Skessuhorn


Skessuhorn - 09.09.2015, Blaðsíða 30

Skessuhorn - 09.09.2015, Blaðsíða 30
MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 201530 Skólastarf Tónlistarskóla Grund- arfjarðar hófst 1. september og að sögn Lindu Maríu Nielsen deild- arstjóra fer skólastarfið mjög vel af stað. „Í upphafi skólastarfsins eru 65 nemendur skráðir í nám hjá okkur og eru örfá pláss enn laus. Það hafa allir komist að sem vilja og við erum ekki með neina biðl- ista eins og er. Þetta er mjög svip- aður fjöldi nemenda og síðustu ár.“ Við skólann starfa fimm kennarar og er boðið upp á kennslu á flest hljóðfæri. „Við erum með tréblást- ursdeild, málmblástursdeild, gítar, bassa og píanó. Einnig er söngdeild sem er mjög vinsæl núna, líklega vinsælasta deildin eins og er. Skipt- ingin á önnur hljóðfæri er nokkuð jöfn myndi ég segja, margir sækja þó í píanónám,“ segir Linda María. Börn geta hafið nám í tónlistarskól- anum þegar þau fara í fyrsta bekk í grunnskóla. „Við tökum inn frá fyrsta bekk og uppúr en það er nýj- ung, við höfum venjulega tekið inn frá þriðja bekk. Einnig eru nokkr- ir fullorðnir nemendur hjá okk- ur en mest eru þetta grunnskóla- börn. Aldursdreifing grunnskóla- barnanna eru nokkuð jöfn.“ Hefja samstarf við grunnskólann „Framundan hjá okkur er fyrst og fremst þetta hefðbundna skólastarf, einkatímar, samspil og tónfræði. Við erum einnig að hefja samstarf við grunnskólann. Þar munum við koma inn með tónlistarstund einu sinni í viku fyrir 1.-7. bekk. Þar munum við kenna börnun- um rythma og tónlistarstefnur og svo verður sungið og kennt á ýmis hljóðfæri,“ segir Linda María. „Það er ein skólahljómsveit hjá okkur sem æfir saman í hverri viku. Þar eru börn úr fjórða bekk og uppúr sem spila saman.“ Það sem fram- undan er hjá skólanum þetta skóla- ár eru árlegir jólatónleikar sem all- ir nemendur skólans geta tekið þátt og svo lokatónleikar og skólaslit í vor. „Það geta allir nemendur skól- ans tekið þátt í þessum tónleikum og þeir eru alltaf vel sóttir. Það má eiginlega segja að meirihluti bæj- arbúa í Grundarfirði mæti á þessa tónleika,“ segir Linda María að lokum. arg/ Ljósm. tfk. Kennsla hófst við Tónlistarskóla Stykkishólms mánudaginn 24. ágúst og að sögn Jóhönnu Guð- mundsdóttur skólastjóra fór skóla- starfið þokkalega af stað. „Það var reyndar smá ströggl að púsla spila- tíma krakkanna saman við íþrótta- æfingar hjá þeim. Hér eru börnin mörg að æfa íþróttir og sum jafn- vel tvær eða þrjár íþróttagreinar ásamt námi í tónlistarskólanum. Við reynum okkar besta að koma til móts við þessar þarfir allra en í ár hefur þetta verið óvenjulega mikið púsl. Þetta eru svo flottir krakkar sem allir mæta glaðir úr sumarfríinu og eru alveg til í tusk- ið,“ segir Jóhanna glöð í bragði. Í vetur eru um 100 nemendur í skólanum og eru það ögn færri en í fyrra. „Við fengum á okkur smá niðurskurð frá bæjaryfirvöldum og komast því ekki fleiri að, skólinn er algjörlega troðfullur og nokkrir eru á biðlista. Það eru níu kennar- ar í stóru og smáu starfshlutfalli í skólanum í vetur,“ segir Jóhanna. Trommurnar eru að slá í gegn Í skólanum er boðið upp á kennslu á flest hljóðfæri, allt nema strok- hljóðfæri. Að sögn Jóhönnu er píanóið vinsælast með miklum yf- irburðum en trommurnar eru að slá mikið í gegn, bókstaflega. „Við erum alltaf að reyna að vera vak- andi og á tánum með að finna upp á einhverju sem krakkarnir hafa gaman að. Nú er unnið að einu skemmtilegu verkefni í trommu- deildinni. Þar eru börnin að smíða algjörlega nýtt hljóðfæri úr rör- um og fittings, hnjám og múff- um. Hljóðfærið hefur fengið nafn- ið Hamroníum og er það nafn al- gjörlega nýtt, eins og hljóðfærið. Þessi smíði er samstarfsverkefni krakkanna í trommudeildinni, mest eldri krakkanna. Spilað var á frumgerð hljóðfærisins á skólaslit- um í vor og einnig á skólaslitum grunnskólans og vakti það mikla athygli og gleði. Nú er hljóðfærið í frekari þróun og verður vonandi hægt að sýna það á tónleikum nú í haust, jafnvel í endanlegri mynd,“ segir Jóhanna. Margir tónleikar í vetur Aðspurð hvað sé framundan í skól- anum í vetur segir Jóhanna hefð- bundið starf, kennslu og tónleika- hald bera hæst. „Á síðasta skólaári voru tvö stórafmæli hjá okkur og við héldum upp á þau en núna í ár verður skólastarfið fremur hefð- bundið. Við munum halda nokkra tónleika t.d. okkar árlegu jóla- tónleika þar sem öll börnin koma fram. Fyrir svona marga nemend- ur þarf að halda um 5-6 tónleika svo allir geti tekið þátt og í lok- in verða stórir tónleikar í kirkj- unni áður en allir halda heim í jólafrí. Um miðja vorönn, í febrú- ar og mars er undirbúningur fyr- ir þátttöku í Nótunni sem er upp- skeruhátíð fyrir tónlistarskólana. En við reiknum með að vera gest- gjafar fyrir svæðistónleika Nót- unnar í mars,“ segir Jóhanna. „Í lok skólaársins verða vortónleikar og eru þeir með svipuðu sniði og jólatónleikarnir, um 5-6 tónleikar og að lokum skólaslit þar sem stærri atriði koma fram. Það taka allir nemendur þátt og er gríð- arlega mikill áhugi og metnaður hjá krökkunum. Um 80 af þeim 100 nemendum sem eru hjá okk- ur koma úr grunnskólanum, það er um helmingur grunnskólabarna sem eru í tónlistarskólanum sem sýnir hversu mikill áhuginn er,“ segir Jóhanna að endingu. arg Kennsla við Tónlistarskólann á Akranesi hófst 1. september. „Við erum svona að koma okkur í gang og fer skólastarfið ágætlega af stað. Það er þó örlítil fækkun sem við höfum áhyggjur af. Aðsókn í blást- urshljóðfærakennslu og söngnám hefur minnkað verulega en ekki er mikil skráning í það nú í haust. Mun færri eru að bætast við heldur en luku nú í vor og blásturshljóð- færin virðast bara eiga undir högg að sækja. Núna eru um 270-280 nemendur skráðir í skólann en í vor voru þeir um 300. Það eru því laus pláss bæði í söng og á blásturs- hljóðfæri,“ segir Lárus Sighvats- son skólastjóri Tónlistarskólans á Akranesi. Hann bætir því svo við að í skólanum er kennt á öll þessi helstu hljóðfæri sem eru í gangi. „Við kennum þó ekki á hörpu eða slíkt,“ segir hann og hlær. „Við lentum í smá niðurskurði sem var ákvörðun bæjarstjórnar og því þurftum við að spara smá í rekstri í ár. Starfshlutföllum hefur því ver- ið fækkað um tæplega eitt hlutfall, vonandi bara til eins árs,“ bætir Lárus við. 60 ára afmæli skólans „Píanóið og gítarinn eru alltaf vin- sælustu hljóðfærin hjá okkur og þar er alltaf troðfullt af nemendum og núna eru nokkrir á biðlista. Það er alltaf biðlisti í gítarnám enda eitt vinsælasta hljóðfærið,“ segir Lárus. Aðspurður hvað sé fram- undan í skólastarfinu í vetur segir hann stórafmæli skólans á dagskrá í vetur en þá verður skólinn 60 ára. „Það hefur ekki verið algjör- lega neglt niður hvernig við mun- um halda upp á afmæli skólans en stefnt er að einum svona afmælis- degi. Þá er ætlunin að nemendur, núverandi og fyrrverandi, komi og spili allan daginn og að gestir og gangandi geti komið og fengið að sjá og hlusta. Það er enn verið að móta þetta og ekkert hefur verið neglt algjörlega niður,“ segir Lár- us. Fyrir utan þessa afmælishátíð segir Lárus veturinn vera nokkuð hefðbundinn þar sem haldnir verða reglulegir músíkfundir með nem- endum og spilað verður á árlegum jólatónleikum og annað slíkt. „Við munum halda áfram með verkefni sem við höfum unnið í samvinnu með grunnskólunum. Þá erum við að bjóða krökkum í 8.-10. bekk að taka tónlistarval í skólanum. Þetta hefur notið mikilla vinsælda hjá krökkunum og er þetta fjórða árið sem við erum að þessu,“ segir Lár- us að lokum. arg Tónlistarskólar Blokkflautusveitin leikur Signir sól. Tónlistarskóli Stykkishólms Nýtt hljóðfæri í smíðum Hér sést hluti nýja hljóðfæris trommudeildarinnar, hið svokallaða „hamroníum.“ Nemendur Tónlistarskóla Grundarfjarðar að spila og syngja fyrir fullum sal áhorfenda sem mættu á tónleika skólans. Tónlistarskóli Grundarfjarðar Meirihluti bæjarbúa Grundarfjarðar mætir á tónleika Nemendur við Tónlistarskóla Grundarfjarðar spila saman á tónleikum. Tónlistarskólinn á Akranesi Blásturshljóðfærin eiga undir högg að sækja

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.