Skessuhorn


Skessuhorn - 09.09.2015, Blaðsíða 4

Skessuhorn - 09.09.2015, Blaðsíða 4
MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 20154 Töluverð hreyfing er á fylgi stjórn- málaflokka milli mánaða samkvæmt könnun sem Gallup kynnti í síð- ustu viku. Í henni bæta Píratar og Vinstri hreyfingin - grænt framboð við sig en að sama skapi minnkar fylgi Samfylkingarinnar og Sjálf- stæðisflokksins milli mánaða. „Nær 36% segjast myndu kjósa Pírata sem er um fjórum prósentustig- um meira en fyrir mánuði. Þetta er mesta fylgi sem flokkurinn hef- ur mælst með í Þjóðarpúlsi Gallup. Næstum 12% myndu kjósa Vinstri hreyfinguna - grænt framboð sem er aukning um þrjú prósentustig milli mánaða. Rúmlega 9% segj- ast myndu kjósa Samfylkinguna ef kosið yrði til Alþingis í dag sem er um þremur prósentustigum minna en fyrir mánuði. Fylgi Sjálfstæð- isflokksins minnkar um rúmlega tvö prósentustig milli mánaða en tæplega 22% segjast myndu kjósa flokkinn ef gengið væri til kosn- inga nú. Fylgi Framsóknarflokksins og Bjartrar framtíðar minnkar lít- ið milli mánaða. Liðlega 11% segj- ast myndu kjósa Framsóknarflokk- inn og rösklega 4% Bjarta framtíð,“ segir í frétt Gallup. Stuðningur við ríkisstjórnina er 34% og lækkar um tvö prósentustig frá því í júlí. mm Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smáaug- lýsinga er til 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.800 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 2.573 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 2.230. Rafræn áskrift kostar 2.023 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 1.867 kr. Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is Guðný Ruth Þorfinnsdóttir gudny@skessuhorn.is Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Emilía Ottesen, markaðsstjóri emilia@skessuhorn.is Valdimar Björgvinsson valdimar@skessuhorn.is Umbrot og hönnun: Ómar Örn Sigurðsson omar@skessuhorn.is Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Leiðari Þetta var ljótt en það verður að duga Litlir sem stórir sigrar á íþróttasviðinu hafa verið landsmönnum hug- leiknir að undanförnu. Hér á Vesturlandi fögnum við því að karlalið Vík- ings Ólafsvíkur hefur að nýju tryggt sér sæti í úrvalsdeild næsta sumar. Góðar líkur eru á að gulklæddir Skagamenn spili áfram í efstu deild, en það er þó alls ekkert öruggt ennþá, þegar fjórar umferðir eru eftir. Þá gæti kvennalið ÍA mögulega tryggt endurkomu sína í efstu deild í kvöld með sigri gegn Grindavík. En það er víðar að ganga vel. Íslenska karlalands- liðið í körfubolta tekur nú þátt í EM úti í Þýskalandi. Liðið er þrungið vestlenskri reynslu, með Grundfirðinginn Hlyn Bæringsson fyrrum leik- mann Snæfells og Skallagríms í broddi fylkingar, Arnar Guðjónsson þjálf- ara og Skúla I Þórarinsson sem sér um leikgreiningu fyrir landsliðið. Þá skipa landsliðshópinn meðal annarra Axel Kárason og Pavel Ermolinski úr Borgarnesi. Þetta lið hefur náð ótrúlega langt og gaman að sjá til þess í leik og starfi. Öll eigum við að vera stolt af þessu frábæra fólki sem ber hróður okkar út fyrir landsteinana. Meirihluti þjóðarinnar fylgdist með í liðinni viku þegar íslenska karla- landsliðið í knattspyrnu tryggði sér þátttökurétt á EM í fótbolta í Frakk- landi næsta sumar. Í fyrsta skipti í sögunni nær íslenska karlalandsliðið þeim áfanga að komast á stórmót. Við Íslendingar hljótum að vera stolt- ir af þeim ekki síður en þeim árangri sem íslenska kvennalandsliðið hefur í þrígang sýnt, en stelpurnar fóru á EM árin 1995, 2009 og 2013 og náðu lengst í átta liða úrslit. Reyndar sýnist mér að æði margir hafi gleymt þessari staðreynd og endurspeglaðist það í að jafnvel íþróttafréttamenn héldu því statt og stöðugt fram eftir sigurleik íslenska karlalandsliðsins gegn Hollandi að þetta væri í fyrsta skipti sem íslenskt landslið næði á stórmót. Fólk á að vita betur og biðja konurnar opinberlega afsökunar. Þær eru fyrir löngu búnar að ryðja brautina í þessu sem öðru. En það er fyrst og fremst leikgleðin sem mér finnst að hafi fleytt ís- lenska karlalandsliðinu í fótbolta þetta langt. Eftir höfðinu dansa limirn- ir og það er alveg ljóst að persónuleiki þjálfarateymisins Lars Lagerbäcks og Heimis Hallgrímssonar er bætandi fyrir leikmannahópinn. Húmor og létt lund hefur löngum fleytt mönnum langt eins og ummæli Heimis í beinni útsendingu á sunnudagskvöldið í sjónvarpinu báru glöggt merki. Þar var hann spurður út í annars bragðdaufan markalausan leik gegn Kazakstan, sem reyndar skilaði þessu eina stigi sem vantaði. Heimir svar- aði: „„Þetta var ljótt en það verður að duga,“ sagði mamma þegar ég fæddist.“ Menn sem hafa slíkan húmor að svara svona spontant í hita leiksins og gera grín að sjálfum sér um leið, eru náttúrlega snillingar. Þótt að einatt séu einhverjir sem fetta fingur út í það rými sem íþrótt- ir fá í fjölmiðlum, held ég þó að það séu fleiri sem fagni því. Umfjallan- ir um íþróttir eru góðar. Eru hvatning fyrir þá sem eru að leggja mikið á sig og ná langt. Jafnvel hin eina veraldlega umbun og viðurkenning sem þeir fá, fyrir utan betri heilsu að sjálfsögðu. Við eigum að hvetja börn og ungmenni til að stunda einhverjar íþróttir. Þó ekki væri nema til að brjóta upp daginn og minnka hinn ótímabæra doða sem tölvur og sjónvarp geta valdið. Auk þess hefur það löngum verið svo að þeir sem eru hvað iðn- astir við þátttöku í heilnæmu sporti ná langt á öðrum sviðum einnig. Öll umfjöllun um gott gengi fólksins okkar í heilnæmum íþróttum er því af hinu góða. Stundum hefur heldur ekkert veitt af að lífga upp andann og gleyma dægurþrasinu rétt á meðan. Til hamingju Íslendingar með fólk- ið okkar! Magnús Magnússon. Nemendum í Háskólanum á Bif- röst heldur áfram að fjölga, en í haust verða um 630 nemendur við nám í skólanum en síðastlið- ið haust voru þeir 617. Fjölgunin er fyrst og fremst meðal nemenda í háskóladeildunum en 500 nemend- ur eru nú í grunnnámi og meistara- námi á háskólastigi. Nýnemar við skólann eru um 300. Nemend- ur hafa ekki verið fleiri um árabil í Háskólanum á Bifröst. Skólinn hóf í haust kennslu í viðskiptalögfræði í fjarnámi sem hefur hlotið mjög góðar viðtökur. Ennfremur býð- ur skólinn nú upp á þann mögu- leika að vera í lögfræðinámi sam- hliða vinnu. Stór árgangur laganema hef- ur nú nám í Háskólanum á Bif- röst. Nýr sviðsstjóri lögfræðisviðs er Þorbjörg Sigríður Gunnlaugs- dóttir og segir hún það mikla og skemmtilega áskorun að vera fyrst- ur háskóla á Íslandi til að bjóða upp á laganám í fjarnámi. „Háskólinn á Bifröst hefur verið frumkvöðull í kennslu í fjarnámi og nú er kom- ið að því að bjóða upp á fjarnám einnig í lögfræðinni. Þetta nýmæli hefur orðið til þess að nemendum fjölgar mikið sem þýðir að áhuginn og eftirspurnin er sannarlega til staðar,“ segir Þorbjörg Sigríður. Þá má einnig geta þess að Há- skólinn á Bifröst, undir forystu Helgu Kristínar Auðunsdóttur, hlaut nýverið veglegan styrk til að þróa sérstaka námslínu á meistara- stigi í fjarnámi í viðskiptalögfræði ásamt Árósaháskóla og University College í Dublin á Írlandi. „Okk- ar sérhæfing hefur verið viðskipta- lögfræðin og framtíðarsýnin er að byggja á þeim góða grunni,“ segir Þorbjörg Sigríður að lokum. mm/ -fréttatilk. Nemendur á Bifröst hafa ekki verið svo margir um árabil Píratar orðnir langstærsti stjórnmálaflokkurinn Í skjalaskáp kirkjunnar á Staðastað á Snæfellsnesi má finna skjal sem ritað er af Sigurgeiri Sigurðssyni þáverandi biskupi Íslands 4. apríl 1950. Sr. Páll Ágúst Ólafsson sókn- arprestur á Staðastað deildi ljós- mynd af skjalinu á Facebooksíðu prestakallsins en þar má sjá hvern- ig tungumálið okkar hefur tekið breytingum á þessum 65 árum. Í bréfinu segir: „Barnaverndarfélag- ið hefir ákveðið að safna skýrslum um alla fávita á landinu innan tutt- ugu ára aldurs og hefir óskað að- stoðar kirkjunnar í því efni. Fyr- ir því leyfi ég mér að æskja þess, að þér, kæri herra sóknarprest- ur, gefið mér skýrslu á hjálögðum eyðublöðum um þá fávita, innan 20 ára, sem heima eiga í sóknum yðar, og sendið mér eigi síðar en hinn 20. júní n.k.“ Það er því ekki lengra síðan en þetta að stjórnsýsl- an notaði orðið fáviti yfir einstak- linga með þroskahömlun. Orð- ið þótti þó ekki niðrandi í þá daga og var einnig talað um „fávitahátt“ og síðar „vangefni“ þegar rætt var um þroskaskerðingu. Þjónusta við fatlað fólk hefur breyst mikið frá þessum tíma og samhliða því hef- ur orðanotkun breyst. Í dag er hvorki talað um fávita, vangefna eða þroskahefta heldur er nú tal- að um fólk með fötlun eða þroska- hömlun. grþ Safnaði skýrslum um fávita á landinu Ljósmynd af skjalinu þar sem óskað er eftir upplýsingum um fávita. Ljósm. Staðastaðarprestakall.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.