Skessuhorn - 09.09.2015, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2015 5
Þetta nám er ætlað fólki á vinnumarkaði sem er 20 ára eða eldra, hefur stutta formlega skólagöngu
að baki, vinnur við sölustörf eða hefur hug á að stofna til eigin reksturs.
Sölu-, markaðs-
& rekstrarnám
Tilgangur námsins er að veita námsmönnum tækifæri til að auka hæfni sína og bæta við sig lykilfærni á sviði sölu,- markaðs-, og
rekstrarmála. Námsaðferðir eru aðallega byggðar á hagnýtum viðfangsefnum tengdum almennum sölu- og markaðsstörfum.
Námið er 273 klukkustundir og fer fram á haustönn 2015 og vorönn 2016. Meta má námið til allt að 30 framhaldsskólaeininga.
Námsgreinar eru m.a.:
SÍMENNTUNARMIÐSTÖÐIN Á VESTURLANDI
www.simenntun.is
• Námstækni
• Hraðlestur
• Markmiðasetning og tímastjórnun
• Tölvu- og upplýsingatækni
• Sölutækni, viðskiptatengsl og þjónusta
• Verslunarreikningur
• Almenn markaðsfræði
• Samskipti og sjálfstraust
• Framsögn og framkoma
• Markaðsrannsóknir
• Markaðssetning á samfélagsmiðlum
• Lykiltölur, lausafé og áætlanagerð
• Samningatækni
• Verkefnastjórnun
• Gerð kynningarefnis og viðskiptaáætlana
Nýjum
námsvísi
fyrir haustönn 2015
hefur verið dreift
á öll heimili
á Vesturlandi.
Hafðu samband!
NámS
VISIR
HAUSTÖNN 2015
Skoðaðu úrvalið > www.simenntun.is
SÍMENNTUNARMIÐSTÖÐIN
Á VESTURLANDI
[ Háskólinn á Akureyri ]
PANTONE
í merkinu er aðeins notaður einn litur. Enginn bakgrunnur er hluti af merkinu. Ef merkið er á hvítum fleti er
það svart eða rautt. Ef merkið er á lituðum fleti er það alltaf hvítt.
PANTONE 506 SC
CYAN 40% / MAGENTA 100% / YELLOW 100% / BLACK 0%
R - 144 G - 26/ B - 29
CMYK - órlitur
RGB - þrír litir
Svarthvítt
BLACK 100%
Negatíft
Verkalýðsfélag
Akraness
SÍMENNTUNARMIÐSTÖÐIN
Á VESTURLANDI
Sími 437 2390
simenntun@simenntun.is
www.simenntun.is
Nánari upplýsingar
veitir Helga Björk Bjarnadóttir verkefnastjóri á netfangið helga@simenntun.is eða í síma 437 2394.
Staðsetning:
Kennsla fer fram í húsnæði Símenntunar í Borgarnesi. Námið hefst 16. september ef næg þátttaka næst.
Verð:
80.000 kr.
Það er gaman þegar orðaleikir
leiða til skemmtilegs nafns á fyrir-
tæki. Á bænum Stafholtsveggjum
í Stafholtstungum byrjaði Berg-
þór Jóhannesson ræktun á gulróf-
um á um hektara spildu lands í vor.
Rófurnar selur hann nú undir heit-
inu Stafrófur. Uppskeran hjá Berg-
þóri lofar góðu en hann byrjaði að
taka upp um síðustu mánaðamót.
Reynast stafrófurnar bæði falleg-
ar og ljúffengar og því upplagðar í
kjötsúpuna fyrir haustið. Rófurnar
selur Bergþór í Ljómalind í Borg-
arnesi en einnig ekur hann þeim
heim eftir pöntunum á heimili, til
mötuneyta og hótela. Rófurnar sel-
ur hann í 5, 10 eða 25 kílóa pakkn-
ingum og kostar kílóið 300 krónur.
„Ég sáði í lok maí. Þetta var eitt-
hvað sem mig hafði langað að prófa
og var búinn að lesa mig til um slíka
ræktun. Ég keypti svo fræ og sáði
með sáningarhjóli sem ég fékk hjá
Magnúsi í Ásgarði og gekk með það
fram og til baka eftir flaginu. Ætli
ég hafi ekki gengið eina 20 kíló-
metra með hjólið þegar ég sáði í
þennan hektara í vor,“ segir Berg-
þór glaður í bragði. Hann segir vor-
ið hafa verið kalt og byrjaði ekki al-
mennileg spírun á fræinu og vöxtur
fyrr en komið var fram í júní. „Ég
breiddi acryldúk yfir um fjórðung
af flaginu og færði hann svo í byrj-
un ágúst. Rófurnar undan dúknum
eru þær sem fyrst ná fullum vexti.
Vorið var erfitt, það vantaði rign-
ingu framan af en síðari hluti sum-
ars er búinn að vera fínn.“
Bergþór segir að þessi ræktun
hafi verið gagnleg og góð reynsla.
Vafalaust búi hann að reynslunni
næsta haust en þá stefnir hann að
námi við Landbúnaðarháskólann á
Hvanneyri. Hann er nú búsettur á
Stafholtsveggjum þar sem foreldr-
ar hans búa með hross og sauðfé.
„Já, ég er að hjálpa til í búskapn-
um. Hef sjálfur mest gaman af því
að ríða út,“ sagði ungi bóndinn að
endingu.
Finna má rófnafyrirtækið á Fa-
cebook undir; Stafrófur. mm
Í ávarpi til fjölkyldu, vina og fé-
laga skrifar Guðbjartur Hannes-
son alþingismaður kveðju á Fa-
cebook síðu sína á mánudaginn þar
sem hann tilkynnir að vegna veik-
inda verði hann utan þings næstu
vikurnar, en þingsetning var í gær.
„Fljótt skipast veður í lofti og ljóst
er að ég mæti ekki til Alþingis á
þingsetningardaginn á morgun né
fyrstu vikur þingsins. Ástæðan er
að um miðjan júlí greindist ég með
krabbamein og er að slást við það
þessa dagana og vikurnar,“ skrifaði
Guðbjartur á mánudaginn.
Guðbjartur segist treysta á að Al-
þingi standi sig í erfiðum störfum
framundan, leggi áherslu á afkomu
þeirra sem minnst hafa og gæti
hags barna, öryrkja og eldri borg-
ara. Þá leggi þingið áherslu á auk-
ið samstarf stjórnar- og stjórnar-
andstöðu, „en ég minni á að sam-
starf þýðir að leita saman að bestu
lausnum, en ekki að meirihlut-
inn einn ráði.“ Þá segir Guðbjart-
ur í lok ávarps síns: „Ég treysti á að
Alþingi ræki skyldur sínar við íbúa
þessa lands en jafnframt og ekki
síður axli með þjóðinni þá sam-
ábyrgð sem við höfum sem þjóð
meðal þjóða í alþjóðlegu samstarfi,
þróunarsamvinnu, móttöku flótta-
manna, hælisleitenda o.fl. Ísland er
rík þjóð sem getur skipt þjóðaauðn-
um miklu jafnar og betur og tryggt
öllum góða afkomu. Vilji er allt sem
til þarf. Bestu kveðjur og óskir um
gott samstarf og árangursrík þing-
störf,“ skrifar Guðbjartur Hannes-
son.
Skessuhorn sendir Guðbjarti
góðar óskir og baráttukveðjur í
veikindum hans. mm
Guðbjartur við heimili sitt á Akranesi.
Guðbjartur verður utan
þings næstu vikurnar
Bergþór Jóhannesson er hér að snyrta rófur fyrir sölu.
Framleiðir og selur Stafrófur