og kostur er á góðri náms- og starfsráðgjöf. Námið hentar öll- um aldri, það má sem dæmi nefna að sá elsti sem hefur skráð sig er kominn vel á sextugsaldur en sá yngsti er rúmlega 23 ára. Svo er skemmtilegt að nefna að nemendur koma víðsvegar að, dreifast vel yfir þetta svæði.“ Námið hefst í byrjun október og er skráning enn í full- um gangi. „Það eru örfá sæti eftir og skráning verður eitthvað fram í seinni hluta mánaðarins. Þeir sem vilja skrá sig eða fá upplýsingar geta haft samband við mig eða far- ið inn á vef Símenntunar, simennt- un.is,“ segir Hörður. Áhugasam- ir geta sent honum tölvupóst: hor- dur@simenntun.is eða hringt í síma 841-7710. grþ Nýtt nám hjá Símenntunarmið- stöð Vesturlands Hörður Baldvinsson er deildarstjóri málmiðnadeildar FVA.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.